Fréttablaðið - 30.04.2011, Page 35
Margir hafa spurt hvort aðstoð við illa stadda geti ekki
falið í sér eitthvað meira en að afhenda mat í poka? Ný
nálgun í mataraðstoð er svar okkar hjá Hjálparstarfi
kirkjunnar. Með því að velja kortaleiðina sem við köllum
svo, viljum við mæta kröfum samtímans um að fólk, sem
býr við þröngan kost og þarf aðstoð, fái að velja sjálft
hvað það kaupir í matinn og umfram allt, að það þurfi
ekki að líða frekara skipbrot með því að bíða í röð eftir
hjálpinni. Með breytingunum erum líka að læra af
öðrum þjóðum hvernig best er að veita aðstoð. Aðeins
í Osló er mat úthlutað eins og tíðkast hefur hér á landi,
hvergi annarsstaðar í þeim löndum sem við viljum bera
okkur saman við. Með breytingunum á mataraðstoðinni
nú viljum við líka efla ráðgjöf og bjóða upp á nýjungar
með fjármála- og fjölskylduráðgjöf. Það er auðveld-ara
að koma með óopnuð reikninga- og innheimtuumslögin
til okkar en til bankanna. Sérfræðingur í fjölskyldu-
ráðgjöf mun geta farið dýpra í málin en félagsráð-
gjafar okkar geta gert í stuttum viðtölum. Af reynslu
undanfarinna ára vitum við mjög vel hvar skórinn
kreppir hjá fólki. Við teljum að með þessari nýju nálgun
getum við hjálpað fólki skrefi lengra í lífinu. Ég vil
hvetja alla til að taka þátt í söfnun Hjálparstarfsins
sem nú stendur yfir og greiða valgreiðslu sem bíður
í heimabankanum eða greiða greiðsluseðil sem eldri en
65 ára fengu. Allt sem kemur inn rennur til innanland-
saðstoðar. Góður stuðningur ykkar mun gera okkur
kleift að gera enn betur.
Vilborg Oddsdóttir,
félagráðgjafi Hjálparstarfs kirkjunnar
Meira en matur í poka
Ný nálgun við
mataraðstoð
Margt smátt ...
Mynd: Þorkell Þorkelsson
Hjálparstarf kirkjunnar ætlar að hverfa frá
matargjöfum í poka og veita í staðinn barnafólki
mataraðstoð með inneignarkortum í verslunum.
Það er svar við kalli samfélagsins og þeirra sem
þiggja mataraðstoð. Áfram fá allir viðtal við
félagsráðgjafa til að leita heildstæðari og
varanlegri lausna á einstaklingsbundnum vanda.
Hjálparstarf kirkjunnar býður fjölbreyttan
stuðning meðal annars til tómstunda og skóla-
göngu barna og unglinga, til lyfjakaupa og
félagslega ráðgjöf.
Með því að styðja innanlandsaðstoð Hjálparstarfs
kirkjunnar hjálpar þú til sjálfshjálpar.