Fréttablaðið - 03.09.2011, Síða 65
LAUGARDAGUR 3. september 2011 7
Kynning - auglýsing
Ég sá pole fitness fyrst í London fyrir nokkrum árum og þótti það mjög áhugavert og ákvað að læra handtök-
in,“ segir Josy Zareen, eigandi Pole fitness
center á Íslandi í Faxafeni 12. Josy hefur
kennt súlufimi á Íslandi frá árinu 2006 og
var sú fyrsta til að gera það hér á landi. „Þá
kenndi ég í Magadanshúsinu,“ segir hún en
pole fitness varð fljótt svo vinsælt að Josy
ákvað að stofna sér batterí í kringum það.
En hvað er pole fitness? „Það er fyrir mér
nokkurs konar fimleikar á súlu. Þetta er
íþrótt og því æfum við ekki á háhæluðum
skóm heldur í íþróttaskóm eða skólausar,“
segir Josy. Hún telur að vinsældir súlufim-
innar sé ekki að rekja til súludansara. „Við
stundum þetta allt öðruvísi. Við notum
ekki dansa heldur nálgumst þetta eins og
líkamsrækt.“
Josy segir að konurnar í tímum sínum
séu sérstaklega ánægðar með hversu fljótt
þær nái árangri. „Þær fá aukið sjálfstraust
því breytingarnar á líkamanum eru fljót-
ar að koma fram. Fætur og hendur styrkj-
ast og hinir svokölluðu „bingóvöðvar“
hverfa fljótt,“ segir hún glettin og bætir við:
„Á fáeinum vikum finnur maður styrk-
inn aukast um heilan helling.“ Þeir sem
stunda pole fitness mæta þrisvar í viku.
„Við kenndum áður tvisvar í viku en fjölg-
uðum tímunum því fæstar konur eiga súlu
heima til að æfa sig á,“ segir Josy glaðlega
og bendir á að teygt sé vel fyrir og eftir æf-
ingar og stundum séu heilu tímarnir bara
með teygjum.
Að sögn Josy kemur mörgum á óvart
sem prófa pole fitness í fyrsta sinn hversu
skemmtileg íþróttin er. „Vissulega eru
sumar æfingarnar erfiðar en konurnar læra
hratt þá tækni sem til þarf, því þetta snýst
að mörgu leyti um tækni frekar en hreinan
styrk.“
Þegar Josy byrjaði að kenna súlufimi
fyrst í Magadanshúsinu voru stúlkurn-
ar sem sóttu tímana flestar á aldrinum 18
til 25 ára. Í dag eru langflestar á aldurs-
bilinu 25 til 30 ára. „Eldri stelpurnar sækja
orðið meira í súlufimina því þær vita að við
notum ekki hæla og hugsum þetta öðruvísi
en flestir.“
Sem dæmi um hugarfarsbreytingu
fólks nefnir Josy að hjá henni stundi
nokkrar mæðgur íþróttina saman.
„Mæður hafa hringt í mig með áhyggjur
af unglingsdætrum sínum sem hafa vilj-
að stunda súlufimi. Þegar ég útskýri fyrir
þeim út á hvað pole fitness gengur sann-
færast þær um að prófa sjálfar,“ segir Josy
og finnst skemmtilegt að fylgjast með
mæðgunum hjálpast að á súlunni.
Nánari upplýsingar má finna á www.
polefitness.is
SKEMMTILEG
íþrótt á súlu
Hjá Pole fitness center á Íslandi er kennd súlufimi, eða pole fitness. Þar er
aldrei æft í háum hælum enda segir Josy Zareen að pole fitness séu
fimleikar á súlu og eigi ekkert skylt við súludans.
„Ég hef alltaf verið dansandi, bæði
á böllum og heima, en ætlaði samt
alltaf að verða grafískur hönn-
uður og er menntuð sem slík frá
Listaháskólanum. Það skilar sér
þegar ég er að vinna í vefsíðunni
minni um dansinn, www.brynj-
apeturs.is,“ segir Brynja Péturs-
dóttir brosandi.
Hún byrjaði ung með sína eigin
starfsemi, eftir að hafa lært hip-
hop í Kramhúsinu og maga-
dans hjá Josy Zareen. „Ég opn-
aði heimasíðu og tók sal á leigu í
Árbæjarþreki 2004 til að kenna í,“
segir hún en kveðst svo sjálf hafa
sótt sér aukna dansmenntun út
fyrir landsteinana. „Ég fer minnst
tvisvar á ári út að dansa og læra,
oftast til New York þar sem ég er
með marga kennara en ég hef líka
lært í London, París, Stokkhólmi
og Kaupmannahöfn. Helsinki bæt-
ist á listann núna í haust,“ segir
hún og bætir við: „Þetta er nefni-
lega svo slungið með street-dans-
inn. Ef fólk er í klassískum döns-
um, djassi eða ballett þá fær það
gráðu en skólar kenna ekki street-
stílana til prófs heldur þróast þeir
bara, sem er svo fallegt.“
Brynja kveðst meðal annars
hitta reglulega kennara í New
York sem haldi utan um hiphop-
dansinn, bæði gömlu sporin og
nýju. „Buddha Stretch er alger
gúru og vann meðal annars fyrir
Michael Jackson. Hann hefur haft
mikil áhrif á mótun dansins og
mörg spor urðu til heima í stofu
hjá honum. Hiphop er nefnilega
svo ungur dans að enn er hægt að
finna frumkvöðlana sem hafa fylgt
honum frá byrjun.“
Brynja er enn með námskeið í
Árbæjarþreki og er að bæta við
tímum í Hreyfingu þar sem hægt
er að koma í dans og fá opið kort
í líkamsrækt. Hún kveðst kenna í
hópum, 12 til 15 ára, 16 til 19 ára
og svo 20 plús. Þannig fái hún til
sín bæði byrjendur og reyndara
fólk. gun@frettabladid.is
Dansinn er mín ástríða
Brynja Pétursdóttir er ástríðudansari sem aðhyllist hiphop og aðra street-dansa sem hún lærir úti í
löndum. Hún hefur kennt í Árbæjarþreki undanfarin ár og er nú að bæta danstímum í Hreyfingu við.
Street-dansinn hefur smám saman verið að ryðja sér til rúms og bæði strákar og
stelpur stunda hann. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Josy Zareen leggur ríka áherslu
á að súlufimi sé íþrótt og eigi
ekkert sameiginlegt með
súludansi.
Á fáeinum vikum finnur
maður styrkinn aukast
um heilan helling.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI FRÓÐLEIKUR
Meiri Vísir.