Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1990, Blaðsíða 87

Faxi - 01.12.1990, Blaðsíða 87
Dagur lögreglunnar Sunnudaginn 14. október s.l. var haldinn um allt land hinn svonefndi Dagur lögreglunnar. Þann dag var almenningi boöiö aö heimsækja og skoða lögreglustöövar um allt land en þar tóku lögreglumenn á móti gestum og kynntu á margan hátt það starf sem lögreglan á hverjum staö innir af hendi. Tlðindamaöur Faxa leit viö á lögreglustöðinni í Keflavík og þar var margt um manninn. Einkum og sér í lagi var yngsta kynslóðin fjölmenn og var gaman aö sjá hversu mikill áhugi var hjá unga fólkinu á því sem fyrir augu bar. Viö áttum stutt spjall við Þóri Maronsson yfirlögregluþjón. Þar kom m.a. fram að menn hefðu ekki fyrirfram getað reiknað með hversu margir myndu hafa áhuga á að heimsækja stöðina,, en hann var mjög ánægður með þann áhuga sem í Ijós hefði komið. Megin markmiðið með þessum degi væri að skapa jákvætt viðhorf milli lögreglunnar og almennings með aukinni kynningu. Netanaust hf. hefur selt 10.000 línur frá Mörenot A/S Eins og Faxi hefur áður sagt frá varð fyrirtækið Netanaust hf. 20 ára á þessu ári, en það einþeitir sér nú að innflutningi og sölu á neti í síldar- og loðnunætur, fiskilínum, þorska- netum og ýmsu öðru til veiðarfæragerðar. Jón Eggertsson, fram- kvæmdastjóri og aðaleigandi fyrirtækisins, stofnaði fyrirtækið á sínum tíma í Keflavík og beindist reksturinn þá að netagerð og viðgerðum á veiðarfærum fyrir fiskiskipa- flotann. „í kjölfar hnignandi og breyttra útgerðarhátta á Suður- nesjum hefur fjöldi einstaklinga þurft að stokka upp sín mál. Einnig hafa fyrirtæki af þessum sökum orðið að gefast upp eða gera stórbreytingar á starfsemi sinni. Ég réðst í það að söðla um og flytja starfsemi fyrirtækisins frá Keflavík til Reykjavíkur og jafnframt var rekstrarformi fyrirtækisins breytt úr netagerð í innflutningsfyrirtæki á sviði veiðarfæra," segir Jón. Fyritækið hefur fyrst og fremst beint sér að innflutningi á vörum frá Mörenot A/S í Noregi. Er hér einkum um að ræða efni í síldar- og loðnunætur, svo og innflutningur á línu. Þess má geta að á sjávarútvegs- sýningunni í Laugardalshöll í haust seldi Natanaust hf. tíuþúsundustu línuna frá Mörenot til íslenskrar útgerðar. Jón segir að fiskilínan frá Mörenot hafi því vissulega náð miklum vinsældum hér á landi Nýr barnaleíkvöllur í Garðinum og fengið góða dóma um land allt, enda er Mörenot A/S jafnframt eigandi að nýjustu tógverksmiðju í Noregi, sem er mjög fullkomin. Er verksmiðjan jafnframt með japanskar netavélar, sem framleiða þorskanet í hæsta gæðaflokki og er hægt að afgreiða þessi net með stuttum fyrirvara. „Innflutningsvörur okkar eru ávallt fyrirliggjandi í Tollvörugeymslunni í Reykjavík. Það auðveldar alla afgreiðslu og einfaldar reksturinn, en stærri pantanir eru afgreiddar beint frá verksmiðjunni," segir Jón. Þess má geta að lokum að mörg af nýjustu og stærstu loðnuskipum flotans eru búin loðnunótum frá Mörenot A/S. Yfir 15.000 íbúar á Suðurnesjum Um síðustu áramót fór íbúafjöldi á Suðurnesjum í fyrsta skipti yfir 15 þúsund. Eftir sveitarfélögum var skiptingin sem hér segir: Gerðahreppur 1066 Grindavík 2161 Flafnahreppur 130 Keflavík 7423 Miðneshreppur 1257 Njarðvík 2392 Vatnsleysustrandarhreppur 653 Samtals gerir þetta 15.082. Því er svo að sjálfsögðu við að bæta, að hjá varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli eru búsettir nokkur þúsund manns. Suður- nesin eru þvi fjölbýlasta svæðið utan Reykjavíkur. Nýr barnaleikvöllur er að líta dagsins Ijós í Garðinum. A lóð sem er sunnan við hið nýja hús verka- lýðsfélagsins hefur verið skipulagð- ur opinn barnaleikvöllur, þar sem ágæt aðstaða verður til fjölbreyttra leikja. Frásögn sem þessi á sér ávallt nokkra forsögu. Mörgum hefur lengi verið það þyrnir í augum, að hvergi í Garðinum hefur fram að þessu verið um eiginlegan leikvöll að ræða. Töldu menn að með því að koma upp slíkum velli, þá væri börnum gert kleift að leika sér óhult með vinum og jafnöldrum í öruggu umhverfi. Það voru síðan Sjó- mannadagsráð, Slysavarnarfélagið og Verkalýðsfélagið sem sameinuð- ust um að lirinda þessu verki í fram- kvæmd. Einn af þeim sem hafa gert leik- vallasmíðina að áhugamáli sínu er Jóhannes S. Guðmundsson, Garða- braut 70. Hann sagði Faxa frá því, að Sjómannadagsráð Gerðahrepps hafi árið 1989 samþykkt að verja ágóða af kaffisölu sjómannadagsins til uppbyggingar á opnum leikvelli. Framkvæmdir hafi síðan hafist sl. vor. Margir hafi lagt fram sjálfboða- vinnu, en einnig hafi fengist ákveð- in fjárveiting frá hreppnum. Jafn- framt hefði verið skipuð leikvallar- nefnd innan ráðsins og væri hún að vinna að frekari fjáröflun. Völlurinn er þannig úr garði gerð- ur, að uppgröftur úr grunni verka- lýðshússins var notaður til að byggja skjólgarð sem síðan var tyrfður. Við völlinn vestanverðan var síðan reistur vandaður skjól- veggur og undir honum mun verða komið fyrir sandkassa og ýmsum leiktækjum. A miðjum vellinum er síðan fyrirhugað að byggja eftir- mynd af kastala fyrir börnin að leika sér í. Er ekki vafi á að yngstu íbúarn- ir í Garðinum munu kunna að meta þetta merka framtak. FAXI 279
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.