Fréttablaðið - 03.09.2011, Blaðsíða 93

Fréttablaðið - 03.09.2011, Blaðsíða 93
LAUGARDAGUR 3. september 2011 57 SKRÁÐU ÞIG Í SÖNGNÁM NÚNA ListaAkademían kynnir 3ja mánaða framhaldsnám Fyrir þá sem hafa lokið CVT grunnnámi og stefna á framhald. Hópur C – Hefst 6. september. Kennsla fer fram á þriðjudögum í september, október og nóvember, alls 12 skipti. Fjöldi þátttakenda er 8 á hverju námskeiði. Aldurstakmark 20 ára. 3ja mánaða söngnám fyrir 14–17 ára Fyrir unga söngvara sem vilja bæta sig eða þá sem stefna á söng- eða leiklistarnám í framtíðinni. Hefst 5. september. Kennsla fer fram á mánudögum í september, október og nóvember, alls 12 skipti Fjöldi þátttakenda er 8 til 10 á hverju námskeiði. Aldurstakmark 14 ára. 3ja mánaða grunnnám í CVT Fyrir þá sem vilja bæta söngkunnáttu sína eða þá sem stefna á söng- eða leiklistarnám í framtíðinni. Hópur A – Hópur B – Hefst 14. september. Kennsla fer fram annan hvern miðvikudag og fimmtudag í september, október og nóvember, alls 12 skipti. Fjöldi þátttakenda er 8 til 12 á hverju námskeiði. Aldurstakmark 18 ára. NÝTT SKRÁNING STENDUR YFIR ÖRFÁ PLÁSS LAUS LAUST LAUST FULLT COMPLETE VOCAL STÚDÍÓ Skráning á námskeiðin fer fram á hera@herabjork.com og í síma 864 3704. Kennarar: Hilda Örvars, Birgitta Haukdal, Björk Jónsdóttir, Ágústa Ósk og Hera Björk. Undirleikarar: Pálmi Sigurhjartar, Agnar Már, Ásgeir Ásgeirs og Andrés Þór. „Ég tók eins árs nám í Complete Vocal Technique og mæli hiklaust með þessari tækni. Ég náði að staðsetja ýmislegt í söngröddinni sem ég vissi ekki að ég ætti til. Allt sem var svo erfitt fyrir mig að syngja í gamla daga er núna ekkert mál. Ég hafði mjög gott af þessu og kom sjálfum mér á óvart.“ Páll Óskar Söngkonan HERA BJÖRK er í forsvari fyrir Complete Vocal Stúdíó. Hún er með kennararéttindi frá Complete Vocal Institute í Kaupmannahöfn og hefur unnið fyrir skólann víðsvegar um Evrópu sem fyrirlesari og kennari. Hera Björk hefur kennt tæknina hér á landi undanfarin ár við góðan orðstír. Kl ap pa rs tíg ur Laugavegur Hverfisgata 29 Rakarastofan Klapparstíg Klapparstíg 29 • Sími 551 3010 Opið lau kl. 10-14 Hárgreiðslustofan Klapparstíg FÓLKIÐ Í KJALLARANUM Ilmur Kristjáns- dóttir var tilnefnd til Grímuverðlauna fyrir frammistöðu sína. Leiksýningin Fólkið í kjallaran- um fer aftur á fjalir Nýja sviðs Borgarleikhússins nú um helgina. Leikritið byggir á samnefndri skáldsögu Auðar Jónsdóttur og er lýst sem grátbroslegri sögu en um leið uppgjöri við ’68 kynslóð- ina og venjubundnar hugmyndir um lífið og tilveruna. Með aðal- hlutverk fara Ilmur Kristjáns- dóttir, Guðjón Davíð Karlsson, Birgitta Birgisdóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir og Jóhann Sig- urðarson. Verkið var tilnefnt til níu Grímuverðlauna og voru Auður og Ólafur Egilsson valin leikskáld ársins. Takmarkaður sýningafjöldi verður nú í haust, þar sem sýningin þarf að víkja fyrir öðrum verkum í október. Fólkið í kjallaranum aftur á svið Hannes Pétursson, eitt af merk- ustu samtímaskáldum Íslands, sendir frá sér nýtt verk í haust. Bókin nefnist Jarðlag í tímanum - Minningarmyndir úr barnæsku. Þar skráir Hannes minningabrot úr barnæsku sinni norður í Skagafirði af kunnu listfengi. „Myndirnar sem hann dregur upp eru frá því úr bráðri bernsku hans og fram yfir seinni heims- styrjöld þegar hann flytur ungling- ur til Reykjavíkur,“ segir Sigurður Svavarsson, forleggjari hjá Opnu sem gefur bókina út. Hann segir minningarmyndirnar bæði segja sögu samfélags og þjóðar, sem og frá því hvernig skáld mótast. „Það hefur margt drifið á daga Hannesar og hann nær aftur í fornan tíma, til dæmis í sveita- dvöl frammi í sveit og þegar hann á lýveldisárinu starfar sem kúskur í vegagerð með hestvagni í brekk- um Öxnadalsheiðar Skagafjarðar- megin, meðan fyrsta jarðýtan er að leggja af stað Eyjafjarðarmeg- in. Hann er unglingur á Króknum á stríðsárunum og sér Marlene Dietrich syngja fyrir hermenn- ina í Bifröst. Öllu lýsir Hannes svo skáldlega að úr verður lítill míkró- kosmos; þó hann skyggnist um frá Króknum sem einungis er Depill á hnettinum, svo vísað sé í fyrsta kaflaheiti bókarinnar. Myndir af samferðarfólki eru skýrt dregnar og sitja lengi í minninu.“ Hannes hefur unnið að bókinni í nokkur ár. Að sögn Sigurðar verð- ur hún hátt í 400 síður að lengd og kemur líklega út um mánaðamót október/nóvember. Hannes Pétursson sendi síðast frá sér ljóðabókina Fyrir kvölddyr- um árið 2006 sem var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. - bs Hannes Pétursson rifjar upp æskuárin HANNES PÉTURSSON Rifjar upp æskuár sín norður í Skagafirði í bókinni Jarðlag í tímanum, sem kemur út í haust. Myndlistarkonan Þóra Þóris- dóttir heldur kynningu á sýn- ingu sinni „Rubrica“ eftir messu í Hallgrímskirkju á sunnudag. Sýning Þóru Þórisdóttur, „Rubrica“, hefur vakið nokkra athygli. Á sýningunni eru mynd- verk sem fjalla um túlkun Þóru á Heilögum anda, en hún leggur áherslu á að rétta við kynjað táknmál Biblíunnar. Lykilverk- ið á sýningunni er Biblía sem Þóra hefur þvegið með saltvatni og blóði ásamt því að skrifa inn ýmsar hugleiðingar og leið- beiningar. Titill sýningarinnar „Rubrica“ vísar meðal annars til rauða litarins í yfirskriftum, greinirósum og leiðbeiningum í helgum ritum. Sýning Þóru er þriðja sýningin í sýningaröð Listvinafélags Hall- grímskirkju, Kristin minni. Guð- rún Kristjánsdóttir er hugmynda- smiður sýningaraðarinnar en Ólöf Nordal er sýningastjóri Rubica. Kynning Þóru hefst klukkan 12.30 á sunnudag og eru allir vel- komnir. Á heimasíðu Listvina- félagsins má enn fremur nálgast upptöku af samræðu myndlistar- mannsins við Sólveigu Önnu Bóas- dóttur guðfræðing og Ólaf Gísla- son listfræðing. Sýning Þóru stendur fram yfir miðjan september og er opin alla daga frá 9 til 17. Rýnt í Rubica Þóru
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.