Fréttablaðið - 03.09.2011, Síða 94
3. september 2011 LAUGARDAGUR58
folk@frettabladid.is
+ Bókaðu flug á www.icelandair.is
Innifalið: Flug aðra leiðina og flugvallar skattar. Þessi ferð gefur frá 2.100 til 6.300 Vildarpunkta aðra leiðina.
BARNABÖRN lífga nú upp á líf sálfræðingsins dr. Phil
McGraw eftir að syni hans og tengdadóttur fæddist sonur í
vikunni. Daginn eftir fagnaði sáli svo 61 árs afmæli sínu.
Rokkarinn Gene Simmons úr
hljómsveitinni Kiss mun ganga
að eiga Shannon Tweed í Los
Angeles hinn 1. október næst-
komandi. Simmons bað um hönd
Tweed í raunveruleikaþætti
sínum, Gene Simmons Family
Jewels, í júlí síðastliðnum. Þeim
liggur greinilega á að láta pússa
sig saman, sem verður að teljast
fyndið í ljósi þess að þau hafa
búið saman síðan 1985.
Simmons og Tweed, sem taka
mun upp eftirnafn rokkarans,
eiga tvö börn saman, soninn
Nicholas sem er 22 ára og dótt-
urina Sophie sem er 18 ára.
Gene gamli
genginn út
ÁSTFANGIN Gene Simmons og Shannon
Tweed ganga upp að altarinu í næsta
mánuði. NORDICPHOTOS/GETTY
Bíó ★★★★
Á annan veg
Leikstjóri: Hafsteinn Gunnar Sigurðsson
Aðalhlutverk: Hilmar Guðjónsson, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Þor-
steinn Bachmann
Maður er manns gaman
Sögusviðið er níundi áratugurinn. Finnbogi og Alfreð eru vegavinnumenn
sem eyða heilu sumri saman á ótilgreindum sveitavegi og mála gular línur
og berja stikur ofan í jörðina. Finnbogi er ástmaður systur Alfreðs, og mönn-
unum semur ágætlega þrátt fyrir stöku árekstra. Svona hefst kvikmyndin Á
annan veg, sem er fyrsta mynd leikstjórans Hafsteins Gunnars Sigurðssonar.
Stórbrotin náttúra Íslands spilar stórt hlutverk í myndinni og fjarlægðin
við ys og þys bæjarins skapar einmanalega stemningu. Ég gæti hugsað mér
að berja niður nokkrar stikur með þeim félögum en síðan þyrfti ég að láta
mig hverfa. Menn þurfa að vera ansi samstilltir til að þola nærveru hvor
annars viku eftir viku í einangrun, og þó að Alfreð keyri í bæinn um helgar til
að „fá utan um hann“ verða samskipti mannanna sífellt súrari eftir því sem
líður á sumarið.
Á annan veg er þroskasaga. Í upphafi myndar fær áhorfandinn þá til-
finningu fyrir Finnboga að hann sé sá þroskaði og klári en að Alfreð sé
metnaðarlaus vitleysingur. Ekki er þó allt sem sýnist og í ljós kemur að Finn-
bogi á talsvert eftir ólært um lífið og tilveruna, og smám saman rennur það
upp fyrir honum að hann getur lært heilmikið af vitleysingnum. Þegar Alfreð
fer í fýlu og lætur sig hverfa getur Finnbogi varla barið niður vegastiku, og
lýsir sú sena vináttu þeirra vel. Eins ólíkir og þeir eru virðast þeir háðir hvor
öðrum, bæði andlega og í vinnunni. Maður er jú manns gaman.
Það eru þeir Hilmar Guðjónsson og Sveinn Ólafur Gunnarsson sem fara með
hlutverk félaganna og samleikur þeirra er óaðfinnanlegur. Þorsteini Bachmann
bregður fyrir annað slagið í líki vörubílstjóra og bannsettur senuþjófurinn sem
hann er fær mann til að vilja sjá miklu meira af honum. Stundum fékk ég það
reyndar á tilfinninguna að hann væri hreinlega ekki til. Annað hvort ímyndun
mannanna eða hugsanlega draugur.
Útlit myndarinnar er áferðarfallegt og minimalískt, og myndatakan er
hreinasta afbragð. Hafsteinn leikstjóri heldur vel utan um söguna og leyfir
senunum að dragast vel á langinn, og hentar það myndinni fullkomlega.
Endir myndarinnar er þó helst til snubbóttur, og hann er það eina sem ég
finn að annars stórgóðri mynd.
Haukur Viðar Alfreðsson
Niðurstaða: Óvenju þroskuð kvikmynd frá nýliðanum Hafsteini, krydduð
hæfilegum skammti af húmor og depurð.
Kvikmyndin Á annan veg var frumsýnd í Háskólabíói
á fimmtudaginn var. Margmenni sótti sýninguna og
skemmti fólk sér konunglega.
Á annan veg er gamanmynd í leikstjórn Hafsteins G. Sigurðssonar sem
fjallar um tvo unga menn sem starfa við vegavinnu á afskekktum fjall-
vegum á níunda áratugnum. Með aðalhlutverk fara Sveinn Ólafur Gunn-
arsson, Hilmar Guðjónsson og Þorsteinn Bachmann.
Vegavinnumenn
Í SVIÐSLJÓSINU
KÁTIR KAPPAR Hafsteinn Gunnar
Sigurðsson, leikstjóri myndarinnar, og
Sindri Kjartansson framleiðandi voru
kátir á frumsýningunni.
GOTT GRÍN Uppistandararnir Halldór Halldórsson og Bergur Ebbi Benediktsson
ásamt eiginkonu þess síðarnefnda, Rán Ingvarsdóttur.
LEIKSTJÓRASPJALL Leikstjórarnir Friðrik Þór Friðriksson og Benedikt Erlingsson spjöll-
uðu saman fyrir sýninguna.
AÐALLEIKARARNIR Leikstjórinn Hafsteinn Gunnar ásamt leikurunum Hilmari Guð-
jónssyni og Sveini Ólafi Gunnarssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FLOTTIR FEÐGAR Feðgarnir Sigurjón
Kjartansson og Egill Gauti létu sig ekki
vanta á frumsýninguna. Sigurjón er
bróðir Sindra, framleiðanda myndarinnar.
2