Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1990, Side 4

Faxi - 01.12.1990, Side 4
Jólahugvekja Séra )óna Kristín Porvaldsdóttir Grindavík Eflum mannúÖ og bœtum samfélag okkar ,,Sá sem hefur tvo kyrtlci, gefi þeim annan, sem engan hefur, og sá sem matföng hefur geri eins'' (Lúk. 3:11). Þetta er lífsregla sem Jóhannes skírari gaf fylgjendum fagnað- arerindisins til að fara eftir. Á aðventunni höfða þessi orð sterkt til okkar. Síðustu vikurnar fyrir jól eru í hugum kristinna manna tími mannúðar og gjaf- mildi. Þráttfyrir eril og tímaleysi nú- tímans, finnum við alls staðar í kringum okkur nálœgð jólahá- tíðarinnar. — Jólaljósin, jóla- gjafirnar og jólakveðjurnar eru meðalþess sem hvarvetna minn- ir okkur á hátíðina miklu sem framundan er. — Við lýsum upp skammdegismyrkrið með marg- lituðum Ijósum sem gleðja aug- að. Þau stafa frá sér birtu og hlýju. Jólagjafirnar fœra gleði og sýna elsku í garð þiggjenda. Jólakveðjurnar eru ómissandi og sennilega einn áhrifamesti þátt- ur jólaundirbúningsins. Það er ekki í annan tíma á árinu sem við setjumst niður með lista af nöfnum yfir œttingja og vini nœr og fjœr — og kvittum persónu- lega undir góðar kveðjur og ósk- ir um farsœldþeim til handa. Við komumst ekki hjá því að rifja upp í leiðinni samband okkar og samskipti við aðra. Stundum eru jólakveðjurnar einu tengslin milli fólks. í annan tíma er sam- bandsleysi og afskiptaleysi. Jólakveðjan verðurekki síst mik- ilvœg einmitt í þeim tilfellum þegar önnur samskipti eru ekki rœktuð. Hún er merki um það að enn eru tengsl á milli. Lestur jólakveðja í útvarpi er einnig áberandi þáttur undirbúnings- ins. Algengt er að fólk stilli á lestur kveðjanna meðan það skreytir híbýli sín eða lýkur við jólabaksturinn. Lestur þeirra fœr okkur til að hugsa um þá sem ekki geta verið heima hjá sér um jólin, vegna vinnu sinnar eða veikinda. Sumir eiga enga nákomna œttingja eða vini og eru einir um hátíðina. Aðrir eru þaö fátœkir að þeir geta ekki gert sér daga- mun í veisluföngum, klœðum og gjöfum sem sjálfsagtþykir í okk- ar samfélagi. Ég veit ekki hvernig lífskjör þín eru lesandi minn. En hvernig sem þeim er háttað, œttu orð Jó- hannesar skírara að höfða til þín. ,,Sá sem hefur tvo kyrtla, gefi þeim annan, sem engan á, og sá sem matföng hefur geri eins" Ef þú hefur nóg að bíta og brenna, hugsaðu þá til þeirra sem þú getur gefið af nœgtum þínum. Þeir eru margir. —Efefni þín eru lítil, þá er það styrkur að vita að kristileg skylda sérhvers manns er að huga að kjörum meðsystkina sinna og rétta út hjálparhönd. Jólin koma og vitja allra. Not- um tímann vel þar til hátíðin gengur í garð. Eflum mannúð og bcetum samfélag okkar. Leyfum kœrleikanum sem Kristur boðar að starfa með okkur í fallegum hugsunum oggóðum verkum. — Setjum Ijósið hans ekki í geymsl- una með öðrum jólaljósum, þeg- ar jólunum lýkur nú, — heldur látum það lýsa allt kirkjuárið. Við birtu þess varðveitum við kœrleikann meðal okkar. Tökum undir bœnavers Guð- mundar Guðmundssonar: Mig vantcir styrk í kœrleik, kraft í trú, og kristilega audmýkt barnsins góða. En veikleik minn og breyskleik þekkir þú og þrá míns hjarta, bœnarmálið hljóða. Ó. gef mér kraft að grceða fáein sár, og gjörðu bjart og hreint i sálu minni, svo verði' hún kristalstœr sem barnsins tár og tindri’ í henni Ijómi’ af hátign þinni. Guð gefi þér og þínum gleðileg jól og farsœlt nýtt ár. 196 FAXI

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.