Fréttablaðið - 03.09.2011, Síða 23
Reitir fasteignafélag er stærsta þjónustu-
fyrirtækið á sviði útleigu atvinnuhúsnæðis
á Íslandi. Reitir hafa yfir að ráða fjölbreyttu
fasteignasafni sem samanstendur af um 130
fasteignum sem staðsettar eru víðsvegar
um landið.
Nánari upplýsingar veitir
Halldór Jensson
840 2100
halldor@reitir.is
www.reitir.is
Vönduð umgjörð fyrir vinnandi fólk
Rúmgott heimili
fyrir öflugt fyrirtæki
Vandað skrifstofuhúsnæði á 2. hæð í Grímsbæ við Bústaðaveg
Svæðið er 682 m² – mögulegt að leigja í tveimur hlutum (350 m² / 332 m²)
Húsnæðið skiptist í opin vinnurými, skrifstofur, fundarherbergi og eldhús
Laust í september 2011
TIL LEIGU
Efstaland 26
108 Reykjavík
Hentug vinnurými af ýmsum gerðum.
Góð staðsetning stutt frá helstu umferðaræðum.
Rúmgóð aðstaða
fyrir starfsmenn.
LAUGARDAGUR 3. september 2011
Tímamót
í sögu Stígamóta
Það er sama hvernig við reiknum, fjöldi kvenna-
athvarfa á Íslandi stenst ekki
samanburð við neina ríkja-
hópa sem við viljum bera
okkur saman við. Í Svíþjóð eru
athvörfin um 150, á Grænlandi
eru þau 8. Samtök kvenna-
athvarfa í Evrópu, WAVE,
vinna að því að fyrir hverja
tíu þúsund íbúa eigi að vera
eitt athvarf. Á Íslandi erum
við 320.000 og höfum hingað
til haft eitt athvarf fyrir konur
sem beittar hafa verið ofbeldi.
Það er því með mikilli
ánægju sem það tilkynnist að
Stígamót hafa nú opnað nýtt
kvennaathvarf. Athvarfið er
ætlað breiðum hópi kvenna.
Þangað verða boðnar velkomn-
ar konur á leið úr klámiðnað-
inum, vændi og mansali. Þar
verður líka pláss fyrir konur
utan höfuðborgarsvæðisins
sem vilja nýta sér þjónustu
Stígamóta og ef húsrúm nægir
er hugsanlegt að hýsa konur af
öðrum ástæðum.
Í athvarfinu, sem er stórt,
bjart og fallegt, getum við
auðveldlega hýst 6 konur. Þær
munu fá eigin herbergi, þeim
verður gert mögulegt að dvelja
þar í lengri tíma en í hefð-
bundnum athvörfum og lögð
verður áhersla á að þær fái
allan þann stuðning sem þær
þurfa til þess að vinna sig út
úr viðjum ofbeldis, styrkja
sig og efla. Óskað hefur verið
eftir sem bestu samstarfi við
allar þær stofnanir og samtök
sem að ofbeldismálum koma.
Til þess að hafa samband við
athvarfið þarf að hringja í
Stígamót í síma 562-6868.
Þar sem rekstur kvenna-
atharfa er dýr væri verkefnið
ómögulegt ef ekki kæmi til
skilningur stjórnvalda, fjár-
söfnun Skottanna árið 2010
og ómetanlegt vinnuframlag
sjálfboðaliða. Margar konur
með ýmiss konar reynslu,
menntun og þekkingu hafa
boðið fram krafta sína til þess
að gera drauminn að veruleika.
Stofnun Stígamótaathvarfs
er eðilegt framhald af þeirri
starfsemi sem Stígamót hafa
fengist við fram að þessu.
Árlega leita tugir kvenna
og stundum líka karlar eftir
stuðningi og aðstoð til þess að
vinna úr reynslu af vændi. Það
hefur hent nokkrum sinnum að
Stígamót hafa haft milligöngu
um að konur úr vændi hafi
flúið land og fengið athvarf hjá
systursamtökum í nágranna-
löndunum. Það hefur verið gert
vegna þess að hér á landi hafa
ekki verið til passandi úrræði.
Þetta hefur líka átt við um
konur sem tengst hafa man-
salsmálum. Sérsniðin úrræði
fyrir þær konur hafa hingað
til ekki verið til. Stígamóta-
athvarfið er ætlað til þess m.a.
að bæta úr þessum skorti á
úrræðum.
En það er fleira á döfinni á
Stígamótum. Þegar er hafið
starf Stígamóta utan höfuð-
borgarsvæðisins og má nefna
að ráðgjafi Stígamóta veitir
viðtalsþjónustu á Sauðárkróki
hálfsmánaðarlega. Á næst-
unni verður fleiri stöðum bætt
við og verður þjónustan kynnt
rækilega.
Í september munu Stígamót
endurútgefa ítarlega bæklinga
um nauðganir og kynferðis-
ofbeldi gegn börnum. Bækl-
ingarnir, sem eru um 50 síður
hvor, verða ókeypis fyrir Stíga-
mótafólk og má nálgast þá á
Stígamótum, Hverfisgötu 115.
Að lokum skal þess getið að
á næstu vikum mun almenn-
ingi gefast kostur á að styrkja
Stígamót í bókstaflegri merk-
ingu. Fjöldi götukynna mun
kynna starfið í Kringlunni, í
Smáralindinni og á öðrum fjöl-
förnum stöðum og gefa fólki
kost á að leggja fram mánaðar-
lega upphæð til þess að hægt
verði að halda úti því umfangs-
mikla starfi sem Stígamót
standa fyrir. Einnig verður
hægt að gerast styrktaraðili
í gegnum heimasíðuna www.
stigamot.is. Fjáröflunin fer
fram undir yfirskriftinni
„Stingum ekki höfðinu í sand-
inn, horfumst í augu við raun-
veruleikann“. Við skorum á
fólk að taka þátt svo við getum
haldið úti þeirri mikilvægu
þjónustu sem svo margir þurfa
á að halda.
Samfélagsmál
Guðrún
Jónsdóttir
talskona Stígamóta
Þar sem rekstur kvennaatharfa er dýr,
væri verkefnið ómögulegt ef ekki kæmi
til skilningur stjórnvalda, fjársöfnun
Skottanna árið 2010 og ómetanlegt vinnuframlag
sjálfboðaliða.
AF NETINU
Hvað er vandamálið?
Núna, þegar í ljós virðist komið að hið ofurslítandi lamandi
alltumlykjandi rifrildi okkar um Icesave, hafi verið alveg fullkominn
óþarfi, og það vildi ég óska að við hefðum eytt tíma okkar og orku
í eitthvað annað …
Núna sem sagt, þegar þetta er komið á hreint …
Ætlum við þá að fara að eyða mörgum mörgum mörgum vikum
og kannski mánuðum í rifrildi um hvort Kínverji einn sé þess
verður að eiga meirihluta jarðarinnar Grímsstaða á Fjöllum?
Hann mun auðvitað, eins og allir aðrir landeigendur á Íslandi,
þurfa að lúta margvíslegum lögum og takmörkunum á því sem
hann getur gert við jörðina sína. Og hann mun meira að segja eiga
jörðina í félagi við ríkið sjálft, sem þar með getur fylgst grannt með
því að hann taki ekki upp á einhverjum dónaskap.
Hvað er vandamálið?
Við verðum að fara að hætta að þrefa.
http://blog.eyjan.is/illugi
Illugi Jökulsson