Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.09.1909, Qupperneq 7

Sameiningin - 01.09.1909, Qupperneq 7
199 ritningin sjálf hafi það dómsvald. En er þá öll óánœgj- an yfir því, að þeirra eigin trúarmeðvitund var ekki gjörð að dómstóli, hæstarétti, véfrétt? Svo er reynt að búa til úr því að þingið neitaði að gjöra trúarmeðvitundina að hæstarétti, að það hafi á einhvern hátt misboðið samvizkufrelsi manna. Nú eigi menn ekki að verða hólpnir þannig, að sannindi trú- arinnar samþýðist trúarmeðvitund þeirra og mæli með sér við samvizkur þeirra, heldr að eins fyrir það að samþykkja í blindni allt, er í „Sam.“ stendr. Meiri hugsanaruglingr getr varla átt sér stað. Það er sitt hvað, að sannindi trúarinnar verði að samþýðast trúarmeðvitundinni og mæla með sér fyrir samvizku manns, áðr en þau geti komið manni að notum, eða hitt, að hvað sem ekki samþýðist trúarmeðvitund einhvers eða samvizku, sé fyrir það alls ekki sannleikr. Eg vil t. d. ætla, að stefna sú, er séra F. J. Berg- mann heldr fram, samþýðist trúarmeðvitund lians, og mæli með sér við samvizku lians. En liann má ekki í- mynda sér, að fvrir honum einum og flokksmönnum hans sé svo ástatt. Hin stefnan, sem mótflokkr hans aðliyilist, samþýðist trúarmeðvitund hlutaðeigenda, og mælir með sér við samvizkur þeirra. En hvorugt er nœg sönnun fyrir sannleika þeirrar eða þeirrar stefn- unnar. Og vér getum ekki hrakið hans stefnu með því að eins að halda því fram, að hún samþýðist ekki trúar- meðvitund vorri. Hann ekki heldr vora með því að segja, að sú stefna fullnœgi ekki sinni trúarvitund. En er ekki þetta að neita trúarmeðvitundinni um úrskurð- arvald? Slcyldi það óhœfa, að neita henni einnig um úrskurðarvald yfir ritningunni? Sannleikrinn er sá, að ekkert ofbeldisverk hefir verið framið á trúarmeðvitundinni. Ekki eitt orð sagt á móti því, að menn eigi að sjálfsögðu að fylgja því, sem samvizkan býðr, með því skilvrði auðvitað, að menn leggi rœkt við að upplýsa samvizkuna. Ekki gefið í skyn eða samþykkt, að sannleikrinn geti orðið eign nokkurs án þess hann mæli með sér fyrir trúarmeðvit- und og samvizku. Mér finnst ekki eiga við að gefa í

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.