Fréttablaðið - 30.04.2011, Side 66

Fréttablaðið - 30.04.2011, Side 66
ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 Fossvogi Sími 551 1266 www.utfor.is REYNSLA UMHYGGJA TRAUST Önnumst alla þætti útfararinnar Þegar andlát ber að höndum Arnór L. Pálsson framkvæmdastjóri Ísleifur Jónsson útfararstjóri Frímann Andrésson útfararþjónusta Svafar Magnússon útfararþjónusta Hugrún Jónsdóttir útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson útfararþjónusta Þorsteinn Elísson útfararþjónusta Ellert Ingason útfararþjónusta Stundum er sagt að tækifærin leynist í kreppunni. Það er rétt upp að vissu marki. Ef við berum gæfu til þess að læra af erfiðleikunum geta jafnvel dimmustu öngstræti breyst í hringtorg með nýjum leiðum. Kreppur geta þó hæglega dýpkað. Mörg dæmi eru um það í sögunni að efnahagssamdráttur hafi leitt af sér vistkreppu, landflótta og aðrar ógöngur. Kreppur eru því prófsteinn á einstaklinga og samfélög. Þar sem innviðir eru sterkir geta þær virkað eins og leiðrétting frá rangri stefnu. Að öðrum kosti er hætta á ferðum, það sýna dæmin. Enn alvarlegri myndir Nú er ástandið suður með sjó með þeim hætti, að fjórði hver maður er án atvinnu, þá eru þeir teknir saman sem búa við örorku, eru á framfæri sveitarfélaga eða eru atvinnulausir. Stór hópur fólks hefur verið án atvinnu frá því skömmu eftir hrun svo við því má búast að ástand þetta fari að taka á sig enn alvarlegri myndir fyrir sálarlíf fólks og andlega líðan. Þetta er ekki lítil prófraun og ef marka má ofansagt getur þessi samdráttur, ef illa tekst til versnað enn og haft varanleg áhrif á þetta svæði. Allir þurfa því að leggjast á eitt við að breyta stöðunni til batnaðar. Sameinaðir kraftar til góðra verka Velferðarsjóður á Suðurnesjum er eitt dæmið af mörgum um það hvernig samfélagið á þessu svæði hefur spyrnt við fótum gegn þessari þróun. Sjálfboðaliðar í Keflavíkurkirkju lögðu grunninn að sjóðnum í október 2008. Hugmyndin var sú að veita skapandi kröftum á svæðinu í ákveðinn farveg þar sem hópar og einstaklingar gætu sameinað krafta sína til góðra verka. Fljótlega kom í ljós að þessi sjóður átti eftir að reynast tækifæri fyrir fólk til að hafa áhrif og láta til sín taka í aðstæðum sem að öðru leyti höfðu sett okkur í spor þolenda. Á aðventunni söfnuðust 12 milljónir í sjóðinn og þegar þessi orð eru rituð hafa yfir 37 milljónir safnast, allt með frjálsum framlögum einstaklinga og hópa. Markmið sjóðsins hefur frá upphafi verið að létta byrðum af fólki sem á undir högg að sækja á þessu svæði og hefur yfir 28 milljónum verið veitt úr sjóðnum. Náið samstarf við Hjálparstarf kirkjunnar tryggir fagmennsku við úthlutanir. Rík áhersla er lögð á að halda fyllsta trúnað við skjólstæðinga en jafnframt er leitast við að meta vandlega fjárþörf og aðstæður fólks. Hringtorgið að verða til Velferðarsjóðurinn er dæmi um verkefni sem gefið hefur fólki kost á að sýna kærleika sinn í verki. Hann á rætur að rekja til sjálfboðaliðastarfs og sá þáttur hefur verið áberandi við fjáröflunina sem er að mestu leyti unnin af sjálfboðaliðum, bæði félagasamtökum og hópum sem starfa í tengslum við Keflavíkurkirkju. Framtak þeirra hefur aukið okkur bjartsýni og nú stendur til að halda áfram með þetta uppbygging- arstarf. Næstu skref í starfsemi sjóðsins verða fólgin í auknum félagslegum stuðningi við atvinnuleitendur á svæðinu með það að marki að efla þeim styrk og dáð til þess að takast á við ný verkefni á komandi tímum. Með því móti aukum við líkurnar á því að okkur takist að finna nýjar leiðir til farsældar á þessu svæði. Sr. Skúli S. Ólafsson, sóknarprestur í Keflavíkurkirkju Gerendur og þolendur Velferðarsjóður á Suðurnesjum Gerðu garðverkin skemmtilegri Þýsk gæðatæki sem auðvelda þér garðvinnuna Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · Fax 568-0215 · www.rafver.is F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð Keðjusagir Rafmagns- eða bensíndrifnar Hekkklippur Rafmagns- eða bensíndrifnar Úðabrúsar 1-20 ltr. Með og án þrýstijafnara Sláttuorf Rafmagns- eða bensíndrifin Garðsláttuvélar Rafmagns- eða bensíndrifnar Sláttutraktorar Ýmsar útfærslur Einnig mosatætarar, jarðvegstætarar, laufblásarar, kantskerar Frá vinstir: Hjördís Kristinsdóttir umsjónarmaður og prestar í Keflavíkurkirkju: Erla Guðmundsdóttir, Skúli S. Ólafsson og Sigfús Baldvin Ingvason. (mynd: Þorkell Þorkelsson) 8 – Margt smátt ...
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.