Sameiningin - 01.09.1909, Blaðsíða 13
205
vægðarlausum árásum Extremista nýju guðfrœðinnar.
Höfundr bókarinnar getr þess, að liann ætli að lýsa
kristindóminum „frá sannsögulegu sjónarmiði' ‘. En
J>etta „sannsögulega sjónarmið“ ségir liann að byggist
á því, „að hvaða niðrstöðu biblíurannsóknin og hin svo
nefnda nýja guðfrœði liefir komizt.“ Síðan getr hann
þess, hvaðan liann hafi fengið þessar upplýsingar um
nýja testamentið. Það er þá fyrst bók séra Jóns Helga-
sonar, sú sem áðr er nefnci; þar næst bók sú, sem nefnist
„The New Theology“ eftir Campbell; enn fremr nefnir
liann „guðfrœðilegar heimildir“, sem Haraldr Níelsson
piestaskólakennari hafi látið sér í té. Ekki er illa valið
til efnisins.
Höfundrinn er mjög harðorðr um Jóhannesar gnð-
spjall, og fullyrðir, að enginn G-yðingr myndi hafa gjört
sig sekan í að semja aðra eins vitleysu. Orð og’ setn-
ingar, sem Kristi einum eru eignuð, og enginn gat talað
nema hann, lýsir höf. fals og ósannindi. „Svona liafi
Jesús Kristr aldrei talað.“ IJöf. kemst að þeirri niðr-
stöðu, að guðspjallið sé falsrit frá árunum 150—200 e.
Kr. og ritað af óþekktum höfundi, sem hafi blandað
saman gyðinglegri guðfrœði og grískri heimspeki.
Opinberunarbókin á einnig að vera falsrit.
Tíöf. frœðir menn um það, að Jesús hafi engin
kraftaverk gjört. Aldrei gjört blinda menn sjáandi.
Aldrei vakið neinn upp frá dauðum. Aldrei kyrrt
vind eða sjó, og aldrei gengið á sjónum. Margar af
dœmisögum hans eru taldar ómerkilegar og sumar fals-
aðar. Orð hans hjá Matt. í 25. kap.: „Farið frá mér
bölvaðir í þann eilífa eld“ o. s. frv„ segir höf. að Kristr
hafi annaðhvort aldiæi talað, eða orð hans sé brjáluð og
þýðingin gölluð. „Eigum vér að trúa orðum þessum?“
—spyr höf. Og svo svarar luinn því sjálfr þannig:
..Nei. og aftr nei!“
Höfundrinn talar all-raikið um upprisu Krists, og
rnynir að útlista hana á náttúrlegan liátt. Ekkert yfir-
náttúrlegt má koma,st þar að. Hann getr þess, að nýja
guðfrcrðin hafi komið fram með þrjár tilgátur um upp-
risuna: 1. Að upprisan hafi verið missýningar. 2. Að