Sameiningin - 01.01.1915, Page 15
351
uðurinn klot'naði út af' þeim hinum nýju kenningum, sem
upp konm um þær mundir og nú eru kunnar orðnar, kom
og upp það vandaspursmál, kvorum flokki safnaðarins
bæri kirkjueignin. Með því að þar var um eignarrétt
að ræða, varð að leita úrskurðar liéraðsdómara í því
efni. Til þess eru dómstólar landsins, að þeir skeri úr
slíkum vafamálum. Ætti að vera unt að leita úrskurðar
j>eirra á friðsamlegan hátt, þá sitt sýnist livorum um
lagaheimildir, og skyldu málsaðilar jafnan fúsir að una
lirskurði dómstólanna og vera jafn-góðir vinir eftir sem
áður. Er oft friðsömust og vinsælust aðferð, að biðja
óhlutdrægan dómara um úiskurð, og fer oft betur á því,
en að menn þjarki áfram endalaust og þrefi um ágrein-
inginn sín á milli. Svo liefði og sjálfsagt farið með mál
þetta milli manna í Þingvalla-söfnuði, ef ekki hefði verið
fyrir ófrið þann, sem uppi var alment út af kirkjumál-
um. En vegna liinnar meiri sundiungar varð smámál
jætta að stónnáli og var sókt og varið af ofurkappi og
saman við það tslengt trúmáladeilunni allri, svo langt sem
hún náði þá málið var höfðað.
Fyrst átti mál þetta að koma fyrir Kneeshaw dóm-
ara í Pembina, hinn fasta dómara héraðins, en verjend-
ur sóru hann hlutdrægan vera og óskuðu eftir því, að
Templeton dómari í Grand Forks dæmdi í málinu. Var
hann af mörgum talinn merkastur og sanngjarnastur allra
dómaranna í ríkinu. Varð }>að úr, að Kneeshaw vék en
'rempleton tók við. Fóru nú fram yfirheyrslur miklar
og langar, fynst í Pembina en síðar í Grand Forks. Á
sínum tíma kvað Templeton upp dóminn og dæmdi þeim
flokki kirkjuna, er að sönnu var minni en hinn, en fast
liélt við upprunalega istefnu safnaðarins og áfram stóð í
ldrkjufélaginu. Taldi hann hinn flokkinn liafa vikið frá
lögum og trúarjátningum safnaðarins.
Úrskurði þessurn undi ekki meirihluta flokkurinn
og áfrýjaði úrskurði Templetons dómara til yfirréttar.
Mun málið hafa verið lagt fyrir yfirréttinn í Marzmáu-
uði síðastl., <‘ii ekki kom úrskurður fvr en nú fyrir hátíð-
arnar. Kom þá í ljós, að dómendur í yfirrétti eru síður
en ekki sammála. Fimm eru þar dómararnir. Há-yfir-