Fréttablaðið - 30.04.2011, Page 24

Fréttablaðið - 30.04.2011, Page 24
30. apríl 2011 LAUGARDAGUR24 J ón Stefánsson organisti, kórstjóri og tónlistar- frömuður er sannarlega á heimavelli í Langholts- kirkju. Hann tekur á móti blaðamanni inni á hlý- legri skrifstofu með mörg- um skjalastöflum og býður upp á kaffi. Spurður hvenær hann hóf störf í kirkjunni svarar hann því til að hann þori varla að segja frá því: „Það var árið 1964, ég var sautján ára,“ hljóðar svo svarið. Mynd á vegg skrifstofunnar af fyrstu jólatónleikum Langholts- kirkjukórsins undir stjórn Jóns sýnir glöggt hversu strákslegur Jón var þegar hann hóf að stjórna kórnum og starfa við tónlist. En byrjum á byrjuninni, hvernig kviknaði tónlistaráhuginn? „Ég er alinn upp í Mývatnssveit, afi minn var organisti og það var alltaf mikil tónlist á heimilinu. Frá unga aldri var tónlist hluti af líf- inu, það voru kóræfingar heima og ég stóð stundum við hlið pabba og þóttist vera að syngja bassann. Svo gerðist það man ég að ein frænka mín lærði að spila Gamla Nóa. Þá fékk ég svo mikla minnimáttar- kennd, langaði líka til að kunna lagið og fór að fikra mig áfram. Svo var afi allt í einu farinn að kenna mér á orgel.“ Námið gekk vel og raunar var Jón aðeins þrettán ára þegar hann leysti afa sinn fyrst af yfir jól. „Svo var ég sendur suður í það sem þá hét Söngskóli þjóðkirkjunnar, í raun til að ég yrði betur fær um að taka við af afa,“ segir Jón og rifj- ar upp hvernig örlögin leiddu hann annað en aftur norður í land. Jafnaldri nemanna „Fyrsta vorið mitt hér í Reykjavík gerist það að þáverandi organisti í Langholtskirkju fékk hjartaáfall. Þá var hringt í Dr. Róbert [A. Ott- ósson þáverandi söngmálastjóra þjóðkirkjunnar] og hann beðinn um að benda á einhvern sem gæti leyst hann af. Hann benti á mig og ég hljóp í skarðið. Um haustið var mér boðin fastráðning og maður var nógu ungur og vitlaus til að taka því, en þá var ég orðinn átján ára.“ Jón hafði sannarlega í nógu að snúast á þessum tíma, námi í org- elleik í Söngskóla þjóðkirkjunnar fylgdi nám í tónmenntakennslu auk þess sem Jón átti ólokið grunn- skóla og sótti líka tíma í Haga- skóla. „Ég er alinn upp í sveit, var í sveitaskóla sem stóð í nokkra mánuði á veturna þannig að ég var ekki búinn með grunnskóla. Það varð til þess að fyrsta veturinn minn í Reykjavík var ég 62 tíma í skóla á viku, fyrir utan að æfa mig nokkra tíma á dag á orgelið. Ætli það megi ekki segja að maður hafi lært að skipuleggja tímann sinn,“ segir hann. Starf organista var ekki fullt starf og fljótlega fór Jón að kenna, byrjaði í Vogaskóla en færði sig síðar yfir í Árbæjar- skóla. „Ég var lítið eldri en elstu nemendurnir þegar ég byrjaði að kenna í Vogaskóla. Það gerðist til að mynda eitt sinn þegar ég sat á kennarastofunni og var að reykja pípu, að virðuleg eldri kennslu- kona hreytti í mig að það væri ekki til siðs að nemendur sætu hér inni og reyktu,“ segir Jón og bætir við að það hafi verið alveg ómögu- legt að vera nemandi dr. Róberts án þess að byrja að reykja pípu. „Eins og allir miklir leiðtogar þá hafði hann mikil áhrif,“ segir Jón og hlær. Í Vogaskóla kynntist Jón einnig konu sinni Ólöfu Kolbrúnu Harð- ardóttur söngkonu. „Hún byrj- aði í kórnum fjórum mánuðum á undan mér, svo kenndi ég henni í Vogaskóla, hún var þá sextán og ég átján.“ Kennslan skemmtileg Jón segist strax hafa fundið sig mjög vel í kennslu og kórstjórn. „Ég byrjaði strax aðeins að tuska kórinn þegar ég tók við honum. Kórinn var eins og hann gerðist þá, mikið af eldra fólki. Þá tíðk- aðist að fólk fékk greitt fyrir að vera í kirkjukór, eina upphæð á ári. Vegna þess að upphæðin var föst þá var andstaða við að stækka kórana. En svo fengum við fleira fólk inn og yngri stjórn og það var ákveðið að verja upphæðinni til þess að styrkja starf kórsins.“ Það tókst vel sem kunnugt er enda hefur Langholtskirkjukór um ára- bil verið meðal fremstu tónleika- kóra landsins. „Nú er það meira að segja orðin hálfgerð stefna kórsins að einsöngvarar komi úr kórnum. Sú verður til dæmis raunin á vor- tónleikum kórsins í maí,“ segir Jón og bætir við að stór hluti kórfélaga hafi „alist upp“ í Langholtskirkju, vaxið og dafnað í barnakórum kirkjunnar. Þess má geta að eftir að hafa lokið einleikaraprófi í org- elleik hefur Jón tvisvar nýtt tæki- færi til frekari menntunar, eitt ár var hann í framhaldsnámi í kór- stjórn og orgelleik í München og svo nam hann í Vínarborg eftir tíu ára vinnu við kennslu. En eins og áður sagði starfaði Jón lengi sem kennari meðfram vinnu sinni í Langholtskirkju. Hann segir það hafa verið afar gefandi. „Ég fann mig alltaf mjög vel í að vinna með ungu fólki og það gekk vel. Tónmenntatímarnir eins og það hét voru með vinsæl- ustu greinum í Árbæjarskóla þó ég segi sjálfur frá. Ég sá alltaf rosa- lega eftir því að hætta í Árbæjar- skóla sem ég gerði þegar ég fékk fullt starf hér í kirkjunni,“ segir Jón sem kenndi í Árbæjarskóla til ársins 1982. Æfir fyrir Bjarkartónleika Síðan þá hefur hann verið lífið og sálin í öflugu tónlistarstarfi í Langholtskirkju. Frá árinu 1990 hafa barnakórar og kórskóli bæst við kirkjukórinn og var síðasta viðbótin Graduale nobili, kór fyrir stúlkur sem vaxnar eru upp úr Graduali futuri kórnum. Jón hand- velur í kórinn sem sinnir metn- aðarfullum verkefnum og ekki öllum jafn fyrirsjáanlegum. „Tón- listin tekur oft óvæntan snúning. Ég fékk símtal frá Björk síðasta sumar þegar ég var nýkomin með þær heim úr kórakeppni í Wales. Björk hafði heyrt af því í útvarp- inu og hringdi í mig og falaðist eftir samstarfi. Ég sagði bara já, og svo voru æfingar með Björk á haustmánuðum. Þetta hefur reyndar verið mikil vinna, tónlist Bjarkar er mjög krefjandi, þessar stelpur sem eru mjög vanar hafa alveg þurft að setja í lága drifið,“ segir Jón og bætir við að mánað- arferð til Manchester með Björk sé fram undan. „Við komum fram á sex tónleikum með henni þar og einum í London, þetta er mikið ævintýri.“ Jón á sér ýmis önnur hugðarefni en tónlist. „Ég byrja alla morgna á því að moka skít, er með hest- hús í Garðabæ. Og ég er svo mikill Ég byrja alla morgna á því að moka skít, er með hesthús í Garðabæ. Og ég er svo mikill sveitamaður í mér að ef ég kemst ekki út úr bænum í viku þá finnst mér ég vera að kafna. Alltaf gaman að mæta í vinnuna Eldhuginn Jón Stefánsson hefur verið lífið og sálin í öflugu tónlistarstarfi Langholtskirkju frá unga aldri. Sigríður Björg Tómasdóttir hitti Jón á heima- velli í Langholtskirkju og ræddi um tónlist og ástríðuna fyrir að miðla henni en Jón hlaut nýverið Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins í flokknum frá kyn- slóð til kynslóðar fyrir tónlistarstarf sitt með börnum og unglingum. Söngstarfið í Langholtskirkju hefst við ungan aldur. Söngelskir krakkar geta mætt í krúttakórinn svonefnda sem tekur við börnum frá fjögurra ára aldri. „Það má segja að kórastarf í skólum hafi hrunið í kjölfar mis- heppnaðra samninga við tónmenntakennara um 1990. Kirkjan sá sér þá leik á borði að efla kórastarf og ég var spurður hvort ég væri til í að setja á laggirnar barnakór í Langholtskirkju. Ég sagðist vera til ef ég fengi að ráða ferðinni og frá upphafi ákváðum við að setja á fót kór- skóla fyrir börn þar sem aldurstakmarkið væri sjö ár. Nokkrum árum síðar kom krúttakórinn til sögunnar.“ Barna- og unglingastarfið hefur svo haldið áfram að þróast og nú eru starfandi krúttakórinn, Gradualekór- inn og Graduale futuri. Eftir átján ára aldur er mögu- leiki fyrir 24 góðar söngkonur að komast inn í Graduale nobili sem Jón handvelur inn í. „Það er mjög gefandi að fylgjast með stelpunum frá unga aldri,“ segir Jón. KÓRASTARF FYRIR BÖRN FRÁ FJÖGURRA ÁRA ALDRI sveitamaður í mér að ef ég kemst ekki út úr bænum í viku þá finnst mér ég vera að kafna,“ segir Jón sem fer á rjúpu á veturna og veiðir í vötnum sumar sem vetur. „Ég á yfirleitt tugi kílóa af reyktum sil- ungi eftir sumarið. Svo förum við mikið norður, fjölskyldan á enn Voga í Mývatnssveit, æskuheim- ili mitt.“ Tónlistin skipar þó fyrsta sætið. „Einhvern veginn hef ég verið teymdur áfram hingað, af örlög- um eða hverju sem það kallast. Og JÓN Í LANGHOLTSKIRKJU Tók við starfi organista árið 1964.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.