Faxi - 01.03.1986, Page 37
fjármagnað - og nú var að njóta
sólarferðar. Hýrlegt og ágengt
bros þjónsins, leikinn af Bimi
Sveinssyni, þokaði hugarfarinu
bægt og sígandi út af staðfastri
braut frúarinnar, sem endaði með
þeirri eindregnu niðurstöðu að
karlmennirnir hefðu ekki einka-
feyfi á framhjáhaldi. Kannske
gerir slík niðurstaða minni usla í
hjúskaparsáttmálanum en maður
hafði vænst a.m.k. var það svo hjá
þeim hjónum. Þau pökkuðu í
töskur sínar til heimferðar í sæmi-
legu samkomulagi, þó kaupgleði
frúarinnar færi dálítið í taugarnar
og þrengdi að rúmtaki ferðatösk-
unnar.
Unnsteinn hefur lengi verið einn
af megin burðarásum L.l. og var
það greinilega í þessari sýningu.
Sigurbjörg lék einnig af prýði —
líklega stærsta hlutverk sem hún
hefur leikið hingað til. Önnur
hlutverk gáfu ekki tilefni til
átakaleiks, en öll voru þau ,,með
á nótunum“ og fylltu vel út í
rammann — kannske svolítið mis-
munandi litrík, t.d. dansaði Þór-
ný af þokka og nokkru yfirlætí —
já því ekki það, eða litlaus eins og
flagaranum-þjóninum — tókst að
vera í von um að hann fengi, ,pen-
ing fyrir lítið viðvik“.
Aðrir sem unnu að sýningunni
voru: Ljósameistari: Sævar Ósk-
arsson. Hljóð: Ástþór B. Sigurðs-
son.
Framkvæmda- og sýningarstjóri:
Sigfús Dýrfjör. Stjórn smíða-
vinnu: Viggó Benediktsson. Leik-
myndateiknun: Bragi Einarsson.
Hvíslarar: Anna María Guð-
mundsdóttir og Guðríður Guð-
jónsdóttir. Búningar: Guðný Jó-
hannsdóttir, Unnur Jóhannsdótt-
ir og Sigríður Halldórsdóttir.
Litla leikfélagið fer 6. maí í leik-
för til Danmerkur og mun þar
hafa 3 sýningar á Viva Espana
(Sólarferð).
Faxi óskar þeim góðrar ferðar.
Núverandi stjórn Litla leikfélags-
ins skipa: Formaður: Sigfús Dýr-
fjörð. Varaformaður: Unnsteinn
Egill Kristinsson. Gjaldkeri:
Svavar Óskarsson. Ritari: Ólafur
Sigurðsson. Meðstjórnandi: Þór-
ný Jóhannsdóttir. Varamenn:
Guðrún Stefánsdóttir, Ómar Jó-
hannsson.
cy
Hvenær
byrjaðir
þú 4
Opinn fundur um vímuefni
Þriðjudaginn 8. apríl gengust for-
eldrafélög Myllubakkaskóla og Holta-
skóla fyrir opnum fundi um vímu-
eíni.
Fundinum stýrði Konráð Lúðvíks-
son læknir, formaður foreldrafélags
My llubakkaskóla.
Frummælendur voru: Þórarinn
Týrfingsson læknir, Bogi Amar Finn-
bogason, formaður foreldrafélaga í
Reykjavík, Óskar Þórmundsson lög-
reglumaður og Ambjöm Ólafsson
læknir.
IVeir fyrri frummælendur töluðu
einlcum um ólögleg vímuefni og vam-
ir gegn þeim. Fram kom hjá Óskari að
frá Í980 hafa um 250 verið teknir á
Suðumesjum af lögreglu fyrir fíkni-
efnaneyslu. Ambjöm sagði frá
reynslu sinni sem læknir og auknum
drykkjuskap á þessu svæði.
Á eftir framsöguerindum töluðu all-
margir:
Kom fram gagnrýni á þá stefnu að
aðskilja vímuefni í lögleg og ólögleg og
mótmælt var uppgjöf fyrir löglegum
vímugjöfum eins og áfengi.
Harðastir í þessari gagnrýni vom
Hilmar Jónsson og Tómas Tómasson.
Séra Öm Báður Jónsson prestur í
Grindavík taldi að fólk skorti fótfestu
og trú. Þess vegna væri siðferðið á
lágu stigi og vímuefnaneysla vaxandi.
Skarphéðinn Njálsson lýsti allítar-
lega ýmsum tækjum og tólum sem eit-
urlyfjaneytendur nota. Hann harmaði
að bindindi og ungtemplarafélög ættu
minnkandi gengi að fagna meðal ungl-
inga.
Jón Helgason nemi sagði frá heim-
sókn í skóla sem hann hafði unnið að
og fræðslufundi í Tónabæ í byrjun
janúar. Jón lagði áherslu á trúarleg
viðhorf. Þau væru besta meðalið gegn
víni og dópi.
Fundurinn var mjög vel sóttur af
fullorðnum.
5Sj Kjc W ÍK Kjörskró fyrir bœjarstjó lögö fram á skrifstofu i- götu 12, 31. mars og li Bœjarstjórinn í Keflavi jrskrá eflavík rnarkosningarnar í Keflavík var (eflavíkurkaupstaöar, Hafnar- ggur hún frammi í fjórar vikur. k
Verslunarba Óskum Suöu farsœldar á og þökkum liðnum vetri /Æ Verslunc Útibúiö Vatnsr '0' inki íslands hf. rnesjamönnum komandi sumri viðskiptin á irbanki íslands h.f. lesvegi 14 í Keflavík
FAXI 113