Fréttablaðið - 30.04.2011, Side 6
30. apríl 2011 LAUGARDAGUR6
gestum og gangandi réttu sporin vi su ræna tónlist.
Barinn opinn. Enginn a gangseyrir.
Stjórn Samfylkingarfélagsins í Reykjavík
www.xs.isAllir velkomnir
Trúbadorinn og baráttusöngvarinn
Hörður Torfason flytur nokkur lög.
Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi, stjórnar
fjöldasöng.
1. maí
fundur Samfylkingarfélagsins
Samfylkingarfélagið í Reykjavík býður
borgarbúum til baráttufundar í Iðnó
við Tjörnina sunnudaginn 1. maí.
Ræður flytja
Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar
Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins
Hrafnhildur Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri
Ungra jafnaðarmanna
Stjórn Samfylkingarfélagsins í Reykjavík
Eftir útifund verkalýðsfélaganna
liggur leiðin í Iðnó þar sem
reykvískir jafnaðarmenn bjóða
upp á kaffi og kleinur.
KJARAMÁL Samtök atvinnulífs-
ins (SA) segjast tilbúin að gera
kjarasamning til þriggja ára eftir
að ríkisstjórnin lýsti því yfir á
fimmtudagskvöld að sjávarút-
vegsfyrirtækjum yrðu tryggð góð
rekstrarskilyrði.
Ekki er þó útséð með að samið
verði til þriggja ára. SA vilja gera
svokallaðan aðfarasamning til 15.
júní. Þann sama dag hefst sumar-
leyfi Alþingis, en stefnt er að því
að samþykkja lög um stjórn fisk-
veiða og komast að niðurstöðu um
uppbyggingu samgöngumann-
virkja fyrir sumarleyfi.
„Í raun erum við að tala um að
þau fyrirheit sem gefin eru í yfir-
lýsingunni verði efnd,“ sagði Vil-
mundur Jósefsson, formaður SA,
á fundi með fjölmiðlafólki í gær.
Það lokatilboð sem ríkisstjórn-
in gerði SA á fimmtudagskvöld er
langt frá því að vera nægjanlegt,
sagði Vilmundur. Þá sagði hann
samtökin hafa slæma reynslu af
loforðum ríkisstjórnarinnar, og
vísaði þar til stöðugleikasáttmál-
ans. Þrátt fyrir þetta ákvað fram-
kvæmdastjórn SA að freista þess
að ljúka gerð þriggja ára kjara-
samnings.
„Við höfum ekki mikið í hendi
annað en þau loforð að sjávarút-
vegsfyrirtækjum verði sköpuð
góð rekstrarskilyrði. Það hlýtur
að fylla mann mikilli bjartsýni,“
sagði Vilmundur.
„Vonir okkar standa til þess að
við náum samningum við verka-
lýðshreyfinguna. Það er allra
hagur að auka hagvöxt í landinu og
vinna okkur út úr þessum vanda.
Við vinnum okkur ekki út úr nein-
um vanda með verkföllum,“ sagði
Helgi Magnússon, formaður Sam-
taka iðnaðarins, sem sæti á í fram-
kvæmdastjórn SA.
brjann@frettabladid.is
SA rétta fram sátta-
hönd til stjórnvalda
Samtök atvinnulífsins eru tilbúin til að semja til þriggja ára eftir nýtt útspil
stjórnvalda. Stjórnvöld ætla að tryggja sjávarútvegsfyrirtækjum góð rekstrar-
skilyrði. Ákvörðun um samningstíma frestað þar til lög um fiskveiðar verða
ÚTSPIL Hluti framkvæmdastjórnar Samtaka atvinnulífsins kynnti tillögu sína um
samning til þriggja ára á fundi með fjölmiðlafólki í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ríkisstjórnin sendi Samtökum atvinnulífsins drög að ýtarlegri yfirlýsingu á
miðvikudagskvöld þar sem farið er yfir þær aðgerðir stjórnvalda sem liðkað
gætu fyrir gerð kjarasamninga til þriggja ára.
Í drögunum, sem Fréttablaðið hefur undir höndum, er farið yfir þær
opinberu framkvæmdir sem til stendur að ríkið fari í, til dæmis byggingu nýs
Landspítala, hjúkrunarheimila og framkvæmdir á vegum ofanflóðasjóðs.
Til viðbótar er talað um að skilgreina verði hvaða aðrar framkvæmdir ríkis-
sjóður geti greitt fyrir. Þar er meðal annars vísað til samgönguframkvæmda
á Suðvesturlandi sem fjármagnaðar verði með „sérstökum hætti“. Niður-
staða um þær framkvæmdir á að koma fyrir lok maí.
Í sérstakri bókun við drög að yfirlýsingu stjórnvalda er fjallað um sjávar-
útvegsmálin, sem hafa verið ásteytingarsteinn í viðræðum SA og ríkisins.
Þar kemur fram að hagsmunaaðilum verði kynnt frumvarp um breytingar á
lögum um stjórn fiskveiða.
Eftir hagfræðilega greiningu á frumvarpinu tilnefni SA og ASÍ hvort sinn
fulltrúann í nefnd stjórnvalda sem fara á yfir niðurstöður greiningarinnar.
Þetta ætla stjórnvöld að gera til að „leita leiða til að ná frekari sátt um
útfærslur sem tryggi sjávarútveginum góð rekstrarskilyrði“, segir í drögunum.
Niðurstöður þeirrar yfirferðar eiga að liggja fyrir um mánaðamótin maí og
júní.
Í drögunum er kveðið skýrt á um að þau miðist við að samningar til
þriggja ára náist. Verði samið til skemmri tíma falli yfirlýsingin úr gildi.
Niðurstaða um deilumál fljótlega
ASÍ hafnaði í gær tilboði Samtaka atvinnulífsins um að semja til
þriggja ára. Verkalýðshreyfingin vill gera kjarasamning sem gildir
frá síðustu áramótum fram í febrúar á næsta ári, með launa-
hækkunum fyrir launamenn.
„Verkalýðshreyfingin er farin að hefja undirbúning að því að
fara í allsherjaraðgerðir seinni hlutann í maí. Við látum ekki bjóða
okkur þá kyrrstöðu sem hefur verið í þessu máli,“ segir Gylfi Arn-
björnsson, forseti ASÍ.
„Ef þeir vilja koma aftur að borðinu geta menn ekki látið eins
og ekkert hafi gerst. Verkalýðshreyfingin er ekki jójó í höndum
atvinnurekenda sem þeir geta hent til og frá eftir því sem þeim
hentar hverju sinni,“ segir Gylfi.
Kjarasamningur til þriggja ára var svo gott sem tilbúinn 15. apríl
síðastliðinn, þegar slitnaði upp úr viðræðum. Gylfi segir ekki hægt
að snúa klukkunni til baka, SA hafi misst af þeim strætisvagni.
Í millitíðinni hafi náðst samningar við Elkem um verulegar
kjarabætur fyrir starfsmenn. Ýmis atriði í þeim samningi séu
vissulega ekki fordæmisgefandi, enda Elkem að láta starfsmenn
njóta góðs gengis fyrirtækisins. Önnur atriði gefi klárlega for-
dæmi, til dæmis almennar launahækkanir og afturvirkni.
„Ég held að SA hafi gengið þannig fram af nánast öllum lands-
mönnum að það er lítil stemming fyrir því að horfa til þess að
gera þriggja ára samning,“ segir Gylfi.
Segir verkalýðshreyfinguna ekki jójó SA
UNDIRBÚA VERKFALL Gylfi Arnbjörnsson segir ekki
hægt að snúa klukkunni aftur til miðs mánaðar.
Vinnuveitendur hafi misst af þeim strætisvagni.
Spilar þú tölvuleiki?
JÁ 41,6%
NEI 58,4%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Horfðir þú á konunglega brúð-
kaupið í beinni útsendingu?
Segðu skoðun þína á visir.is
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi
eða fengið sendan daglegan tölvupóst
með blaði dagsins. Nánari
upplýsingar á: visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU
ÞJÓÐKIRKJAN Kosið verður að nýju
til vígslubiskups í Skálholti í byrj-
un júlímánaðar þessa árs. Sú
kosning sem fór fram fyrr í mán-
uðinum hefur verið ógilt eftir að
séra Agnes M. Sigurðardóttir,
sóknarprestur í Bolungarvík og
prófastur Vestfjarðaprófastsdæm-
is, kærði úrslitin.
Agnes lenti í þriðja sæti í fyrri
umferð kosninganna, og munaði
þar einu atkvæði á henni og séra
Jóni Dalbú Hróbjartssyni. Ástæða
kærunnar var sú að kjörnefnd tók
gild tvö atkvæði sem póstlögð voru
þremur dögum eftir að frestur
rann út. Kjörstjórn þjóðkirkjunnar
sagði af sér í kjölfarið. Skipa þarf
nýja kjörstjórn til að hafa yfirum-
sjón með kosningunum í júlí.
Séra Sigrún Óskarsdóttir, prest-
ur í Árbæjarkirkju, varð hlut-
skörpust í kosningunum.
Ákveðið hefur verið að leggja
fram nýja kjörskrá sem tekur
gildi 1. maí 2011. 149 prestar eru
á kjörskrá, en tveir þeirra presta
sem voru á kjörskrá 1. febrúar síð-
astliðinn hafa ekki lengur kosn-
ingarétt þar sem þeir hafa látið af
störfum.
Á Íslandi eru tveir vígslubiskup-
ar. Situr annar á Hólum í Hjaltadal
og hinn í Skálholti í Biskupstung-
um. Vígslubiskupsembættið geng-
ur næst biskupsembættinu.
- sv
Kjörstjórn þjóðkirkjunnar segir af sér eftir að kosningar til vígslubiskups voru kærðar:
Kosið verður á ný í byrjun júlí
SKÁLHOLT Tveir vígslubiskupar starfa
á Íslandi, annar í Skálholti og hinn á
Hólum í Hjaltadal. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HEILBRIGÐISMÁL Næstum fimmta
hverju fóstri á Íslandi er eytt,
samkvæmt tölum sem birtust í
Talnabrunni Landlæknis í gær.
Samanborið við Norðurlönd eru
fóstureyðingar þó tiltölulega fáar.
Tölurnar byggja á gögnum
frá 2009. Það ár voru tæplega 81
þúsund fóstureyðingar gerðar
á Norðurlöndum. Hlutfallslega
flestar í Svíþjóð, eða 335 á hverja
1000 lifandi fædda, en fæstar í
Finnlandi. Á Íslandi voru gerðar
193 fóstureyðingar á móti hverj-
um 1000 sem fæddust lifandi. - jhh
Tölur Landlæknisembættisins:
Fimmta hverju
fóstri er eytt
KJÖRKASSINN