Fréttablaðið - 03.09.2011, Side 10

Fréttablaðið - 03.09.2011, Side 10
3. september 2011 LAUGARDAGUR10 Listasafn Reykjavíkur auglýsir eftir verkum Karenar Agnete Þórarinsson (1903–1992) listmálara vegna sýningar á Kjarvalsstöðum í janúar 2012. Listasafn Reykjavíkur Reykjavík Art Museum Leit að listaverkum Þeir sem kynnu að eiga verk eftir hana eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við Unni Mjöll Leifsdóttur hjá Listasafni Reykjavíkur í síma 590-1200, eða í netfangið unnur.mjoll.leifsdottir@reykjavik.is. NEYTENDAMÁL Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur frest- að til áramóta gildistöku reglu- gerðar um merkingu og rekjan- leika erfðabreyttra matvæla, sem átti að taka gildi síðastliðinn mið- vikudag. Neytendasamtökin mót- mæla frestuninni harðlega en lög- fræðingur í ráðuneytinu segir innflytjendur hafa beðið um frest- inn. Sá hluti reglugerðarinnar sem veit að merkingum dýrafóðurs úr erfðabreyttum hráefnum hefur þega r tek ið gildi. Reglugerðin felur í sér að matvæli sem innihalda erfða- breyttar lífver- ur, til dæmis hveitikorn, maís eða soja, skul i merkt greinilega á umbúðum eða í hillu. Markmiðið með reglunum er að upplýsa neytendur matvæla og kaupendur fóðurs um innihald vöru, það er hvort hún innihaldi erfðabreytt hráefni. Deilur um ágæti erfðabreyttra matvæla hafa verið eitt stærsta neytendamál síðari ára á heimsvísu. Skýrar reglugerðir um merkingu erfða- breyttra matvæla eru í öllum öðrum ríkjum Evrópska efna- hagssvæðisins (EES) en málin horfa öðru vísi við í Bandaríkj- unum og erfitt gæti reynst að fá nauðsynlegar upplýsingar um allar vörur. Baldur Erlingsson, lögfræðing- ur hjá ráðuneytinu, segir innflytj- endur matvöru frá Bandaríkjun- um hafa óskað eftir frestinum. Bjarni Harðarson, upplýsinga- fulltrúi ráðuneytisins, segir þó að reglurnar muni koma til fram- kvæmda. „Það er engan bilbug á okkur í ráðuneytinu að finna og þessi reglugerð er á leiðinni,“ segir Bjarni en bætir því við að það hafi þótti sjálfsagt að verða við ósk um frest því að aðlögunin gæti tekið tíma og enn þurfi að fara í gegn- um ýmis atriði. „Það er alveg eðli- legt.“ Neytendasamtökin fögnuðu nýju reglugerðinni er hún var undirrituð í lok síðasta árs en harma nú frestunina. „Ég skil ekki þessa frestun og vil fá rök ráðherra fyrir henni,“ segir Jóhannes Gunnarsson, for- maður Neytendasamtakanna. „Ég spyr því, hverra hagsmuna er verið að gæta? Eru það hags- munir innflytjenda?“ Jóhannes segir einnig umhugs- unarvert hvort til standi að breyta reglunum frekar áður en þær taki gildi. Hann tekur þó fram að það sé ekki hlutverk Neytendasamtak- anna að segja fólki hvort það eigi að kaupa erfðabreyttar vörur eða ekki. „Hins vegar þurfa neytendur slíkar upplýsingar til að geta valið vörur á upplýstan hátt.“ Jóhannes segir innflytjendur hafa fengið nægt svigrúm til að laga sig að reglugerðinni. Þar að auki hafi önnur EES-ríki búið við slíkar reglur um árabil. „En við sitjum enn og bíðum, og það er óviðunandi fyrir íslenska neytendur.“ thorgils@frettabladid.is Ég spyr því, hverra hagsmuna er verið að gæta? Eru það hagsmunir innflytjenda? JÓHANNES GUNNARSSON FORMAÐUR NEYTENDASAMTAKANNA Reglum um erfða- breyttan mat frestað Gildistöku reglugerðar um merkingu matvöru sem inniheldur erfðabreytt hrá- efni hefur verið frestað til áramóta. Neytendasamtökin harma frestunina. Ráðu- neytið segir innflytjendur hafa beðið um frest en ekki sé verið að hætta við. MATVÆLAREGLUGERÐ SKOTIÐ Á FREST Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur frestað gildistöku reglugerðar um merkingu matvæla sem innihalda erfðabreytt matvæli. Neytendasamtökin segja um mikið hagsmunamál fyrir neytendur að ræða. Myndin tengist fréttinni ekki beint. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM JÓHANNES GUNNARSSON SKATTAR Efnahags- og skattanefnd afgreiddi í gær frumvarp um að lækka virðisaukaskatt á rafbæk- ur og tónlist á netinu. Þessir vöru- flokkar eru nú í hærra skattþrepi og bera 25,5 prósenta skatt, en munu bera 7 prósenta skatt verði breytingin að veruleika. Allar líkur eru á því að svo verði, þar sem frumvarpið var afgreitt samhljóða úr nefndinni af fulltrúum allra flokka. Helgi Hjörvar, formaður nefnd- arinnar, segir að nefndin vilji að tónlist og rafbækur á netinu beri sama skatt og tónlist og bækur í áþreifanlegu formi. „Fyrir utan jafnræðissjón- armiðin og það að skapa skap- a nd i g rei n - um jákvæðara umhverfi þá er þetta líka hugsað sem liður í því að hraða rafbókavæðingunni hérna, ekki síst í kennslubókum,“ segir Helgi. Hann segir breytinguna líka hugsaða til þess að mæta því að mikið af tekjum á þessu sviði hafi ekki skilað sér. Erlendir aðilar hafi ekki staðið skil á skatti og tekjur hafi tapast með því að hafa þetta í hærra þrepi. „Inni í þessu er ákvæði um að erlendir aðilar sem selja hér skrái sig hér á landi og skili virðisauka- skatti af þeirri sölu sem er hér á Íslandi. Þetta mun skila tekjum, en ekki leiða til verðhækkunar þar sem fyrirtækin skila nú þegar vaski, en heima fyrir.“ - kóp Samstaða á Alþingi um að lækka virðisaukaskatt á rafbækur og tónlist á netinu: Rafbækur og nettónlist í lægra þrep HELGI HJÖRVAR BRETLAND, AP Lekasíðan Wikileaks hefur nú birt öll bandarísku sendi- ráðsskjölin, sem hún hóf birtingu á í lok síðasta árs í samvinnu við nokkra helstu fjölmiðla heims. Samstarfsfjölmiðlar hennar, virt dagblöð á borð við New York Times, Guardian og Le Monde, gagnrýna það að flest skjölin séu nú birt án þess að þurrka út við- kvæmar upplýsingar, sem geta stefnt einstaklingum í hættu. Meðal annars geta stjórnvöld í löndum á borð við Kína, Búrma og Rússland auðveldlega fundið í skjölunum nöfn stjórnarandstæð- inga og andófsmanna, með afleið- ingum sem enginn veit hverjar verða. Birting skjalanna hafði gengið hægt, enda var þess lengi vel gætt að birta þau ekki fyrr en sam- starfsfjölmiðlarnir hefðu farið í gegnum þau og hreinsað út þessar viðkvæmu upplýsingar. Á Twitter-síðu Wikileaks segir að ekki hafi verið um annað að ræða en að birta öll skjölin, því afrit þeirra væru þegar komin í umferð manna á milli. Breska blaðinu Guardian hefur verið kennt um að birta lykilorð, sem veitti hverjum sem er aðgang að skjölunum. Fulltrúar Guardian segja hins vegar að á Wikileaks hefðu menn ekki átt að endurnýta gamalt lykilorð fyrir þetta við- kvæmar upplýsingar. - gb Wikileaks hefur birt öll bandarísku sendiráðsskjölin, að miklu leyti óritskoðuð: Stofna andófsfólki í hættu LEKI Julian Assange hefur verið gagn- rýndur fyrir að birta skjölin óritskoðuð. NORDICPHOTOS/AFP FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MEIRA SJÓNVARP Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.