Faxi - 01.12.1990, Blaðsíða 7
sorpi í stöðinni, en urða gjall,
óbrennanlegt og stórgert sorp á
sorphaugum nærri Stafnesi. Því
miður hefur há bilanatíðni sorpeyð-
ingarstöðvarinnar orðið til þess að
umtalsvert magn af brennanlegu
sorpi hefur verið urðað á Stafnes-
haugunum. Haugarnir eru fjarri því
að uppfylla kröfur sem gerðar eru til
uröunar heimilissorps enda aldrei
til þess ætlaðir. Ekki eru likur á að
þetta breytist í bráð og er Heilbrigð-
iseftirlit Suðurnesja að vinna drög
að starfsleyfi sem utanríkisráðu-
neytið mun gefa í reglugerð, þar
sem ýtrustu mengunarvarna verður
krafist.
En sorpbrennsla af því tagi sem
hér um ræðir getur verið hættuleg
umhverfinu, Það er nefnilega algert
skilyrði að sorpið sé flokkað og úr
því fjarlægð umhverfisskaðleg efni.
Við vitum t.d. að töluvert magn af
rafhlöðum sem innihald akadmium
og kvikasilfur eru í heimilissorpi.
Þegar sorpið er brennt berast þung-
málmarnir með reyk út í umhverfið.
Þessi efni eru skaðleg fólki og geta
m.a. valdið fósturskaða hjá þunguð-
um konum. Mjög brýnt er að koma
upp móttökustöð fyrir hættuleg og
mengandi efni hér á Suðurnesjum.
Segja má með sanni að mann-
skepnan hafi bruðlað með auðlindir
jarðar eins og þær séu óþrjótandi.
Við vitum nú að svo er ekki og bein-
ast því sjónir manna í æ ríkara mæli
að ýmiskonar endurvinnslu. Talið
er að hægt sé að endurnýta allt að
30—40% af efnum í heimilissorpi.
Það er ekki lengur spurning um
hvort flokkun og endurvinnsla á
sorpi verði hér á Suðurnesjum held-
ur hvenær.
Einn er sá málaflokkur sem hvað
mestri armæðu veldur hjá mínu
embætti, en það er rusl og drasl á
lóðum og lendum. Heilbrigðiseftir-
litið stendur á hverjum degi í argvít-
ugri baráttu við fyrirtækjaeigendur
um að þeir haldi umhverfi fyrirtækj-
anna snyrtilegu. Metnaður þeirra til
að hafa snyrtilegt í kringum sig er
enginn. Frá þessu eru þó mikilvæg-
ar undantekningar. Þetta er þeim
mun óskiljanlegra í ljósi þess að
sennilega eru hvergi á landinu eins
glæsileg heimili og á Suðurnesjum.
Heilbrigðiseftirlitið hefur reynt að
forðast þvingunaraðgerðir, en eytt
miklum tíma í að fá forráðamenn
fyrirtækja til samstarfs við að fegra
umhverfið. Þetta hefur því miður
ekki skilað tilætluðum árangri og er
því nauðsyn á hertari aðgerðum.
Slíkar aðgerðir eru þó alltaf háðar
skilningi og samvinnu við viðkom-
andi sveitarstjórn. Það er einnig
nauðsynlegt að þær fari á undan
með góðu fordæmi, því að tæpast er
sanngjarnt að þvinga einkaaðila til
að fegra sitt umhverfi, ef sveitar-
stjórnir láta undir höfuð leggjast að
halda opinberum lóðum snyrtileg-
um.
/TÍYv
\ XXXJ
^ Vn
Replik
Breytingar á
afgreiðslutíma
í desember
Mánudaginn 17.
desember verður opið
kl. 8.30 til 18.00.
Föstudaginn 21.
desember verður opið
kl. 8.30 til 20.00.
Laugardaginn 22.
desember verður opið
kl 8.30 til 16.00.
Síðusti skiladagur
innanlands er
mánudagurinn 17.
desember.
Munið að tilkynna breytt
póstfang.
BORÐSIMI FYRIR SER-
ÞJÓNUSTU STAFRÆNA
SÍMAKERFISINS
REBUK er eini síminn á
markaðnum sem er
sérstaklega hannaður til að
auðvelda notkun á
SÉRÞJÓNUSTU
STAFRÆNA
SÍMAKERnSINS.
Einungis með því að ýta
á einn takka á símanum
velur þú sjálfkrafa þá
þjónustu sem þú þarft á að
halda, t.d.
VAKNINGU/ÁMINNINGU,
SÍMAFUND osfrv.
Takkarnir á símanum eru
með íslenskum
merkingum.
Litur: Hvítur
'II
99
Sími fyrir hreyfihamlaða og sjóndapra.
Hægt er að greida símabúnað
með greiðslukortum.
POSTUR OG SÍMI
KEFLAVÍK
FAXI 199