Fréttablaðið - 09.04.2011, Blaðsíða 44
inn. Samskipti og nánd ungmennis
við fjölskyldumeðlimi eiga þá til að
minnka. Að mínu mati er Facebook
þá kjörin leið til að halda góðu
sambandi við sína nánustu, enda
er það helsti tilgangur síðunnar,“
segir Helgi.
Ekki hanka börnin á einhverju
Helgi segir að með því að „slást í
hópinn“ geti foreldrar fylgst með
lífi barna sinna á hlutlausan hátt
og fengið þar jafnvel mikilvægar
upplýsingar án þess að þurfa að
spyrja eftir þeim. „Ef foreldrar
fara rétt að er það mín trú að
Facebook geti styrkt samskipti
foreldra við börnin sín. Það sem
ég tel að foreldrar þurfi einna helst
að muna er að nota þær upplýsing-
ar sem þeir fá í gegnum Facebook
aldrei til þess að hanka ungmennið
á einhverju. Það gæti skert sam-
skiptin og alið af sér aðrar, óþekkt-
ar leiðir hjá ungmenninu til að
koma viðkvæmum upplýsingum á
framfæri til vina.“
Við þetta bætir Helgi að for-
eldrar þurfi að meta hvert tilfelli
fyrir sig þegar kemur að því að
meta hvort ungmenni hafi þroska
til þess að eiga í samskiptum á int-
ernetinu. Aldur hafi þar löngum
reynst ónákvæmur mælikvarði.
„Að mínu mati er fræðsla og eftir-
lit mikilvægustu þættirnir. Á int-
ernetinu, ekki einungis Facebook,
er margt í boði sem getur haft
áhrif á líf ungmenna, bæði á
jákvæðan og neikvæðan hátt. For-
eldrar geta haft mikið að segja
um hver áhrifin eru með fordóma-
lausri fræðslu um það helsta sem
internetið hefur í boði. Mikilvægt
er að fræðslan sé laus við áróður
og styðjist við rök.“
Margar jákvæðar hliðar
Þegar Helgi er beðinn að nefna
kosti þess að nota Facebook, fyrir
alla aldurshópa, tínir hann sitt-
hvað til. „Fyrir utan léttvægari
atriði, svo sem að muna afmælis-
daga, eru kostirnir við Facebook
þeir óumdeilanlegu möguleikar
sem hún býður upp á til að stofna
til nýrra tengsla, efla núverandi
tengsl og jafnvel vekja á ný gömul
og gleymd. Fólk má þó aldrei
gleyma að Facebook er einungis
tól, mjög öflugt tól. Það getur ann-
aðhvort unnið með þér eða á móti
þér eftir því hvernig þú ákveður
að beita því.“
Fyrir þá sem ekki þekkja til
Facebook rekur Helgi mögu-
leikana sem felast í notkun síð-
unnar. Fyrir utan að deila hugs-
unum sínum, athöfnum og öðru
sem fólki dettur í hug í svokölluð-
um stöðuuppfærslum má þar setja
inn myndir, myndbandsupptökur,
tengla að skemmtilegum vefsíðum,
senda einkaskilaboð, spjalla, spila
tölvuleiki og fleira.
Ný græja sem þarf að læra á
Spurður um neikvæð áhrif þess
á sálarlífið að hanga á Facebook
líkir Helgi því ástandi við það að
hanga heima og fara ekki út. „Ef
þú ákveður að vera heima, hanga í
símanum og skoða myndir af ætt-
ingjum og vinum í stað þess að
fara í vinnuna mun slíkt iðjuleysi
hafa sömu neikvæðu áhrif og ef
þú ákveður að vera á Facebook og
gera slíkt hið sama.
Ef þú býður síðan einhverjum
sem þú þekkir lítið heim til þín,
kynnir hann fyrir vinum þínum,
sýnir honum öll helstu mynda-
albúmin og segir honum ævi-
sögu þína getur hann í raun gert
sama skaða með þeim upplýsing-
um á Facebook eins og utan henn-
ar. Hvað það atriði varðar býður
Facebook upp á alla stjórn sem
þörf er á til þess að halda nei-
kvæðum áhrifum eins og þessum
í skefjum. Líkt og með nýja græju
í eldhúsinu þarf fólk að afla sér
upplýsinga um hvernig skuli beita
henni til þess að ekki hljótist skaði
af.“
Hluti af eðlilegu þroskaferli
Margt má gera til þess að koma
í veg fyrir neikvæða upplifun á
Facebook að mati Helga. Fyrst og
fremst þurfi að hafa í huga hvað
fólk láti frá sér. Ómögulegt geti
reynst að ná því út sem eitt sinn sé
sett á netið. Einnig sé nauðsynlegt
að kynna sér alla eiginleika síð-
unnar og tryggja að hvergi sé glufa
fyrir óviðkomandi aðila. Það sé
hins vegar hluti af eðlilegu þroska-
ferli ungmenna að vera á höttun-
um eftir upplýsingum um lífið og
tilveruna. Með því að stöðva þau
í þeirri upplýsingasöfnun eigi for-
eldrar á hættu að ungmennið leiti
annarra leiða – og er þá óvíst hver
gæði upplýsinga eða niðurstaðan
verður. - jma
Foreldrar virði mörkin „Það sem ég tel að foreldrar þurfi einna helst að muna er að nota þær upplýsingar sem þeir
fá í gegnum Facebook aldrei til þess að hanka ungmennið á einhverju,“ segir Helgi Sigurður Karlsson sálfræðingur.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
● My shops. Leikur þar sem þú býrð til þína eigin verslunar-
götu, með verslunum eins og sælgætisbúð, fataverslun,
gæludýraverslun og bakaríi. Hver og einn Facebook-notandi
á sína verslunargötu en getur heimsótt vini sína og fjölskyldu
í þeirra búðir (sem þurfa þá líka að skrá sig inn í leikinn á
Facebook).
● Restaurant city. Leikur sem virkar nokkuð svipað og My
shops nema að í þessum leik býrðu til þitt eigið veitingahús,
hannar matseðil, innréttar staðinn, ræður þjóna, vini og
fjölskyldu og ferð og snæðir svo á veitingastöðum vina þinna
þess á milli.
● Pet society. Leikur sem hugnast einkum yngri kynslóðinni.
Kisa er látin notendum í té og þeim ber að hugsa vel um
hana; gefa henni að borða, bursta á henni feldinn, klæða
hana í falleg föt og innrétta heimili hennar eftir smekk.
● Scrabble. Hinn vinsæli orðaleikur á ensku, sem ungir
notendur sem farnir eru að læra ensku geta þá leikið með þeim eldri. Notendur skiptast á „að gera“
og langt má líða á milli; ekki er nauðsynlegt að dvelja langtímum við tölvuna til að spila.
● Monopoly millionaires. Hóið í vini og kunningja sem hafa gaman af Matador og fáið þá til að spila
með ykkur leikinn á Facebook.
Til að finna þessa leiki og fleiri til skrifið þið einfaldlega heiti þeirra í leitargluggann á Facebook.
Til að mynda „My shops” og klikkið á „Go to app“. Facebook gefur byrjendaleiðbeiningar.
Skemmtileg Facebook-afþreying Vorútsala
30% afsláttur af öllum vörum
auk frábærra tilboða
Skráðu þig inn – drífðu þig út
Ferðafélag Íslands
Leyndarmál jökla og fegurð
landslags á
myndakvöldi FÍ
Næsta myndakvöld Ferðafélags Íslands er í
dag miðvikudaginn 17. febrúar
í sal Ferðafélagsins í Mörkinni 6 og hefst kl.
20.00 að vanda.
Myndakvöldið er að þessu sinni í umsjá
hjónanna Helga Björnssonar jöklafræðings
sem sýnir ljósmyndir af íslenskum jöklum og
fjallar um hið sýnilega og ósýnilega landslag
sem jöklarnir búa yfir. Bók Helga, Jöklar á Íslandi sem kom út fyrir síðustu jól
hefur hvarvetna vakið aðdáun enda um stórvirki að ræða. Jöklar á Íslandi
fékk hin íslensku bókmenntaverðlaun í flokki fræðirita.
F rð í Fjörður með Valgarði Egilssyni
Ferðafélag Íslands og Fjörðungar
í Grenivík hafa bætt við á sumar-
dagskrána ferð í Fjörður,
fjögurra daga gönguferð
daga a 12. - 15. júlí.
Undir stjórn hins margreynda
fararstjóra Valgarðs Egilssonar
læknis.
Nánari upplýsingar á skrifstofu FÍ í síma 568-2533
fi@fi.is
FRAMHALD AF FORSÍÐU
SOHO/MARKET
Á FACEBOOK
Teygjutoppur með blúndu
1.990,- SM / ML 10 litir
Fiðrildatoppur
5.990,- S – M – L
Blúndutoppar
2.690,- S – M – L 10 litir
Teygjubolur plain
1.990,- ein stærð 6 litir
Grensásvegur 16
sími 553 7300
Opið mán-fös 14–19. Laugd. 12–17
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
KOMDU Í ÖLL HELSTU
PARTÝIN MEÐ OKKUR
m.visir.is
Fáðu Vísi í símann!
Meiri Vísir.
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar,
meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á Vísi.