Fréttablaðið - 30.04.2011, Page 42
heimili&hönnun2
● Forsíðumynd: Aðsend mynd af innsetningu Hafsteins
Júlíussonar á hönnunarsýningu í Mílanó. Útgáfufélag:
365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, s. 512 5000
Ritstjóri: Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
Auglýsingar: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir s. 512
5462 Útlitshönnuður: Sæmundur Freyr Árnason sfa@
frettabladid.is.
Allt samkvæmt bókinni
Sigríður Heimisdóttir fjallar um útskriftarsýningu
Listaháskóla Íslands í Hafnarhúsi. SÍÐA 2
heimili&
hönnun
SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM HÍBÝLI
apríl 2011
Samið í eik
Vífill Magnússon
arkitekt sýnir hús-
gögn úr eigin
smiðju í anddyri
Salarins í Kópavogi.
Hann smíðar úr eik
sem er rist niður í
sprota og sveigð á
náttúrulegan hátt.
SÍÐA 6
OFURBÝLI
Í MÍLANÓ
Hafsteinn Júlíusson setti upp inn setn ingu
á hönnunarsýningu í Mílanó í tilefni af
50 ára afmæli hennar. BLS. 4
CANDY AFSLÁTTARDAGAR
Hafnarhúsið er óneitanlega eitt
skemmtilegasta safn höfuðborg-
arinnar og arkitektúr safnsins
frábær. Í raun svo góður að hann
næstum stelur athyglinni frá
verkum sem til sýnis eru.
Útskriftarsýningar LHÍ hafa
verið haldnar þarna undanfarin
ár og sýningin í ár var einmitt ná-
kvæmlega eins og ég hafði ímynd-
að mér að hún yrði, enda uppsetn-
ing mjög keimlík fyrri sýningum.
Þá einblíndi ég aðallega á vöru-
hönnunarhluta sýningarinnar enda
er það sá hluti sem ég fór sérstak-
lega að skoða.
Hlutirnir eru sléttir og felldir
og verkefnin unnin samkvæmt
bókinni en það sem vakti athygli
mína var sérstaklega tvennt.
Annað var að hugmyndirnar
voru ekki sérstaklega þróaðar,
um hugmyndir eða „konsept“ var
að ræða en lítið fór fyrir vöruþró-
un eða úrvinnslu hugmyndanna.
Slík verkefni passa frekar
fyrsta eða annars árs nemum en
ekki lokaverkefnum af þriðja ári
vöruhönnunar.
Hitt sem vakti athygli mína
var að ekki var unnið sérstak-
lega með íslensk áhrif eða ein-
kenni. Undantekning var þó úti-
kollar Helgu R. Jósepsdóttur, þar
sem heita vatnið okkar er notað á
skemmtilegan hátt. Ekki var held-
ur unnið sérstaklega með um-
hverfisáherslur eða önnur brýn
efnistök sem eru meðal helstu
verkefna vöruhönnuða í dag.
En þessi niðurstaða kemur ekki
sérstaklega á óvart og ekki er við
nemendur að sakast. Einkenni
Listaháskólans að mínu mati er að
þar er einblínt mun meira á list-
rænt hugmyndaferli og tímanum
síður eytt í vöruþróunarferlið.
Áhugi fyrir hönnun er gífur-
lega mikill í dag og fjöldinn allur
af ungu fólki með hönnunarmennt-
un útskrifast árlega. Í Evrópu er
sá fjöldi 50.000 manns og í ljósi
þess er mjög mikilvægt að íslensk-
ir hönnuðir finni sér sína sérstöðu
til að mynda sér vettvang. Íslensk-
ir fatahönnuðir eru komnir vel á
veg og er óskandi að vöruhönnuðir
nái sömu sterku einkennum.
Til þess þarf heilbrigðan
skammt af sjálfstrausti og
eilítið meiri kröfur hvað varðar
vöruþróun og frágang.
Það kemur vonandi með kom-
andi kynslóðum vöruhönnuða
Listaháskólans.
Ákaflega slétt og fellt
● Í Hafnarhúsinu stendur nú yfir útskriftarsýning nema frá Listaháskóla Íslands úr
myndlistardeild og hönnunar- og arkitektúrdeild.
Upphleypt munstur í ljósum Unnar Val-
dísar Kristjánsdóttur myndar nostalgíu
og fallega stemningu.
Bubblumublur kallast þessir volgu kollar fyrir kaldar aðstæður.
Sögulegt samband silfurs og matar-
venja hefðarfólks er krufið í útskriftar-
verkefni Ingu Dóru Jóhannsdóttur.
GÓÐ KAUP FYRIR... vegginn
Klukka, til að mynda á eld-
húsvegginn, á sérstaklega
góðu verði. Verð: 495
krónur. ILVA, Korputorgi.
Bryndís Bolladóttir á heiðurinn af
þessum dásamlegu snögum sem
Normann Copenhagen hefur tekið í
framleiðslu. Verð: 4.900 krónur. Epal,
Skeifunni 6.
Rauðir Umbra-rammar sem hægt
er að dreifa úr á vegginn. Verð: 3.980
krónur. Tekk-Company, Holtagörðum.
Sigga Heimis
iðnhönnuður
skrifar í Heimili&hönnun
sigga@siggaheimis.is
LÚR - BETRI HVÍLD
Eigum til á lager Slide Back rúm
tilbúin til afgreiðslu strax
www.lur.is
10:00 – 18:00mánfös
Opið:
lau 11:00 – 16:00
EMOTION sturtuhaus
kringlóttur 10 cm verð kr. 3.990.-
SPRING sturtuhaus
kringlóttur 20 cm verð kr. 9.450.-
ESPRITE CARRÉ
ferkantaður 20 cm verð kr. 12.400.-
STURTUHAUSAR Í ÚRVALI
Gæði,þjónusta og ábyrgð- það er TENGI
SKINNY handsturtuhaus
verð kr. 1.990.-