Fréttablaðið - 30.04.2011, Blaðsíða 52
30. apríl 2011 LAUGARDAGUR6
Grensásvegi 9 •108 Reykjavík •Sími 528 1500 •isor@isor.is www.isor.is
Starfið felst í umsjón með rekstri á rafeinda- og
tölvubúnaði, viðhaldi, þróun og endurbótum
á mælitækjum sem notuð eru til jarðhitaleitar
og borholu- og eftirlitsmælinga.
Rafmagnsverkfræðingur
eða tæknifræðingur
á sviði borholumælinga- og mælitækni.
•
ÍSOR leggur áherslu á að auka hlutfall kvenna
og yngra fólks í starfsliði sínu.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil þurfa
að berast Guðnýju Þórsdóttur, starfsmannastjóra ÍSOR,
gudny@isor.is, eigi síðar en 19. maí 2011.
Öllum umsóknum verður svarað.
Nánari upplýsingar um starfið, menntunar- og
hæfniskröfur má sjá á vef ÍSOR: www.isor.is
ÍSOR er eitt stærsta og öflugasta fyrirtæki heims í rannsóknum
og jarðvísindaþjónustu við jarðhitaiðnaðinn.
Sjúkraliðar - Hópstjórar
Okkur á Grund langar að bæta við þann góða hóp
sjúkraliða sem þegar er starfandi við heimilið.
Reynsla af öldrunarhjúkrun er æskileg.
Starf hópstjóra á Grund er sjálfstætt og fjölbreytt. Hjúkrunar-
fræðingur er alltaf í húsinu til ráðgjafar og stuðnings.
Einnig vantar okkur sjúkraliða á morgun, kvöld-og
helgarvaktir í sumarafleysingar.
Hjúkrunarfræðingur sumarafleysing
Óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðing til sumarafleysinga
á húsvakt kvöld-og næturvaktir.
Nánari upplýsingar um störfin, starfshlutfall, vaktir og launakjör
veitir Sigrún Faulk hjúkrunarforstjóri, virka daga
frá klukkan 9.00 - 16.00 í síma 530 6116.
Á Grund búa 200 heimilismenn þar sem trúnaður, traust og
umhyggja eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð áhersla á
góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi.
www.grund.is
Okkur vantar þjón,
uppvaskara og
garðyrkjumann!
DILL restaurant í Reykjavík leitar að:
þjóni til framtíðarstarfa.Viðkomandi þarf að
hafa mikinn áhuga á mat og víni, vera
reglusamur/söm, snyrtileg/ur og umfram
allt skemmtileg/ur. Sveinspróf í framreiðslu
er kostur en ekki skilyrði.
fólki í hlutastarf við uppþvott á kvöldin og
um helgar
fjölhæfri manneskju sem getur sinnt garðyrkju
og léttri matreiðslu í sumar
Áhugasamir eru beðnir um að senda ferilskrá á
oli@dillrestaurant.is
DILL restaurant er veitingahús í hæsta gæðaflokki, staðsett í Vatnsmýrinni í Reykjavík,
með áherslu á staðbundið hráefni og nýnorræna matreiðslu. DILL restaurant hefur
fengið margar viðurkenningar á þeim tveimur árum sem það hefur verið opið, meðal
annars verið tilnefnt tvisvar sinnum sem besta veitingahús á Norðurlöndunum. Á DILL
restaurant er settur saman nýr matseðill í hverri viku eftir því hvað náttúran hefur upp
á að bjóða og mikil áhersla lögð á að finna rétt vín með hverjum rétti.
Vantar þig vinnu
í Noregi?
Verto as leitar nú að smiðum til vinnu í Noregi.
Viðkomandi þarf að vera með sveins- eða meistara-
bréf og geta hafið störf sem fyrst. Einnig er nauðsyn-
legt að viðkomandi geti tjáð sig á ensku og/eða
einhverju Norðurlandamáli.
Áhugasamir sendi tölvupóst, með starfsferilskrá
og tveimur meðmælendum, á netfangið
sigurdur@verto.no eða hafi samband við Sigurð í
síma 897 9012.
Einnig er hægt að fylgjast með lausum stöðum á
www.verto.no og á facebook síðunni okkar
www.facebook.com/Verto.Is
Grunnskólakennarar
LAUSAR KENNARASTÖÐUR VIÐ
GRUNNSKÓLA ÞÓRSHAFNAR
Okkur vantar fl eiri metnaðarfulla, hugmyndaríka og kraftmikla
kennara til að taka þátt í jákvæðu og uppbyggilegu skólastarfi á
Þórshöfn.
Í Grunnskóla Þórshafnar eru um 80 nemendur í hæfi lega stórum bekkjardeild-
um. Á Þórshöfn búa um 400 manns í fjölskylduvænu umhverfi . Gott og ódýrt
íbúðarhúsnæði er til staðar og öll almenn þjónusta. Á staðnum er góður leikskóli
og glæsileg íþróttamiðstöð ásamt sundlaug. Samgöngur eru góðar, m.a. fl ug
fi mm daga vikunnar til Reykjavíkur um Akureyri.
Lausar eru til umsóknar stöður umsjónarkennara
og tónmenntakennara.
Nánari upplýsingar veitir Arnfríður Aðalsteinsdóttir, skólastjóri
í símum 468 1164 og 899 3480, skolastjori@thorshafnarskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 15. maí.
Lagadeild Háskólans í Reykjavík leitar að tveimur öflugum starfsmönnum til að sinna
kennslu og rannsóknum annars vegar á sviði fjármunaréttar og hins vegar á sviði auðlinda-
og umhverfisréttar.
HÆFNISKRÖFUR
Doktors- eða fullnaðarpróf í lögfræði.
Reynsla af kennslu og rannsóknum.
Reynsla úr atvinnulífinu.
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Ráðið verður í stöður sérfræðings, lektors, dósents eða prófessors út frá hæfismati.
Nánari upplýsingar um störfin veita Guðmundur Sigurðsson, deildarforseti lagadeildar, s. 825 6407,
gudmundur@hr.is og Jóna K. Kristinsdóttir, skrifstofustjóri lagadeildar, s. 599 6407, jonak@hr.is.
Umsóknir ásamt starfsferilskrá, yfirliti yfir rannsóknir og reynslu af kennslu og upplýsingum frá umsagnaraðila,
skal senda á netfangið jonak@hr.is fyrir 20. maí 2011.
Allar fyrirspurnir og umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.
Lagadeild Háskólans í Reykjavík útskrifar árlega yfir 100 nemendur úr grunnnámi og meistaranámi í lögum.
Þá býður deildin upp á doktorsnám í lögfræði. Markmið lagadeildar er að bjóða nemendum upp á krefjandi
nám í skapandi umhverfi. Lögð er mikil áhersla á gæði náms, rannsóknir, þjónustu og tengsl við atvinnulífið.
VILT ÞÚ GANGA TIL LIÐS VIÐ
LAGADEILD HÁSKÓLANS Í REYKJAVÍK?
www.hr.is