Fréttablaðið - 09.04.2011, Side 89
LAUGARDAGUR 9. apríl 2011 57
Framhaldsmyndin The Expend-
ables 2 verður frumsýnd í Banda-
ríkjunum 17. ágúst á næsta ári.
Fyrri myndin leit dagsins ljós 19.
ágúst í fyrra og verða því nánast
tvö ár upp á dag á milli frum-
sýninganna. Talið er að flestir
leikararnir úr fyrri myndinni
endurtaki hlutverk sín í The
Expendables 2, þar á meðal Sylv-
ester Stallone, Jason Statham og
Jet Li. Stallone mun þó ekki sitja
aftur í leikstjórastólnum. Lík-
legt er að Bruce Willis og Arnold
Schwarzenegger fái stærri hlut-
verk í myndinni, sem aðdáend-
ur alvöru hasarmynda bíða eftir
með mikilli eftirvæntingu.
Tvö ár á milli
frumsýninga
HARÐHAUSAR Sylvester Stallone, Bruce
Willis og Mickey Rourke á frumsýningu
The Expendables.
Sjónvarpsmaðurinn Ryan Sea-
crest og kærasta hans, Julianne
Hough, hafa ákveðið að heim-
sækja sálfræðing saman áður
en þau ganga í heilagt hjóna-
band. Að sögn vina stenda þau
nú á krossgötum og vita ekki í
hvorn fótinn þau eiga að stíga.
„Ryan er tilbúinn til að gift-
ast Julianne en hún er ung,
heilum fjórtán árum yngri en
hann. Hann vill aðeins giftast
einu sinni og þráir að vita hvort
hún sé tilbúin í það þrátt fyrir
ungan aldur,“ var haft eftir vini
þeirra. Seacrest og Hough hafa
því ákveðið að leita aðstoðar
sálfræðings til að fá botn í
málið.
Á krossgötum
VILL GIFTAST Ryan Seacrest og kærasta
hans leita aðstoðar sálfræðings með
vandamál sín. NORDICPHOTOS/GETTY
Leikkonan Reese Witherspoon
hefur frestað brúðkaupsferð-
inni sökum kynningarvinnu
í kringum nýjustu mynd sína
Water for Elephants. Leikkonan
gekk nýverið í það heilaga með
umboðsmanninum Jim Toth, en
þetta er í annað sinn sem hún
festir ráð sitt. Á blaðamannafund-
um í kringum myndina, sem Wit-
herspoon leikur í ásamt Twilight-
stjörnunni Robert Pattison, tók
leikkonan seinkuninni með jafn-
aðargeði. „Bráðum held ég á vit
ævintýranna með elskunni minni
og ykkur er ekki boðið með í þetta
skiptið,“ sagði Wither spoon glett-
in við blaðamennina.
Þurfti að fresta för
KYNNIR NÝJA MYND Reese Witherspoon
komst ekki á réttum tíma í brúðkaups-
ferðalagið sitt vegna vinnu.
NORDICPHOTOS/GETTY
Bandaríska söngkonan Britney
Spears gaf nýverið út nýja geisla-
plötu sem nefnist Femme Fatale.
Hún vinnur nú hörðum höndum
við að kynna plötuna og veitti þar
á meðal tímaritinu US Weekly við-
tal þar sem hún segir meðal ann-
ars frá sambandi sínu og Jasons
Trawick og móðurhlutverkinu.
„Ég er ströng með sumt og
minna ströng með annað. Ætli ég
sé ekki einhvers staðar í miðjunni.
Jason er líka alveg frábær með
strákana og þeir líta mjög upp til
hans,“ sagði söngkonan, sem er
ánægð með lífið og tilveruna um
þessar mundir. Hún segir sam-
band sitt og Trawicks ganga vel
og að þau séu ekkert frábrugð-
in öðrum pörum. „Hann kemur
mér til að hlæja og okkur líður vel
saman. Okkur finnst skemmtileg-
ast að hanga heima, horfa á kvik-
myndir og fara út að borða með
vinum okkar. Okkur finnst líka
mjög gott að komast aðeins burt
um helgar og þá til Las Vegas,
Hawaii eða Mexíkó.“
Britney Spears orðin ráðsett
ÁNÆGÐ MEÐ LÍFIÐ Britney Spears
er ánægð með lífið og tilveruna um
þessar mundir.
NORDICPHOTOS/GETTY