Fréttablaðið - 03.09.2011, Page 23

Fréttablaðið - 03.09.2011, Page 23
Reitir fasteignafélag er stærsta þjónustu- fyrirtækið á sviði útleigu atvinnuhúsnæðis á Íslandi. Reitir hafa yfir að ráða fjölbreyttu fasteignasafni sem samanstendur af um 130 fasteignum sem staðsettar eru víðsvegar um landið. Nánari upplýsingar veitir Halldór Jensson 840 2100 halldor@reitir.is www.reitir.is Vönduð umgjörð fyrir vinnandi fólk Rúmgott heimili fyrir öflugt fyrirtæki Vandað skrifstofuhúsnæði á 2. hæð í Grímsbæ við Bústaðaveg Svæðið er 682 m² – mögulegt að leigja í tveimur hlutum (350 m² / 332 m²) Húsnæðið skiptist í opin vinnurými, skrifstofur, fundarherbergi og eldhús Laust í september 2011 TIL LEIGU Efstaland 26 108 Reykjavík Hentug vinnurými af ýmsum gerðum. Góð staðsetning stutt frá helstu umferðaræðum. Rúmgóð aðstaða fyrir starfsmenn. LAUGARDAGUR 3. september 2011 Tímamót í sögu Stígamóta Það er sama hvernig við reiknum, fjöldi kvenna- athvarfa á Íslandi stenst ekki samanburð við neina ríkja- hópa sem við viljum bera okkur saman við. Í Svíþjóð eru athvörfin um 150, á Grænlandi eru þau 8. Samtök kvenna- athvarfa í Evrópu, WAVE, vinna að því að fyrir hverja tíu þúsund íbúa eigi að vera eitt athvarf. Á Íslandi erum við 320.000 og höfum hingað til haft eitt athvarf fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi. Það er því með mikilli ánægju sem það tilkynnist að Stígamót hafa nú opnað nýtt kvennaathvarf. Athvarfið er ætlað breiðum hópi kvenna. Þangað verða boðnar velkomn- ar konur á leið úr klámiðnað- inum, vændi og mansali. Þar verður líka pláss fyrir konur utan höfuðborgarsvæðisins sem vilja nýta sér þjónustu Stígamóta og ef húsrúm nægir er hugsanlegt að hýsa konur af öðrum ástæðum. Í athvarfinu, sem er stórt, bjart og fallegt, getum við auðveldlega hýst 6 konur. Þær munu fá eigin herbergi, þeim verður gert mögulegt að dvelja þar í lengri tíma en í hefð- bundnum athvörfum og lögð verður áhersla á að þær fái allan þann stuðning sem þær þurfa til þess að vinna sig út úr viðjum ofbeldis, styrkja sig og efla. Óskað hefur verið eftir sem bestu samstarfi við allar þær stofnanir og samtök sem að ofbeldismálum koma. Til þess að hafa samband við athvarfið þarf að hringja í Stígamót í síma 562-6868. Þar sem rekstur kvenna- atharfa er dýr væri verkefnið ómögulegt ef ekki kæmi til skilningur stjórnvalda, fjár- söfnun Skottanna árið 2010 og ómetanlegt vinnuframlag sjálfboðaliða. Margar konur með ýmiss konar reynslu, menntun og þekkingu hafa boðið fram krafta sína til þess að gera drauminn að veruleika. Stofnun Stígamótaathvarfs er eðilegt framhald af þeirri starfsemi sem Stígamót hafa fengist við fram að þessu. Árlega leita tugir kvenna og stundum líka karlar eftir stuðningi og aðstoð til þess að vinna úr reynslu af vændi. Það hefur hent nokkrum sinnum að Stígamót hafa haft milligöngu um að konur úr vændi hafi flúið land og fengið athvarf hjá systursamtökum í nágranna- löndunum. Það hefur verið gert vegna þess að hér á landi hafa ekki verið til passandi úrræði. Þetta hefur líka átt við um konur sem tengst hafa man- salsmálum. Sérsniðin úrræði fyrir þær konur hafa hingað til ekki verið til. Stígamóta- athvarfið er ætlað til þess m.a. að bæta úr þessum skorti á úrræðum. En það er fleira á döfinni á Stígamótum. Þegar er hafið starf Stígamóta utan höfuð- borgarsvæðisins og má nefna að ráðgjafi Stígamóta veitir viðtalsþjónustu á Sauðárkróki hálfsmánaðarlega. Á næst- unni verður fleiri stöðum bætt við og verður þjónustan kynnt rækilega. Í september munu Stígamót endurútgefa ítarlega bæklinga um nauðganir og kynferðis- ofbeldi gegn börnum. Bækl- ingarnir, sem eru um 50 síður hvor, verða ókeypis fyrir Stíga- mótafólk og má nálgast þá á Stígamótum, Hverfisgötu 115. Að lokum skal þess getið að á næstu vikum mun almenn- ingi gefast kostur á að styrkja Stígamót í bókstaflegri merk- ingu. Fjöldi götukynna mun kynna starfið í Kringlunni, í Smáralindinni og á öðrum fjöl- förnum stöðum og gefa fólki kost á að leggja fram mánaðar- lega upphæð til þess að hægt verði að halda úti því umfangs- mikla starfi sem Stígamót standa fyrir. Einnig verður hægt að gerast styrktaraðili í gegnum heimasíðuna www. stigamot.is. Fjáröflunin fer fram undir yfirskriftinni „Stingum ekki höfðinu í sand- inn, horfumst í augu við raun- veruleikann“. Við skorum á fólk að taka þátt svo við getum haldið úti þeirri mikilvægu þjónustu sem svo margir þurfa á að halda. Samfélagsmál Guðrún Jónsdóttir talskona Stígamóta Þar sem rekstur kvennaatharfa er dýr, væri verkefnið ómögulegt ef ekki kæmi til skilningur stjórnvalda, fjársöfnun Skottanna árið 2010 og ómetanlegt vinnuframlag sjálfboðaliða. AF NETINU Hvað er vandamálið? Núna, þegar í ljós virðist komið að hið ofurslítandi lamandi alltumlykjandi rifrildi okkar um Icesave, hafi verið alveg fullkominn óþarfi, og það vildi ég óska að við hefðum eytt tíma okkar og orku í eitthvað annað … Núna sem sagt, þegar þetta er komið á hreint … Ætlum við þá að fara að eyða mörgum mörgum mörgum vikum og kannski mánuðum í rifrildi um hvort Kínverji einn sé þess verður að eiga meirihluta jarðarinnar Grímsstaða á Fjöllum? Hann mun auðvitað, eins og allir aðrir landeigendur á Íslandi, þurfa að lúta margvíslegum lögum og takmörkunum á því sem hann getur gert við jörðina sína. Og hann mun meira að segja eiga jörðina í félagi við ríkið sjálft, sem þar með getur fylgst grannt með því að hann taki ekki upp á einhverjum dónaskap. Hvað er vandamálið? Við verðum að fara að hætta að þrefa. http://blog.eyjan.is/illugi Illugi Jökulsson
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.