Fréttablaðið - 03.09.2011, Síða 40

Fréttablaðið - 03.09.2011, Síða 40
2 fjölskyldan Fjölskyldan kemur út mánaðarlega með helgarblaði Fréttablaðsins. Ritstjórn: Sólveig Gísladóttir Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Forsíðumynd: Nordicphotos/Getty Pennar: Gunnþóra Gunnarsdóttir Júlía Margrét Alexandersdóttir Ragnheiður Tryggvadóttir Þórdís Lilja Gunnarsdóttir Ljósmyndir: Fréttablaðið Auglýsingar: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is Stundum koma stundir þegar tíminn virðist ansi naumt skammtað-ur til skylduverka. Foreldrar koma seint heim úr vinnu og reyna að hafa ofan af fyrir börnunum fram að matartíma. Að lokinni háttun, baði og burstun er komið að notalegum leshring uppi í rúmi með strumpum, prinsessum eða tröllum. Ef mömmu og pabba tekst að komast hjá því að sofna með trítlunum gefast einn til tveir tímar fyrir fullorðna fólkið að tala um daginn og veginn, reyna að henda mesta draslinu á sinn stað og koma sér svo í rúmið til að safna kröftum fyrir komandi vinnudag. Staflarnir af hreinu taui sem safnast hafa upp á snúrum og í vaskafötum standa óhreyfðir. „Á morgun segir ekki sá lati, heldur þreytta foreldrið.“ Það var einn morgun eftir vikulangt tímaleysi og óskipulag í hús- verkunum að ég stóð og horfði á óhreinu diskana, hreina þvottinn í sófanum, leikföngin á gólfinu og tóman ísskápinn að ég hnippti í dóttur mína og lagði til bakarísferð. Ég yfirgaf því heimilið, læsti minninguna um draslið í innstu hugarfylgsnum og bauð þess í stað dóttur minni upp á kókómjólk og ostaslaufu í þægilegu andrúmslofti bakarísins. Betri morgunstund er ekki hægt að óska sér, ánægt barn, ekkert drasl, þjónusta og glænýtt bakkelsi. Stóri gallinn á þessari annars ljómandi lausn var sá að dóttur minni þótti þessi bakarísferð enn skemmtilegri en mér og finnst því alveg sjálfsagt að hún verði gerð að daglegum viðburði. Útskýringar um að ekki sé hægt að flýja veruleikann að eilífu finnst henni fánýtar. Hún heimtar sína ostaslaufu og ekkert múður. En hún verður, eins og ég, að takast á við hvunndaginn. Hún með hafragrautinn sinn og ég með þvottastaflann. Þannig er nú bara lífið. En við höfum hins vegar minningar um yndis- legar bakarísferðir til að verma okkur. Og kannski verður einhvern tíma aftur svo mikið drasl að við ákveðum að yfirgefa heim- ilið, hver veit? Heimilið yfirgefið Það er ekki oft sem feður fara með strákunum sínum eitt-hvert heila helgi. Menn tala kannski um það en gefa sér sjaldan tíma til þess. Því er ágætt að einhver skipuleggi slíkt framtak fyrir þá,“ segir Hannes Pétursson tölvunarfræðingur um feðgaflokk- ana sem KFUM býður upp á í Vatnaskógi. Hann og sonur hans, Fannar Logi, tíu ára, voru í slíkum flokki um liðna helgi. Þeir eru sam- mála um að það hafi verið gaman. „Það skemmtilegasta var auðvitað samvera okkar Fannars,“ segir Hannes. „Feðgar hafa tvímæla- laust gott af því að gaurast stund- um saman.“ Hann segir þá auk þess hafa hitt marga aðra skemmtilega feður og syni í Vatnaskógi, því þeir hafi verið hátt í hundrað talsins. „Við tókum þátt í öllu,“ segir Fann- ar og telur upp frjálsar íþróttir, kvöldvökur, siglingar á bátum, smíðar, skotbolta, hermannaleik og orrustuleik. „Já, ég held að feðrunum hafi jafnvel fundist enn meira gaman en sonunum og haft strákana sem átyllu til að gera það sem þá lang- aði,“ segir Hannes. „Eftir orrustu- leikinn stakk að minnsta kosti einn pabbinn glettnislega upp á að við tækjum annan leik „fyrir strákana!“.“ Hannes og Fannar hafa áður verið í feðgaflokki í Vatnaskógi og eru hagvanir þar. „Ég var oft í Vatnaskógi sem strákur og svo var ég að vinna þar í þrjú ár,“ upplýsir Hannes. Fannar kveðst hafa farið þangað fjórtán sinnum. „Við erum alltaf í Vatnaskógi um verslunar- mannahelgina, ég var þar í fyrsta skipti í strákaflokki í sumar og einu sinni fór ég þangað með skól- anum og gisti.“ „Já, við erum dálitlir skógarmenn,“ botnar pabbi hans. - gun Við erum skógarmenn Feðgarnir Hannes Pétursson og Fannar Logi Hannesson skemmtu sér ærlega saman í Vatnaskógi um síðustu helgi, ásamt hátt í hundrað öðrum feðrum og sonum. Á sama báti Bátsferðir eru fastur liður í Vatnaskógi. Hér eru feðgar á ferð. MYND/HARALDUR Feðgar Hannes og Fannar Logi eru áhugamenn um frjálsar íþróttir. Fannar Logi æfir þær sex sinnum í viku og stefnir á að verða afreksmaður. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Sólveig Gísladóttir skrifar Raddir tuttugu og fimm barna á grunnskólaaldri hljóma á diskinum Gospelkrakkar sem kemur út nú um helgina á hátíðinni Ljósanótt í Reykja- nesbæ. Á diskinum eru tólf lög fyrir hressa krakka. Það er Ester Daníelsdóttir van Gooswilligen, forstöðumaður Hjálpræðishersins í Reykjanesbæ, sem stjórnar söng barnanna á diskinum, sem er unninn í samstarfi við Óskar Einarsson, tónlistar- mann og gospelsnilling, og sönghópinn „Seven“ í Noregi. Gospelkrakkar verða með útgáfutónleika í Keflavíkurkirkju á morgun, sunnudaginn 4. september og í Fíladelfíukirkjunni í Reykjavík 10. september. Gospelkrakkadiskurinn fæst ekki í venjulegum búðum en hægt er að panta hann á póstfanginu ester@herinn.is og í Jötunni, Fíladelfíu. Gospelkrakkarnir syngja og dansa þegar þeir koma saman. Ívar Örn Hansen S: 5125429 , gsm 6154349 ivarorn@365.is Sigríður Dagný S: 5125462, gsm 8233344 sigridurdagny@365.is Sigríður Hallgríms S: 5125432, gsm 6924700 sigridurh@365.is AUGLÝSING Í SÉRBLÖÐUM SKILAR ÁRANGRI! www. ring.is / m .ring. is [ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ] ferðalög Þ að hljómar kannski kuldalega að hátta sig ofan í rúm undir frost- marki, en engu að síður staðreynd að gisting í snjóhúsum nýtur fádæma vinsælda hvar sem hún býðst. Eftir áramót sýnir Vetur konungur oft grimm- ustu klærnar og hrúgar niður snjó á mestu snjósöfnunarstaði veraldar. Því fagna ferða- menn sem dýrka vetrar ríkið og þrá að upp- lifa eitthvað nýtt og framandi, en einnig að komast í mikla nánd við náttúruna. Vinsæl- ar snjóhúsabyggðir eru í Lapplandi, Sviss, Slóveníu og Japan, þar sem hin ægifagra Kamakura-hátíð er haldin í febrúar ár hvert í Yokote í Akitahéraði í norðaustur Japan. Mikil snjókoma er í Yokote og ekki óalgengt að falli allt að 30 sentimetra snjór yfir nótt. Snjóhúsin sjálf kallast kamakura og inni í þeim er reist altari til tilbeiðslu vatnsguðs- ins, þar sem fólk biður fyrir góðri uppskeru, öryggi fjölskyldunnar, velgengni og vernd gegn eldum. Ólýsanlega fagurt er á kvöld- in á Kamakura þegar kertaljós lýsa upp snjóhúsin, en hvarvetna ræður rómantík ríkjum á snjóhúsaslóðum og vinsælt meðal elskenda að gefast hvort öðru undir bleik- lilluðum stjörnuhimni og glitrandi frostrós- um. -þlg JANÚAR 2011 FRAMHALD Á SÍÐU 4 OFURSVALT INÚÍTALÍF Snjóhús eru með fegurstu mann- gerðu smíðum náttúrunnar, en efniviðurinn hverfull eftir veðri og vindum. Um víða veröld er hægt að upplifa andrúmsloft inúíta í hnausþykkum, listilega smíðuðum snjóhúsum, til að mat- ast, vera og njótast. Góður markaður Íslendingar geta nú nýtt sumarfríið til að leigja út íbúðir sínar í gegnum fyrirtækið Iceland Summer. SÍÐA 2 Skemmtileg lífs- reynsla Lilja Björk Jónasdóttir starfaði við sumarbúðir barna í Banda- ríkjunum síðasta sumar og ætlar aftur í vor.SÍÐA 6 föstudagur FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 11. mars 2011 Helicopter vekur athygli Á rúmstokknumTískan á pöllunumÁrshátíðarförðunin Fríða María Harðardóttirer sannur eyjarskeggi Kr. TILBOÐ 117.950 FRÁBÆRT FARTÖLVUTILBOÐ 15.6” Skand ínavísk hönnu narvei sla Mikil hönnu narsýn ing er haldin í Stok k- hólmi í febrú ar. Þar eru he lstu ný jungar hönnu narhei msins kynnt ar. Sýn ingin þ ykir gefa g óða m ynd af þeim straum um se m einken na ska ndinav íska hö nnun o g þang að flykkis t fólk f rá öllu m heim shornu m. Sýning arsvæ ðið er stórt o g yfirg ripsm ikið en ein nig er u sýn ingar víðs vegar um borgin a. Í ár var vi ður all s ráða ndi, ei ns og oft áð ur end a grun nefni í skan dinaví skri framl eiðslu . Nát túrule gar á ferðir og umhve rfisvæ nar fr amleið sluaðf erðir n utu sín í b land v ið skæ ra og s terka liti. Ei nnig voru p astelli tir áb erand i og m á segj a að hvítt o g svar t sé á u ndanh aldi. Það g ætir a fturhv arfs t il eldr i tíma hjá un gum f yrirtæ kjum en me ð sam tíma framl eiðslu háttum . Efni eins o g kopa r og messi ng sáu st víð a svo ekki s é min nst á prjóna ða, he klaða og ofn a ull. Þ ægind i og mýkt voru á beran di í m ótsögn við ha rðar línur m ódern isma s em he fur ve rið vin æll undan farin á r. Skan dinaví sk hön nun er þó alltaf stílhr ein og einfa ldleik inn í f yrir- rúmi e n í ár var ha nn óve nju hlý legur. - she EVERYTH ING MAT TERS. heimi li& hönnu n febrúar 2011 FRAM HALD Á SÍÐ U 4 Klassís k hönnu n í nýju lj ósi Ungir hönnu ðir létu ljó s sitt s kína í Stokkh ólmi. Þ eirra á með al var Jaeuk Jung. SÍÐA 6 Mikill græjuk arl Ásgeir Kolbe insson útvarp smaðu r kann vel við sig í miðb ænum . SÍÐA 2 m ni g[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MENNINGU OG LISTIR ] mars 2011 Íslensk menningarpólitík nefnist bók eftir Bjarka Valtýs- son, doktor í boðskipta- og menningarfræðum, sem kom út á vegum Nýhil á dögunum. Í bókinni er íslensk menn- ingarstefna greind fræðilega og sett í samhengi við al- þjóðlegar menningarstefnur. Bjarki varar við ofuráherslu á hina einhæfu íslensku menningarvitund, sem oft og tíðum dragi listamenn í dilka klisjunnar. l FRAMHALD Á SÍÐU 6 DRÖGUM VARLA FLEIRI ÍSJAKA TIL PARÍSAR FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR DÆMI Á djúpum miðumRagna Sigurðardóttir rýnir í sýningarnar Viðtöl um dauðann og Hljóðheimar. SÍÐA 2 Útsprungnar rósir Kjartan Guðmundsson dustar rykið af fyrstu plötu The Pogues. SÍÐA 2 matur[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MAT ]mars 2011 Dekrað við bragðlaukana Albert Eiríksson færir ljúffenga döðluköku í nútímalegra og heilsusamlegra horf. SÍÐA 2 Hreinn unaður Kristín Eik Gústafsdóttir býr til fádæma flotta tertu sem allir geta spreytt sig á.SÍÐA 4 Með sunnudagskaffinuKökur, huggulegheit og samvera. DÆMIfjölskyldan[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FJÖLSKYLDUNA ] Þ órður Hermannsson sækir Hitt húsið með dóttur sína Karitas Lóu 6 mánaða. Þórður er 23 ára nýútskrifaður tónsmiður frá LHÍ. „Karitas Lóa er mitt fyrsta barn en kærastan mín átti tvö börn fyrir svo við erum með þrjú börn heima. Ég er í fæðingarorlofi núna og finnst mjög gott að geta hitt aðra foreldra og þá hittir hún líka aðra krakka.“ Þórður segir þá fræðslu sem boðið er upp á koma sér vel fyrir unga nýbak-aða foreldra en annanhvern miðvikudag eru faglegir fyrirlestrar eða kynning-ar. Hann segir félagsskapinn ekki síður mikilvægan. „Það er gott að hafa stuðning af fleiri ungum foreldrum en það eru ekki marg-ir vinir mínir komnir með börn. Hópur-inn sem hittist er á aldrinum 18 til 25 ára. Við erum öll með okkar fyrsta barn og að ganga í gegnum svipaða hluti. Það er alltaf febrúar 2011 Í hundunum Theodóra Róbertsdóttir sýnir á stærstu hundasýningu heims í næsta mánuði. SÍÐA 2 FRAMHALD Á SÍÐU 4 Ungir kenna fullorðnum Nemendur úr sjöunda bekk Grandaskóla kenna fullorðnum á tölvur. SÍÐA 6 Alla miðvikudaga milli klukkan 14 og 16 geta ungir foreldrar mætt með börnin sín í Hitt húsið, rætt málin og fengið faglega ráðgjöf varðandi umönnun ungbarna. Starfið ber yfirskriftina Ungt fólk með ungana sína. Gott að hitta aðra unga foreldra FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR okkar.is ze b ra Sérblöð Fréttablaðsins eru fjölbreytt og höfða til fólks á öllum aldri. Fjöldi mismunandi sérblaða kemur út í hverjum mánuði. Leitaðu ráða hjá ráðgjöfum okkar um hvar auglýsingin þín nær best til markhópsins. AUGLÝSINGAR Í SÉRBLÖÐUM *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar – mars 2011 BARNVÆNT
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.