Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1909, Blaðsíða 9

Sameiningin - 01.09.1909, Blaðsíða 9
201 veitt úrskurðarvald yfir því, sem óþroskuð trúarxneðvit- und fyrstu aldar maunsins bjó sér til. En svo er til önnur hugmynd um opinberun, sem byggir á ritningunni. Oss er þar kennt, að guð hafi á þa.nn hátt opinberað sig mönnunum, að þeim liafi bein- línis verið ljóst, livað var orð guðs til þeirra, til aðgrein- ingar frá eigin hugsunum; einnig, að saga þeirrar opin- bcrunar sé skráð að tilhlutun guðs og af lionum inn- blásin. Sú opinberun ber það livergi með sér, að trúar- meðvitund mannsins eigi að fá að vinza lír lienni eftir vi!d. Aldrei talaði Kristr svo við lærisveina sína, að i’.mn gæfi í skyn, að trúarmeðvitund þeirra ætti að liafa úrskurðarvald yfir orðum hans. Hann sagði þeiin að vísu, að þeir gæti reynt kenninguna, livort hún væri frá g’iiði, en hann gaf aldrei í skvn, að ef þeir fylgdi fyrir- inælum hans um að reyna hana, gæti öðruvísi farið en að þeir sannfœrðist um, að liún væri sönn og guðdómleg. Hugmynd þessi um opinberun gengr, í einu orði sagt, að því vísu samkvæmt eðli sínu, að opinberunin sjá!f hafi œðsta úrskurða.rvald, en ekki hugsun manns- ins eða trúarmeðvitund. Þessar tvær stefnur stóðu andvígar livor annarri á síðasta kirkjuþingi. Stefnan, sem ráðandi hefir verið í kirkjufélaginu frá upphafi, veitir ritningunni œðsta úr- skurðarvald í trúarefnum og í öllu l>ví, er henni sjálfri viðkemr. Nýrri stefnu, sem setr trúarmeðvitundina í öndvegi, eða gjörir hana að œðsta dómara, var neitað um löggilding. Það var allt ódæðið.. Sama ástœðan til að hefjast lianda gegn kirkjufélaginu, sem á að vera nú, hlvtr því að hafa verið til frá byrjun sögu þess. Því „gangr málsins“ verðr aldrei svo flœktr af íieinum lög- frœðingi, að það dyljist, hvor stefnan hefir legið til grundvaílar í kirkjufélaginu frá byrjun. —o

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.