Sameiningin - 01.09.1909, Blaðsíða 23
215
hann eins og ekkert væri breytti til, sleppti einum þeirra
manna, er liann áðr liafði kvatt í nefndina, og setti ann-
an, sem geðfelldari var minna lilutanum, í hans stað.
Ekki lireyfði meiri hlutinn neinum andmælum gegn
þessu háttalagi, sem hann þó liafði fyllsta rétt til, þar
sem forseti hafði áðr í embættisnafni gjört þinginu
grein fyrir því, hverjir kvaddir voru af honum í nefnd-
ina, og' án samþykkis þingsins imfði forseti ekki leyfi til
að gjöra á því neina breyting^ Á þetta mun mega benda
sem hið fyrsta í framkomu meira hlutans, er beri vott
um ósanngirni við minna, hlutann. Þar næst var kosn-
ing embættismanna. Minni lilutinn barðist um forseta-
embættið, en varð undir, fékk að eins eitt atkvæði á móti
þrem, eða því sem næst, með sínum manni. Svo mikil
var ákefð misþóknunar þeirra andspænis forsetanum,
að þeir útnefndu gegn honum eina þrjá eða fjóra áðr en
lokið var. Auðvitað höfðu þeir til þess fullt lagaleyfi,
og hér er að eins á það minnzt til að sýna, hver sá andi
var, sem réð gjörðum minna lilutans, og hvernig fram-
koma hans öll frá upphafi var gagnvart meira hlut-
anum. Af því má og marka muninn, sem á því var,
hvernig hvor flokkr um sig breytti við hinn flokkinn í
þessu kosningamáli.
Auk forseta-embættisins eru tvö önnur mikilvæg
embætti í kirkjufélaginu, embætti skrifara og féhirðis.
Kosning skrifara fór. fram undir eins á eftir að forseti
var kosinn; í það embætti tilnefndi ineiri hlutinn einmitt
þann manninn, sem minni hlutinn hafði látið sör vel líka
í stað þess, er kvaddr va,r ur kjörbréfanefndinni, og ekki
eitt atkvæði var af meira hlutanum móti honum greitt.
Þetta iná líklega telja aðra ósanngirnina af liálfu meira
hlutans gagnvart minna hlutanum. Næst fór fram
kosning féliirðis; þá stóð aftr einn upp úr meira hlutan-
um og útnefndi minna hluta mann, ekki þann, er væri
eins og á báðum áttum í ágreiningsmálinu, heldr þann,
sem er ákveÖinn flokksmaðr með minna hlutanum og að
öllu einhver hinn atkvæðamesti og mest metni í liópi
leikmanna vorra. Hvernig fór meiri lúutinn með hann?
Tilnefndi s« flokkr nokkurn á móti honum og lét hann