Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1909, Blaðsíða 25

Sameiningin - 01.09.1909, Blaðsíða 25
217 verið frá skýrt, enda má livenær sem vill sanna með ]jví, er skráð stendr í gjörðabók þingsins, hvernig getr þá nokkur maðr verið svo fífldjarfr, að koma fram með þau uunnæli, að meiri hlutinn hafi beitt valdi sínu ráð- ríkislega eða á einhvern liátt níðzt á minna lilutanum! Myndi þeir, sem valdið höfðu, nokkurn tíma hafa komið fram með meiri sannsýni, nærgætni, kurteisi og góðlátsemi en hér var gjört? Hefir nokkur sá minni hluti til verið, sem jafn-stöðugt var lagað sig eftir og í öllu dekrað við af meira hluta, eins og sá, sem hér er um að rœða? Imyndar sér nokkur, að allt þetta dekr við minna hlutann hafi verið nauðsynlegt? Sé nokkur slíkr til, þá hlýtr liann að vera ókunnugr þeirri aðferð, sem jafnaðarlega er hér í Vestrheimi beitt við þrálátan minna hluta. Á flestum þingum myndi slíkum minna hluta hvervetna alls ekki hafa verið sinnt að neinu. Að meiri hlutinn hjá oss sé sakaðr um ósanngirni út af framkomu hans gagnvart minna hlutanum — það nær engri átt. Þess munu fá dœmi, að meiri hluti hafi sóma af því að hafa beitt valdi sínu með eins miklu göfug- Ivndi og liér var gjört. Og er oss ánœgja um það að hugsa. Það gleðr oss að vita til þess, að vorir menn höfðu valdið allt í liendi sinni, en fóru svo mannúðlega ineð það. Til að sýna sanngirni kirkjufélags-forsetans og það, hve mikið far liann gjörði sér um að styðja frið og gott samkomulag, vil eg leyfa mér að minna á þá bending frá honum í ársskýrslu hans, að sett væri þingnefnd, sem það væri falið að kveðja á fund með sér þá alla, er helzt liöfðu verið viðriðnir trúmála-deiluna, og leitast við að ná samkomulagi því, er báðir málsaðilar mætti vel við una. Sú bending var tekin til greina af þinginu, og kvaddi svo forseti mennina í nefndina á þann veg, að þrír þeirra voru úr meira hlutanum, en tveir úr minna hlutanum. Plvort mvndi þar hafa kennt nokkurrar ó- sanngirni? I þrjá daga var nefnd þessi að vinna að því. er henni var fvrir sett, en gat ekki náð neinu viðun- anda samkomulagi. Frá því skýrði hún þinginu. Var þá auðsætt, að ekkert varð gjört á friðsamlegan hátt og

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.