Fréttablaðið - 03.09.2011, Page 72
6 fjölskyldan
Krakkar
Frábær 14 vikna námskeið
fyrir ykkur. Yngst 5 ára.
Freestyle
Michael Jackson
Break
Allt það nýjasta
Yngst 9 ára
Einnig námskeið fyrir 18+
Reykjavík og Mosfellsbær
Innritun og upplýsingar
www.dansskoliheidars.is
og í síma 551 3129
milli klukkan 16 og 20 til 12. sept.
Kennsla hefst mánudaginn 12. sept.
Systkinaafsláttur 2. barn hálft gjald 3. barn frítt
Reykjavík og Mosfellsbær styrkja dansnám barna
Konusalsa
Sjóðheitt námskeið.
Hentar öllum konum,
ungum og öldnum,
liðugum og stirðum.
Skemmtileg hjóna-
og paranámskeið
Byrjendur og framhald.
Keppnisdansar
Hinn frábæri
danskennari
Svanhildur Sigurðardóttir
sér um þjálfunina.
Mæting 2x eða 3x í viku.
Í 50 ár
LOSAÐU ÞIG VIÐ
SYKURFÍKNINA
OG KRÆKTU ÞÉR Í FULLT AF ORKU!
20%
AFSLÁTTU
R
Þú færð Turbo Greens í
heilsubúðum, apótekum og
heilsuhillum stórmarkaðanna Innflutningsaðili:
KUNG FU tímar
fyrir krakka
Skeifunni 3j • Sími 553 8282 • heilsudrekinn.is
Byrja 5.september
Haustskráning hafin
Snáðarnir mínir hafa gott nef fyrir því hvaða bækur eru líklegar til að falla í kramið hjá öðru smáfólki. Ég treysti
því dómgreind þeirra fyllilega og
ber reglulega undir þá álitlegan
bókakost sem þeir ýmist samþykkja
eða hafna,“ segir Sara Hlín Hálf-
dánardóttir, sem í bíltúr fyrir fimm
árum fékk þá flugu í höfuðið að gefa
út barnabækur undir forlagsnafninu
Unga ástin mín.
„Þá var eldri sonur minn orðinn
mikill bókaormur en á bókasafninu
freistaði bókakosturinn ekki nóg.
Ég fór því á Amazon og pantaði lit-
ríkar, harðspjalda smábarnabækur
með ljósmyndum af alvöru dýrum,
því sá stutti áttaði sig ekki alltaf
á því hvort svín eða kónguló væri
á teikningum sumra bóka,“ segir
Sara, sem veðjaði á að eins yrði með
önnur börn þegar hún sá son sinn
eiga endalaust góðar stundir með
bókunum að utan.
Fyrsta árið gaf hún út sex bækur
úr geymslunni sinni á Álftanesi, en
fimm árum seinna eru bókatitlarn-
ir orðnir sextíu talsins og umsvif-
in rekin frá Englandi, þar sem
Sara býr með fjölskyldu sinni í litlu
sveitaþorpi nálægt Cambridge.
„Hér er ég í suðupotti barnabók-
mennta. Bretar eru ekki síðri bóka-
þjóð en Íslendingar og kröfuharðir á
að börn byrji snemma að lesa. Þann-
ig á fjögurra ára sonur minn að vera
farinn að stauta sig í gegnum staf-
rófið og mikið er lagt upp úr end-
ursögn barna úr bókum og að þau
geti lagt dóm á sögupersónur og
boðskap,“ segir Sara, sæl með lífið
og tilveruna úti. „Hér krefst lífið
samstöðu og við höfum borið gæfu
til að vera samstíga. Fjölskyldan
hefur líka orðið nánari þegar stór-
fjölskyldan er ekki til taks. Eftir
skóla tekur við leikur með vinum
og samvera fjölskyldunnar, og um
helgar förum við í dýragarð, sund, á
söfn eða í heimsókn til vina. Í lengri
skólafríum förum við til Frakklands
eða í sveitaferðir því skólaárið er
öðruvísi en heima og mikið um löng
frí inni á milli allt skólaárið.“
Sara segir breskar konur í meiri-
hluta kveðja vinnumarkað um 35
til 40 ára aldur til að snúa sér að
barneignum. „Það sem eftir lifir
eru karlarnir fyrirvinnan og vinna
langan vinnudag. Því sætir hér
undrum að minn maður skuli taka
til hendinni heima og jafnvel vera
einn með börnin þegar ég þarf í
lengri vinnuferðir. Ég fyllist því
stolti yfir hversu langt Íslendingar
eru komnir í jafnréttisbaráttunni.“
Í tilefni afmælisins verða bóka-
titlar útgáfunnar á allt að sextíu
prósenta afslætti á öllum sölustöð-
um, sem Sara segir afmælisgjöf til
barna landsins og gefa fólki færi á
að vera snemma í jólainnkaupum.
„Ég er óendanlega þakklát fyrir
þessar góðu viðtökur. Elsku eigin-
maðurinn minn hefur verið mín
hægri hönd allan tímann, en hann
er stjórnarformaður og ég fram-
kvæmdastjóri. Árlega sitjum við
saman stjórnarfundi og þar verð-
ur okkur iðulega sundurorða. Alla
jafna rekur hann mig í lok fundar-
ins en ræður mig jafnharðan aftur
því hann veit að hann fær ekki
betri framkvæmdastjóra,“ segir
Sara hlæjandi. „Það er búið að vera
gaman að standa í þessu ævintýri
með honum og víst er að hann hefur
sparað mér mörg mistökin með því
halda mér niðri á jörðinni.” - þlg
BÖRNIN ERU BEST
dómbær á bækur
Unga ástin mín er fimm ára í dag. Fædd á Álftanesi, þar sem hún sleit barnsskónum í
lítilli geymslu, en dafnar nú sem aldrei fyrr á Englandi í umsjá þriggja systkina sem vita
hvað þau og önnur börn vilja þegar kemur að lestri góðra bóka.
Ekta fjölskyldufyrirtæki Sara Hlín með eiginmanni sínum, Davíð Guðjónssyni, og börnunum Hávari Daníel fjögurra
ára, Hugrúnu Evu sex mánaða og Alvari Davíð sjö ára, sem er höfuðpaurinn í Unga ástin mín og varð til þess að
bókaútgáfan varð til. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON