Fréttablaðið - 23.06.2011, Side 8
23. júní 2011 FIMMTUDAGUR8
EVRÓPUMÁL Ísland tók undir 83
prósent af yfirlýsingum ráðherra-
ráðs ESB um afstöðu sambandsins
til mála víðs vegar um heiminn í
fyrra, að því er fram kemur í 28.
fundafrásögn samninganefndar
Íslands gagnvart ESB.
Fundafrásagnir þessar eru birt-
ar á vef utanríkisráðuneytisins og
fjalla um þau atriði sem samið skal
um í aðildarviðræðunum.
Í téðri frásögn, um utanríkis-,
öryggis- og varnarmál, segir að
afar lítil þörf sé á laga- eða kerfis-
breytingum í þeim málum, komi til
aðildar að ESB. Stefna Íslands sé
enda „í aðalatriðum sambærileg
stefnu ESB.“
Hins vegar myndi Ísland öðlast
við aðild „aðgang að ákvarðanatöku
og stefnumótun í málaflokknum,“
segir þar. Því þyrfti að taka þátt í
ýmsu nefndastarfi og má gera ráð
fyrir að það útheimti fleira starfs-
fólk.
„Aðild að ESB er ekki talin
hafa áhrif á grundvallarsamn-
inga Íslands við önnur ríki á sviði
öryggis- og varnarmála,“ segir þar.
Farið er yfir áherslur Alþingis um
að Ísland verði áfram „herlaust
land og friðsamt“. Einnig að Ísland
eigi ekki að taka þátt í Evrópsku
varnarmálastofnuninni.
Markmið friðargæsluverkefna
ESB sé að styðja við ályktanir Sam-
einuðu þjóðanna. Almennt falli þau
vel að stefnu Íslands og kostnaður
við þau sé valfrjáls.
Utanríkis- og öryggisákvarðanir
ESB þarf að taka einróma og „því
er ekki mögulegt að hefja verkefni
á vegum ESB án samþykkis allra
aðildarríkja,“ segir í frásögninni.
Minnt er á áhættumatsskýrslu
fyrir Ísland frá 2009 þar sem segir
að styrkja beri samstarf við ESB
vegna skipulagðrar glæpastarf-
semi, farsótta, náttúruhamfara og
þess háttar.
ESB-ríki eru skuldbundin til að
standa saman og veita sameigin-
lega aðstoð ef eitt ríkið verður fyrir
hryðjuverkaárás, innrás eða nátt-
úruhamförum. klemens@frettabladid.is
Ísland 83 prósent
sammála Evrópu
Ísland tekur undir flestar yfirlýsingar ESB um utanríkismál. Afar lítil þörf á
laga- eða kerfisbreytingum, komi til aðildar. Sinna þyrfti stefnumótun. Ísland
verði áfram „herlaust land og friðsamt“. Ríkin standa saman ef hamfarir verða.
GÆSLAN Á VAKT Sameiginleg öryggis- og varnarmálastefna ESB gengur aldrei framar
stefnu hvers einstaks aðildarríkis og ekki er gert ráð fyrir sameiginlegum her né her-
skyldu af neinu tagi, segir í fundafrásögn utanríkisráðuneytis. MYND/LANDHELGISGÆSLAN
Grundvallaráherslur ESB á alþjóða-
vettvangi eru eftirfarandi: lýðræði,
virðing fyrir lögum og reglum,
mannréttindi og grundvallarfrelsi,
jafnrétti og samstaða og virðing fyrir
sáttmála Sameinuðu þjóðanna og
alþjóðalögum. Þá er lögð áhersla
á að stuðla að sjálfbærri þróun
með það að markmiði að útrýma
fátækt, vinna að því að afnema
viðskiptahindranir og stuðla að
umhverfisvernd.
- Úr 28. fundafrásögn.
Áherslur ESB
1. Hvaða rithöfundur hlaut blóð-
dropann; glæpasagnaverðlaun
Hins íslenska glæpafélags?
2. Hver er ráðherra innflytjenda-
mála í Danmörku?
3. Hvaða fyrrverandi ráðherra
situr í nýrri stjórn Orkuveitu
Reykjavíkur?
SVÖR
1. Yrsa Sigurðardóttir 2. Sören Pind 3.
Gylfi Magnússon
DANMÖRK Íbúar Kristjaníu hafa ákveð-
ið að kaupa landsvæðið sem „fríríkið“
stendur á og húsin sem á því standa
af danska ríkinu og tryggja með því
óbreytt búsetufyrirkomulag fyrir þá 700
sem þar búa.
Sameignarsjóður íbúanna greiðir
rúmar 62 milljónir danskra króna, um
1.400 milljón krónur íslenskar, og sex
milljónir danskar að auki í leigu ár hvert
fyrir þá hluta svæðisins og húsanna sem
ekki er hægt að selja beint. Þá er í samn-
ingum ákvæði um að hægt sé að kaupa
nýbyggingarrétt á svæðinu fyrir 40
milljónir danskra króna til viðbótar.
Eftir sjö ára þrætur um yfirráð
yfir þessum hluta Kaupmannahafnar
við Kristjánshöfn var ríkinu dæmdur
eignarréttur. Fyrir tæpum fjörutíu
árum flutti hópur ungs fólks inn í yfir-
gefna herstöð og settist þar að. Síðan þá
hefur Kristjanía, sem var áður herstöð,
verið nær óháð yfirvöldum og einn af
helstu ferðamannastöðum Kaupmanna-
hafnar.
Claus Hjort Fredriksen, fjármálaráð-
herra Danmerkur, segist ánægður með
samkomulagið. Kjörin sem ríkið hafi
boði íbúum séu bæði sanngjörn og skyn-
samleg. - þj
Kristjaníubúar fá að kaupa landsvæði og hús af danska ríkinu og tryggja þar með óbreytta búsetu:
Framtíð fríríkisins hefur verið tryggð
SJÁLFS SÍN HERRAR Kristjaníubúar fá að halda sínum bæjarbrag um
ókomna tíð þar sem sameignarsjóður þeirra keypti land og hús af
ríkinu. NORDICPHOTOS/AFP
EVRÓPUMÁL Sérstakur upplýsinga-
vefur um Evrópusambandið
og Evrópumál verður opnaður
á vegum Vísindavefs Háskóla
Íslands og Alþingis í dag.
Tilgangur vefsins er að veita
„málefnalegar og óhlutdrægar
upplýsingar um Evrópusamband-
ið,“ segir á heimasíðu HÍ.
Uppsetning og framsetning
verður með svipuðu móti og er á
Vísindavefnum. Þar verður hægt
að „spyrja spurninga um allt sem
viðkemur Evrópusambandinu,“
segir Háskólinn, en starfsmenn
vefsins og fræðimenn munu sjá
um að svara spurningunum. - kóþ
Vísindavefur og Alþingi kynna:
Evrópuvefur HÍ
opnaður í dag
DANMÖRK Lögreglan í Óðinsvéum
í Danmörku hafði þrívegis
afskipti af 28 ára gömlum manni
vegna ölvunar-
aksturs á nokkurra
klukkustunda tíma-
bili í fyrrinótt.
Hann var fyrst
stöðvaður við reglu-
bundið eftirlit lög-
reglu um klukkan eitt
og svo aftur rúmum
tveimur tímum síðar
og var hann í bæði
skiptin færður til
blóðprufu og síðan sleppt lausum.
Hann lét sér hins vegar ekki
segjast og klukkan hálf sex um
morguninn var hann handtekinn í
þriðja sinn.
Hann þarf ekki að óttast öku-
leyfissviptingu, því að hann hefur
verið leyfislaus um hríð. - þj
Þrjóskur ökufantur á ferð:
Þrisvar tekinn
fullur sömu nótt
DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið
dæmdur í Héraðsdómi Norður-
lands eystra í tveggja mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir
vörslu fíkniefna og kannabis-
ræktun.
Maðurinn var með í sinni
vörslu 121,63 grömm af hassi,
3,13 grömm af kókaíni og eina
kannabisplöntu í ræktun, þegar
lögreglan gerði leit í íbúðinni.
Maðurinn játaði brot sitt. Í
dómnum segir að verulegur óút-
skýrður dráttur hafi orðið á mál-
inu hjá lögreglu og ákæruvaldi.
Að auki hafi orðið verulegar
breytingar á högum mannsins til
batnaðar og því verði refsingin
skilorðsbundin. - jss
Tekinn með fíkniefni:
Dæmdur á skil-
orð vegna tafa
ÞÚSUND ÁR – fyrsti áfangi
Íslensk myndlist í aldanna rás.
Fyrsti áfangi nýrrar yfirlitssýningar um íslenska myndlist í aldanna
rás; 19. öldin til nútímans. Í heild mun sýningin fjalla um íslenska
myndlist frá miðöldum til samtíðar.
NÝ SÝNING
Opið daglega kl. 11.00 – 17.00
Sýningar · leiðsögn · verslun
Veitingar á virkum dögum.
Þjóðmenningarhúsið – The Culture House
Hverfi sgötu 15 · 101 Reykjavík · Sími 545 1400
www.thjodmenning.is
NORÐUR-ÍRLAND, AP Miklar óeirðir
brutust út í kaþólsku hverfi í Bel-
fast á Norður-Írlandi í fyrrakvöld
eftir að hópur sambandssinna
hélt inn í hverfið og lét ófriðlega.
Tveir menn urðu fyrir byssu-
skotum og voru fluttir á sjúkra-
hús. Annar þeirra er ljósmyndari
sem var að taka fréttamyndir af
atburðunum.
Lögreglan segir að um 400
manns hafi tekið þátt í óeirð-
unum, bæði aðskilnaðarsinnar
og sambandssinnar. Einungis
óánægðir liðsmenn Írska
lýðveldishersins hafi þó notað
skotvopn. - gb
Óeirðir á Norður-Írlandi:
Tveir urðu fyrir
byssuskotum
ÁTÖK Í BELFAST Verstu óeirðirnar í
áratug. NORDICPHOTOS/AFP
LÖGGÆSLA Lögreglan á höfuðborg-
arsvæðinu mun í sumar halda
uppi auknu umferðareftirliti á
Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi
og Reykjanesbraut. Markmiðið
með eftirlitinu er að draga úr
ökuhraða en jafnframt að tryggja
að vanbúin ökutæki séu ekki á
ferð um þjóðvegi landsins. Eftir-
litið stendur yfir alla daga en
þungi þess verður þó um helgar.
Hugað verður að ljósabúnaði,
skráningu og hleðslu ökutækja,
tjaldvagna, fellihýsa og hjólhýsa.
Einnig verður fylgst með því
að hliðarspeglar ökutækja sem
draga breiða eftirvagna séu sam-
kvæmt reglum. - jss
Fylgst með hraða og búnaði:
Hert umferðar-
eftirlit lögreglu
VEISTU SVARIÐ?