Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1915, Blaðsíða 2

Sameiningin - 01.01.1915, Blaðsíða 2
338 Vinsamleg tilmœli. Einveran er ekkert líf; það finnur liver maður, þeg- ar til lengdar lætur. Enginn lifir—svo nokkurt líf geti heitið—á eigin störfum sínum, óháður allri aðstoð ann- arra. Sízt af öllu fær andlegt líf vort þrifist með því móti. Sá, sem vill einangrast með fjársjóði andans, leika sér að þeim inni í þröngum og dimmum klefa ó- mannblendninnar eins og maurapúki, ligg'ja á þeim eins og ormur á gulli, hann verður fyr eða síðar var við ein- livern tómleik í sál sinni, einhvern dapurleik, sem gerir honum lífið leitt. Dagar hans eru sólarlitlir, því eng- um hefir nokkurn tíma tekist að verða sín eigin sól. í þrengslunum og dimmunni fer svo alt í niðurníðslu. Ifugsjónirnar missa mátt til flug’s, þegar þær þurfa að hýrast um langan aldur í launkofum eins og fuglar í búri. Tilfinningarnar veslast upp, þegar þeim er aldrei leyft út í sólskinið. Kærleikurinn kulnar rit, trúin dofn- ar, guðræknin verður ismátt og smátt að steingervingi, nema andlegt líf vort þróist á stöðugu samneyti við Guð og menn. öft Itefir ]»að verið wagt um oss Islendinga, að vér séum dulir menn; og hæfa nokkur er fyrir þeim orðróm, ekki sízt er til trúarreynslu vorrar kemur. Um það efni isegjum vér venjulega sem allra minst, nema þá undir fjögur augu, í trúnaði. Ilér býr sjálfsagt lotning undir í og með; og ekki dugar að kasta þungum steini á neinn fvrir ]>að, ]>ó liann vilji ekki gera baðstofulijal úr helg- ustu tilfinningum hjarta síns, eða “ vitna” um þær í kapp við aðrá inenn, með keim af sjálfhælni í orðunum, eins og stundum brennur við á innlendum guðræknis- fundum. En til er ]>ó hóf í þessu sem öðru. Samræður vorar eiga ekivi að vera eintómt markleysu-lijal um dag- inn og veginn. Ef vér tölum ósjaldan um þau alvöru- mál lífsins, sem miklu var.ða, þá er fáeinum orðum um trúarreynslu vora alls ekki ofaukið innnn um slík um- talsefni. Leyfum því trúartilfinningum vorum einstöku sinn-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.