Fréttablaðið - 30.04.2011, Page 56
30. apríl 2011 LAUGARDAGUR10
Útboð
Til sölu
Umsóknir um byggðakvóta
Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiði-
árinu 2010/2011 sbr. reglugerð um úthlutun byggða-
kvóta til fiskiskipa nr. 999, 17. desember 2010
Samkvæmt ákvörðun Sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðuneytisins, endurauglýsir Fiskistofa eftir umsóknum
um byggðakvóta fyrir neðanskráð byggðarlag.
Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunar-
reglna í byggðalaginu sbr. auglýsingu nr. 414/2011 í
Stjórnartíðindum.
Vesturbyggð (Bíldudalur)
Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að
finna á heimasíðu stofnunarinnar (fiskistofa.is), og þar eru
ofangreindar reglur einnig aðgengilegar.
Umsóknarfrestur er til og með 13. maí 2011.
Áður innsendar umsóknir um byggðakvóta fyrir framan-
greind byggðarlög vegna fiskveiðiársins 2010/2011 eru
gildar.
Fiskistofa, 29. apríl 2011.
Frá Orlofsnefnd
húsmæðra í Reykjavík
Laus sæti í
orlofsferðir 2011
Suður England 10.-14. júní örfá sæti laus
Austfirðir 8.-11. Júlí
Dagsferð um Suðurland 23. júní
Dagsferð um Snæfellsnes 14. júlí
Akureyri 14.-16. okt.
Aðventuferð Brussel/Brügge 2.-6. des.
Í lögum um orlof húsmæðra segir svo:
„Sérhver kona, sem veitir eða hefur veitt heimili forstöðu
án launagreiðslu fyrir það starf, á rétt á að sækja um orlof”.
Stjórnin
Netfang: orlofh@simnet.is
Heimasíða: orlofrvk.123.is
Innkaupaskrifstofa Reykjavíkurborgar
er flutt í Höfðatorg, Borgartúni 12-14.
Frá og með 29. apríl 2011 verða útboðsgögn seld / afhent
í þjónustuveri Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14,
105 Reykjavík.
Framvegis verða tilboð opnuð í Borgartúni 12-14.
INNKAUPASKRIFSTOFA
ER FLUTT
Aðalfundur
Félags áhugafólks um Downs heilkenni
Aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtudaginn
5. maí n.k. kl. 20:00 í húsnæði Sjónarhóls,
Háaleitisbraut 13, 4h.
Dagskrá fundar: Venjuleg aðalfundar störf
Önnur mál
Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum fara fram umræður/
hugmyndasmíð um hvernig félagið megi þroskast og þróast.
Við hvetjum félagsmenn til að fjölmenna, kynna sér starfsemi
félagsins og taka sameiginlegar ákvarðanir um þau málefni sem
eru framundan hjá félaginu.
Við þurfum sífellt að vera vakandi fyrir réttarstöðu einstaklinga
með Downs-heilkenni í samfélaginu. Hver þróunin verður ræðst
af viðhorfi, vinnu okkar foreldra og hagsmunasamtaka, því er
áríðandi að sem flestir taki þátt í félagsstarfinu.
Vonumst til að sjá sem flesta,
Stjórnin
Útboð nr. 20045
Laxá II – Endurnýjun
aðrennslispípu
Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í endurnýjun á
aðrennslispípu Laxár II samkvæmt útboðsgögnum
nr. 20045.
Verki er skipt í tvo áfanga: Annars vegar felst verkið
í að endurnýja núverandi aðrennslispípu við Laxá
II milli inntaksstíflu og jöfnunargeymis, á um 342
m kafla. Núverandi pípa er ø4,0 m víð trépípa frá
árinu 1952 og skal verktaki fjarlægja hana og leggja
nýja trefjaplastpípu, sem verkkaupi leggur til, í
sömu legu og ganga frá henni að fullu.
Hinsvegar felst verk í endurbótum á núverandi
jöfnunargeymi stöðvar, sandblæstri og málun,
ásamt einangrun og klæðningu á ytra byrði og
smíði og uppsetningu þaks á geyminn.
Áætlaður verktími er júní til og með september 2011.
Útboðsgögn verða afhent í móttöku Landsvirkjunar,
Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, gegn óafturkræfu
gjaldi að upphæð kr. 5.000 fyrir hvert eintak, frá og
með þriðjudeginum 3. maí 2011.
Tilboðum skal skila á sama stað fyrir klukkan
11:00 fimmtudaginn 19. maí 2011 þar sem þau
verða opnuð og lesin upp að viðstöddum þeim
bjóðendum sem þess óska.
F.h. Framkvæmda- og eignasviðs
Reykjavíkurborgar:
Malbiksviðgerðir 2011.
Útboðsgögn verða seld á kr. 3.000.- frá kl. 10:00 þriðju-
daginn 3. maí 2011, í þjónustuveri Reykjavíkurborgar
Borgartúni 12-14. Opnun tilboða fimmtudaginn 12. maí 2011
kl. 11:00, í Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík. Tilboðum skal
skilað í þjónustuver Reykjavíkurborgar.
12609
Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod
Útboð-15033
– Notuð hjólaskófl a
fyrir Vegagerðina
Ríkiskaup, fyrir hönd Vegagerðarinnar, óska eftir
tilboðum í eina notaða, vökvaskipta hjólaskófl u, u.þ.b.
12 tonn að stærð og með a.m.k. 120 hestafl a vél.
Hámarksaldur er árgerð 2007 og notkun 3000 klst.
Hjólaskófl an er aðallega ætluð til notkunar með
vegsóp, snjóblásara og til moksturs.
Afhending skal vera fyrir 15. ágúst 2011. Nánari up-
plýsingar má fi nna í útboðsgögnum sem eru rafræn og
aðgengileg á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is.
Opnunartími tilboða er 24. maí kl.11:00 hjá Ríkiskaup-
um, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík, að viðstöddum
þeim bjóðendum sem þess óska.
Auglýsing um framlagningu
kjörskrár vegna vígslubiskups-
kosningar í Skálholtsumdæmi
2011
Kjörstjórn við vígslubiskupskosningu hefur, í sam-
ræmi við starfsreglur um kosningu biskups Íslands og
vígslubiskupa nr. 818/2000, með síðari breytingum,
samið kjörskrá vegna vígslubiskupskjörs í Skálholts-
umdæmi. Á kjörskrá eru 149.
Kjörskráin, sem miðast við 1. maí 2011, liggur
frammi til sýnis á Biskupsstofu, Laugavegi 31,
Reykjavík, og hjá próföstum í Skálholtsumdæmi til
20. maí. Hún er enn fremur birt á vef þjóðkirkjunnar
(www.kirkjan.is/vigslubiskupskjor).
Kærur til breytinga á kjörskránni þurfa að hafa borist
kjörstjórn á Biskupsstofu fyrir kl. 16:00, 20. maí
2011, eða hafa verið póstlagðar í síðasta lagi þann
dag.
Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. ofangreindra starfsreglna
er þeim sem hafa kosningarétt, heimilt að tilnefna
kjörgengan mann sem vígslubiskupsefni. Kjörgengur
er hver guðfræðikandídat sem fullnægir skilyrðum til
þess að vera skipaður prestur í þjóðkirkjunni. Til að
tilnefning sé gild þurfa 10 af hundraði kosningabærra
manna að lágmarki að standa að henni. Óheimilt er
þó fleirum en 25 af hundraði kosningabærra manna
að standa að tilnefningu vígslubiskupsefnis. Enginn
má tilnefna nema einn mann.
Tilnefningar ásamt skriflegu samþykki hlutaðeigandi
skulu hafa borist kjörstjórn með sannanlegum hætti á
Biskupsstofu fyrir kl. 16:00, 20. júní 2011, eða hafa
verið póstlagðar í síðasta lagi þann dag.
Reykjavík, 28. apríl 2011
Gísli Baldur Garðarsson,
formaður kjörstjórnar