Fréttablaðið - 30.04.2011, Page 78

Fréttablaðið - 30.04.2011, Page 78
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. timamot@frettabladid.is Nemar í ritlist og myndlist við Háskóla Íslands verða gestir í stofunni á Gljúfra- steini á morgun, 1. maí. Þar kynna þeir samstarf sitt og lesa upp úr myndskreyttum sögum klukkan 16. Birna Dís Eiðsdóttir, Freyja Eilíf Logadóttir og Sigmundur Breiðfjörð Þor- geirsson kynna verk um vélmennið M.C. Tungla sem flakkar um fortíðina. Esther Ýr Þorvaldsdótt- ir, Bergrún Íris Sævars- dóttir og Orri Snær Karls- son lesa og sýna verk um froskastrákinn Davíð sem leitar að fjársjóði ættföður síns. Hanna Aniela Frelek og Kristján Már Gunnars- son sýna myndskreytta bók með svarthvítum teikning- um við stutt nútímaævintýri og Hlín Ólafsdóttir og Ívar Marrow leika sér með sam- spil texta og mynda. Heimur í myndum TJÁNING Mynd úr verki eftir Hlín Ólafsdóttur og Ívar Marrow. Tvær sýningar verða opn- aðar í Listasafni Reykjavík- ur – Ásmundarsafni í dag klukkan 16. Önnur varpar ljósi á lítt þekkt en ríkulegt safn teikninga eftir Ásmund Sveinsson en hin er innsetn- ing í kúlunni þar sem hulunni er svipt af tilraunum Louis Pasteur um sjálfskviknun lífs. Önnur sýningin nefnist Frá hugmynd að höggmynd – Teikningar Ásmundar Sveinssonar. Þar verður veitt innsýn í ríkulegt safn teikn- inga sem myndhöggvarinn Ásmundur Sveinsson lét eftir sig. Sýningarstjóri er Eiríkur Þorláksson listfræðingur. Hin sýningin nefnist Magnús Árnason – Homage og er innsetning Magnúsar Árnasonar í kúlu Ásmund- arsafns þar sem er að finna endurgerð af tilraun Pasteurs, en þróunin verð- ur áhorfendum sýnileg yfir sýningartímann. Með verk- inu reynir listamaðurinn að enduruppgötva „sannleika“ og fagurfræðileg gildi vís- indanna, sem hafa jafnvel fallið í gleymsku. Á morgun klukkan 14 munu Magnús Árnason og dr. Guðmundur Eggertsson líffræðingur ræða um inn- setninguna í kúlu Ásmundar- safns. Teikningar og innsetning Benedikt Benediktsson kennari, Þórðarsveig 6, Reykjavík, er látinn. Útförin fer fram frá Langholtskirkju þriðjudaginn 10. maí kl. 13.00. Systkini hins látna. Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Gunnar Hafsteinn Bjarnason verkfræðingur, Látraströnd 3, Seltjarnarnesi, lést á Sólvangi í Hafnarfirði þriðjudaginn 19. apríl. Útför fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 3. maí kl. 13.00. Magnea Rósa Tómasdóttir Sigríður Erla Gunnarsdóttir Áslaug María Gunnarsdóttir Darri Gunnarsson Inga Gottskálksdóttir Ívar Karl, Ægir Sindri, Óðinn Dagur, Iða Brá, Harpa Lind, Birta Hrund, Gunnar Dagur, Rósa Líf, Hilda Sól og Gottskálk Darri. Ástkær móðir okkar, Vilborg Björnsdóttir áður til heimilis að Hjallavegi 1c, Njarðvík, andaðist á Dvalarheimilinu Hulduhlíð á Eskifirði, laugardaginn 23. apríl. Jarðarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, mánudaginn 2. maí kl. 11.00. Ragnar Zophaníasson Birna Zophaníasdóttir Örn Kristinsson Helgi Grétar Kristinsson Unnar Kristinsson Ragnhildur Kristinsdóttir Steinunn Kristinsdóttir Eygló Kristinsdóttir Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Björn Jónsson til heimilis að Hólavegi 32, Sauðárkróki, lést á heilbrigðisstofnun Sauðárkróks þriðjudaginn 26. apríl. Útför mun fara fram í kyrrþey að ósk hins látna. Guðrún Andrésdóttir Unnur Guðný Björnsdóttir Stefán Valdimarsson Jóhanna S. Björnsdóttir Finnur Þór Friðriksson Jón Björnsson Svanhildur Ólafsdóttir Rúnar Páll Björnsson Eyrún Þorvaldsdóttir Birna Guðbjörg Björnsdóttir Björgvin Hauksson afabörn og langafabörn Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma Þóra Guðmundsdóttir frá Bíldsfelli í Grafningi, til heimilis að Bogahlíð 26, Reykjavík, andaðist á Droplaugarstöðum föstudaginn 8. apríl síðastliðinn. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Alúðarþakkir færum við starfsfólki á Droplaugarstöðum fyrir góða umönnun. Fyrir hönd aðstandenda, Ottó Tómas Ólafsson og Arnheiður Björnsdóttir. Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elsku pabba míns, sonar okkar og bróður Boga Eymundssonar Vallarási 2, Reykjavík, sem lést miðvikudaginn 30. mars síðastliðinn. Eymundur Þór Bogason Eymundur Lúthersson Margrét Á. Halldórsdóttir Sigurjón Kristinn Bergsson Katrín Eymundsdóttir Hannes Trausti Skírnisson Eymundur L. Eymundsson Lára Eymundsdóttir Hörður Theódórsson Eydís Elva Eymundsdóttir, frændsystkini og aðrir ástvinir. Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför okkar ástkæru, Guðrúnar K. Karlsdóttur Unufelli 48, sem lést sunnudaginn 3. apríl sl. Sérstakar þakkir til starfsfólks á 3. hæð norður á Hjúkrunarheimilinu Eir. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns, föður, tengdaföður og afa Péturs Guðmundssonar Suðurlandsbraut 58, sem lést 5. apríl. Þökkum einnig öllum þeim sem önnuðust hann í veikindum hans. Steinunn H. Ólafsdóttir Margrét Pétursdóttir Ómar Þór Árnason Sverrir Pétursson Friðgerður Baldvinsdóttir Guðmundur Þór Pétursson Harpa Guðmundsdóttir og barnabörn Gjótuhrauni 8, 220 Hafnarfirði Sími: 571 0400, legsteinar@gmail.com GRANÍT OG LEGSTEINAR Fallegir legsteinar á einstöku verði Frí áletr un Innilegustu þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Ruth Agnete Tryggvason Aðalstræti 24, Ísafirði. Sérstakar þakkir fær Ísafjarðarbær, starfsfólk Fjórðungssjúkrahússins á Ísafirði, vinir hennar og nágrannar fyrir hlýtt og gott viðmót og umönnun. Karlakórnum Erni og öðru frábæru tónlistarfólki eru færðar þakkir fyrir fallegan söng og tónlistarflutning við útförina. Tryggvi, Árni, María og fjölskyldur. Sonur minn og bróðir okkar Hallgrímur Halldórsson frá Melum í Svarfaðardal, er látinn. Útför hans fer fram frá Glerárkirkju mánudaginn 2. maí kl. 13.30. Birna Friðriksdóttir og systkini hins látna. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur vináttu, stuðning og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, fósturföður, tengdaföður, afa og langafa, Jónasar Guðbergs Ragnarssonar hafnsögumanns, Aratúni 16, Garðabæ. Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fyrir einstaka umönnun og hlýju. Marsibil Katrín Guðmundsdóttir Ragnar Jónasson Sólveig Einarsdóttir Ólafur Jónasson Guðmundur Einisson Valgerður Gísladóttir Óðinn Einisson Laufey E. Gunnarsdóttir Björk Einisdóttir Valtýr E. Valtýsson barna- og barnabarnabörn.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.