Fréttablaðið - 03.09.2011, Blaðsíða 36
3. september 2011 LAUGARDAGUR36
Færeyjar - eldri borgarar
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.IS
/F
LU
5
61
65
0
9/
20
11
Færeyjar fyrir eldri borgara
15. - 19. september
Afar áhugaverð ferð til nágranna okkar og vina í Færeyjum.
Flug, gisting á Hótel Færeyjum, sigling og frábærar
skoðunaferðir alla dagana.
Allar máltíðir innifaldar. Íslensk leiðsögn.
Upplýsingar veitir Emil Guðmundsson í síma 898 9776
eða á netfanginu emil@flugfelag.is
V
ið lögðum nótt við
dag til að ljúka verk-
efninu fyrir Íslend-
inga. Tíminn var
knappur en okkur
tókst að standa
við samninginn og ljúka við að
sauma fimm þúsund taupoka á
tíu dögum,“ segir Kuteesa Har-
riet, ein rúmlega tuttugu kvenna
í fimm smáþorpum í Mukono-hér-
aði í Úganda. „Fyrir vinnulaunin
get ég nú keypt mér nýja sauma-
vél og sent börnin mín þrjú áfram
í framhaldsnám. Svo á ég fyrir
komugjöldum á spítalann ef eitt-
hvert okkar í fjölskyldunni veik-
ist,“ bætir hún við.
Handverkskonurnar, sem saum-
uðu taupokana úr margvíslegum
litfögrum afrískum efnum, fengu
pöntunina frá fulltrúum nokkurra
frjálsra íslenskra félagasamtaka
sem í samvinnu við Þróunarsam-
vinnustofnun Íslands eru að hrinda
af stað kynningarátaki um mikil-
vægi þróunarsamvinnu undir kjör-
orðinu Þróunarsamvinna ber ávöxt.
Átakið, sem hefst með greinaflokki
hér í Fréttablaðinu á mánudag,
stendur út vikuna.
Peningum vel varið
Megintilgangur átaksins er að
kynna árangur af þróunarsam-
vinnu í fátækustu ríkum heims og
koma þeim skilaboðum til almenn-
ings á Íslandi að miklar framfarir
hafi orðið í þróunarríkjunum fyrir
tilstuðlan alþjóðlegrar þróunarsam-
vinnu. „Það er löngu tímabært að
það góða starf sem unnið er fyrir
íslenskt fjármagn, bæði af hálfu
frjálsra félagasamtaka og opinberra
aðila, sé dregið fram í dagsljósið
og Íslendingar fái vitneskju um að
þessum peningum sé vel varið og að
þeir bæti lífsgæði tuga þúsunda auk
þess sem mannslífum sé bjargað,“
segir Gunnar Salvarsson, útgáfu- og
kynningarstjóri Þróunarsamvinnu-
stofnunar, en hann hitti handverks-
konurnar í Úganda á fimmtudag og
ræddi við þær um verkefnið.
Hann segir að þær hafi ljómað
af ánægju með vinnulaunin en þær
höfðu þann háttinn á að skipta sér
Saumuðu fimm þúsund poka
Þróunarsamvinna ber ávöxt er heiti kynningarátaks um mikilvægi þróunarsamvinnu sem stendur alla næstu viku. Til að vekja
athygli á átakinu verðum eplum dreift í sérsaumuðum pokum, saumuðum af handverkskonum í Úganda. Laun þeirra fyrir verkið
nýtast vel, eins og Gunnar Salvarsson greindi Sigríði Björgu Tómasdóttur frá, en Gunnar var í Úganda í vikunni.
SKIPTU VERKUM Konurnar sem saum-
uðu pokana skiptu með sér verkum.
BORGAR FRAMHALDSNÁM ÞRIGGJA BARNA Kuteesa Harriet, lengst til hægri, notar vinnulaunin sem hún fékk fyrir pokana afar
vel. Hún ætlar að kaupa sér nýja saumavél, senda börn í framhaldsnám og eiga þar að auki fyrir komugjöldum á spítala ef ein-
hver úr fjölskyldunni veikist.
EKKI SAMA ÖRBIRGÐ OG ANNARS STAÐAR Konurnar sem saumuðu pokana búa að
því að félagasamtökin Buiga Sunrise starfa þar að ýmsum verkefnum með heima-
mönnum. Því er ekki sama örbirgð þar og víða í Úganda.
MARGAR HENDUR VINNA LÉTT VERK Fjölmargir komu að því að sauma utan um eplin
sem dreift verður í næstu viku til áminningar um mikilvægi þróunarsamvinnu.
Með eplunum sem dreift verður næsta miðvikudag í Reykjavík og á Akureyri í tengslum við átakið Þróunar-
samvinna ber ávöxt fylgir lítið spjald með ýmsum upp-
lýsingum um þann mikla árangur sem alþjóðleg
þróunarsamvinna hefur skilað á undanförnum
áratug. Þeim árangri verður gefinn sérstak-
ur gaumur á málþingi sem haldið verður í
Háskóla Íslands næstkomandi fimmtudag
í samstarfi við Alþjóðastofnun Íslands.
Frjálsu félagasamtökin sem taka hönd-
um saman með Þróunarsamvinnustofn-
un Íslands að þessu átaki eru Rauði kross
Íslands, Hjálparstarf kirkjunnar, Barna-
heill, UNICEF, UN Women, SOS barna-
þorpin á Íslandi, ABC barnahjálp og Sam-
band íslenskra kristniboðsfélaga.
Átakinu verður hleypt af stokkunum
með greinum hér í Fréttablaðinu og birtist
sú fyrsta á mánudag.
ÞRÓUNARSAMVINNA BER ÁVÖXT
upp í hópa og deila verkþáttunum að
mæla, sníða, sauma, binda fyrir og
strauja. Sá hópur sem lauk flestum
pokum bar mest úr býtum.
Áminning um skyldur okkar
Afrísku taupokarnir eru umbúð-
ir utan um fimm þúsund epli sem
dreift verður til almennings á átta
stöðum á landinu næstkomandi mið-
vikudag í þeim tilgangi að minna á
að þróunarsamvinna beri ávöxt.
„Fólk á förnum vegi má þá eiga
von á því að sjá fulltrúa frjálsra
félagasamtaka með epli í hjólbör-
um á fjölförnum stöðum og fá eitt
epli að gjöf í þessum vönduðu afr-
ísku pokum. Við höfum fengið til
liðs við okkur við afhendingu á epl-
unum ýmsa þjóðþekkta Íslendinga
sem vilja leggja þessum málaflokki
lið. Pokarnir eru í sjálfu sér fallegir
minjagripir sem vonandi varðveit-
ast á heimilum Íslendinga og minna
stöðugt á gildi þess að við sem þjóð
rækjum skyldur okkar, ekki síður
en aðrar ríkar þjóðir, í þágu þeirra
fátækustu,“ segir Gunnar.
„Þegar við sjáum aðstæður eins
og þær sem fólkið í þorpunum í
Mukano býr við áttar maður sig
á því hversu ríkir við Íslendingar
erum þrátt fyrir krepputal og bar-
lóm. Þessar konur sem unnu verk-
efnið fyrir okkur hafa það reynd-
ar fram yfir marga aðra íbúa
þróunarríkja sem búa við allsleysi
og örbirgð að frjáls félagasamtök,
Buiga Sunrise, hafa tekið fimm þorp
á þessu svæði undir verndarvæng
sinn og stuðla með heimamönnum
að framförum á ýmsum sviðum,
meðal annars í menntun, bæði leik-
skólum og fullorðinsfræðslu, þau
reka fábrotna heilsugæslustöð,
rækta ávexti og kaffi og halda geit-
ur, auk þess sem þær taka að sér
margvíslegt handverk.
Þótt afrakstur vinnunnar við
pokana renni að mestu í vasa
kvennanna fer hluti til samfélags-
legrar uppbyggingar og því er
saumaskapurinn þeirra fyrir okkur
Íslendinga í raun sjálfstætt þróun-
arverkefni sem gefur þessu átaki
sérstakan lit og undirstrikar gildi
þróunarsamvinnu,“ segir hann.