Fréttablaðið - 03.09.2011, Blaðsíða 44
3. september 2011 LAUGARDAGUR2
Fæst í Bónus og Inspired,
Keflavíkurflugvelli
HOLLUR
BITAFISKUR
+ 80% prótín
Fiskneysla er góð
fyrir heilabúið
Hefurðu áhuga
á handverki
og vilt gefa af þér?
Kópavogsdeild Rauða krossins leitar að sjálfboðaliðum til að
taka þátt í skemmtilegu og handavinnumiðuðu fjáröflunarverkefni.
Deildin er að fara af stað með basarhóp sem hefur það hlutverk
að útbúa ýmis konar handverk fyrir jólabasar. Okkur vantar áhuga-
samt fólk í hópinn til að föndra, prjóna, hekla, sauma eða búa til
hvers kyns handverk til að selja á basarnum. Vertu með og nýttu
handavinnu til góðs!
Hópurinn hittist vikulega á þriðjudögum á milli kl. 10 og 14
í Rauðakrosshúsinu í Hamraborg 11.
Hafðu samband í síma 554 6626 eða mættu á samveru hópsins
og kynntu þér málið!
Rauðakrosshúsið Hamraborg 11 - Opið alla virka daga kl. 9-15 raudikrossinn.is/kopavogur
Dalvegi 18, Kóp.
Sími 568 6500
www.fondra.is
Opið 10-18 virka daga,
Laugardaga opið frá 11-16
Ný snið og sníðablöð. Höfum bætt við efnum á útsöluborðin Síðustu dagar útsölunar.
dómum áður en ég flutti hingað
suður með sjó en veit nú að þetta
týnda bæjarfélag í alfaraleið við
útganginn er notalegur drauma-
staður. Hér heilsar fólk náung-
anum og er kurteisara en gengur
og gerist,“ segir Hjalti, sem tekur
lífinu með ró um helgar og finnst
best að knúsa konu sína og börn.
„Ég djamma einu sinni á ári til að
minna mig á hverju ég missi ekki
af og að heima er allra best. Ég
er fjölskyldukall sem finnst gott
að elda góðan mat um helgar og
njóta töfra Reykjaness í allri sinni
dýrð. Hér er fjölskylduparadís
sem virkilega er gaman að njóta
en margir gleyma að skoða.“
Um helgina er Hjalti Parelius
með opna vinnustofu á efra lofti
Svarta Pakkhússins á Ljósanótt.
thordis@frettabladid.is
Hjalti Parelius hefur vakið mikla athygli
heima og að heiman fyrir málverk sín.
Framhald af forsíðu
Helena Reynisdóttir , sautján ára, hefur opnað sína
fyrstu einkasýningu í Energia kaffihúsinu í Smáralind.
Sýningin ber heitið Ekki er allt sem sýnist.
Opið hús verður í
Jógasetrinu, Borgar-
túni 20, í dag. Fríir
jógatímar verða í boði,
sá fyrsti hefst klukkan
9.30 og sá síðasti er á
dagskrá klukk-
an 16. Ýmsar
jógatengdar
vörur verða
kynntar um
leið.
www.jogasetrid.is
Sýningin Réttardagur sem opn-
aði í Safnahúsinu á Húsavík í
gær er 32. sýning í sýningaröð
myndlistakonunnar Aðalheiðar
S. Eysteinsdótt-
ur. Alls verða
sýningarnar 50
og allar unnar
undir sa ma
þemanu.
„Útgangs-
punkturinn er
íslenska sauð-
kindin og sú
menning sem
skapast um og
útfrá sauðkindinni. Þær eru þó
ekki alltaf eins,“ útskýrir Aðal-
heiður en hún hefur undanfarin
þrjú ár sett Réttardag upp um allt
land og í Bretlandi, Þýskalandi og
Hollandi. Hún segir sauðkindina
samofna íslenskri menningu.
„Við getum alltaf tengt við
hana, hvort sem við erum að
tala um söng, mat, fatnað eða
bókmenntir, allt tengist þetta
íslensku sveitameningunni. Sýn-
ingarnar hafa einnig fengið góðar
viðtökur í útlöndum en gegnum
alla veröldina er einhvers konar
bændamenning og fólk
samsamar sig henni.
Það kom mér á óvart
hvað við erum öll
mikil sveitabörn, inn
við beinið.“
Aðalheiður sníð-
ur hverja sýningu að
svæðinu þar sem hún
setur upp og vinnur
gjarnan með öðrum
listamönnum. Sýn-
inguna sem opnuð var
í gær vann hún með
nýtútskrifuðum lista-
manni, Arnari Ómarssyni. Hann
er einnig sonur Aðalheiðar og
segir hún samstarf þeirra mæðg-
ina hafa gengið vel.
„Það kom mér þægilega á óvart
en samt ekki. Við hugsum eins og
ein manneskja og bætum hvort
annað upp. Arnar vinnur með
rými úr alls konar timburafgöng-
um og gerði eins konar eyju sem
ég vann skúlptúra inn í,“ útskýrir
Aðalheiður.
18 sýningar eru eftir í sýn-
ingaröðinni og ætlar Aðalheið-
ur að ljúka henni með stæl árið
2013. „Lokasýningin verður í öllu
listagilinu á Akureyri á afmælis-
daginn minn 23. júlí. Þá verð ég
fimmtug og held því upp á fimm-
tugsafmælið með stæl.“
Sýningin verður opin á morg-
un milli klukan 13 og 16 en hún
stendur til októberloka.
heida@frettabladid.is
Réttardagur sýndur í
Safnahúsinu á Húsavík
Myndlistamennirnir og mæðginin Aðalheiður S. Eysteinsdóttir og Arnar Ómarsson opnuðu sýninguna
Réttardag á Húsavík í gær þar sem þau unnu út frá íslensku sauðkindinni.
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir vinnur sýningaröð útfrá íslensku sauðkindinni og opnaði
sýningu í Safnahúsinu á Húsavík í gær. MYND/AÐALHEIÐUR S. EYSTEINSDÓTTIR
Aðalheiður S.
Eysteinsdóttir