Faxi - 01.03.1986, Síða 13
Eríndi eftir Guðjón Magnússon aðstoðarlandlæknir
Heilbrigði er eitt þeirra lífsgæða
sem hæst eru skrifuð í gildismati
nútímans. Heilbrigði er hvort-
tveggja í senn dýrmætasta eign
hvers einstaklings og ein verðmæt-
asta auðlind hverrar þjóðar.
En hvað er heilbrigði?
heil-brigði KV ÓB (eða -is H) 1
hreysti, það að vera heilbrigður.
2. heilsa, heilsufar: heilbrigðis-
ástand, -lögregla, -mál, -fulltrúi,
-stétt starfsstétt sem fæst við heil-
brigðismál, -þjónusta, -brigður 1.
heill, hraustur, sjúkdómslaus,
sem líður vel líkamlega eða and-
lcga. ýr oröabók.
Heilbrigði er afstætt hugtak sem
ekki er unnt að sltilgreina á þann
veg að allir sætti sig við. Til þess
er hugtakið of margþætt, teygjan-
legt og breytilegt.
Hvaða tilgangi þjónar það þá að
skilgreina heilbrigði?
,,I fyrsta lagi er æskilegt að geta
sagt til um það hver sé ekki heil-
brigður, m.a. til að stuðla að sem
réttlátastri skiptingu framlags
samfélagsins til þeirra sem eru
sjúkir.
í öðru lagi hefur það pólitíska
þýðingu að geta, ,mælt“ framfarir
og árangur. Eru fleiri eða færri
heilbrigðir nú en áður?
í þriðja lagi getur það verið
nauðsynlegt vegna rannsókna og
vísindastarfa.
Heilbrigði er oft skilgreind sem
andstæða við sjúkleika. Er þá
gengið út frá því að auðveldara sé
að ákveða hvort viðkomandi ein-
staklingur sé veikur en að segja til
um hvort sá sami sé heilbrigður.
Miðað er við hlutlægt eða huglægt
mat.
Hlutlæga matið leggur áherslu á
einkenni, teikn sjúkdóma og nið-
urstöður rannsókna. Jafnframt er
gert ráð fyrir að til staðar séu sárs-
Guðjón Magnússon,
auki, angist eða kvíði, eða þá
skert starfshæfni. Þá er áskilið að
sjúkdómsferillinn fylgi, a.m.k. í
aðalatriðum, lýsingum í fræðirit-
um.
Huglæga matið er opnara og
ffjálslegra, fleiri einkenni og teikn
koma til greina en ekki er krafist
rannsóknarniðurstaðna er styðja
sjúkdómsgreininguna. Á sama
hátt skiptir ekki jafnmiklu máli
og við hlutlægt mat hvort sjúk-
dómsferill fellur að eldri lýsing-
um.
Það má skoða þessar tvær skýr-
ingar í ljósi langrar þróunar. Hlut-
læga matið má rekja til bráðra
smitsjúkdóma sem einkenndu
sjúkdómatíðni áður fyrr. Hug-
læga matið er aftur á móti tengt
hugmyndum um truflun á jafn-
vægi sálar og líkama. En er þá
auðvelt að segja til um hver sé
veikur? Lítum aðeins nánar á
helstu kenningar um orsakir
sjúkleika.
Gjafavara I úrvali
Mikiö
úrval
df
grafík
og
málverkum
eftir
þekkf
lisfafólk
Innnömmun
SuDunnesun
Vatnsnesvegi 12 — Keflavík.
Sími 3598.
FAXI 89