Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1990, Side 16

Faxi - 01.12.1990, Side 16
Læknaþjónusta Greiðslur hjá heimilislækni og heilsugæslulækni. 0 kr. Fyrir viötal á stofu læknis á dagvinnutíma þ.e. á milli kl. 0800 og 1700. Innifalin er ritun lyf- seöils. 500 kr. Fyrir viðtal á stofu læknis utan dagvinnutíma og á helgidögum. Innifalin er ritun lyfseðils. 400 kr. Fyrir vitjun læknis til sjúklings á dagvinnu- tíma. 1000 kr. Fyrir vitjun læknis til sjúklings utan dagvinnu- tíma. Greiðslur fyrir sérfræðilæknishjálp og komur á göngudeild, slysadeild og bráðamótttöku sjúkrahúss. 900 kr. Fyrir hverja komu til sérfræðings, á göngu- deild, slysadeild og bráðamóttöku sjúkra- húss. 300 kr. Elli- og örorkulífeyrisþegar fyrir hverja komu til sérfræðings, á göngudeild, slysadeild og bráðmóttöku sjúkrahúss. Greiðslur fyrir rannsóknir og röntgengreiningu. 300 kr. Fyrir hverja komu. 100 kr. Elli- og örorkulífeyrisþegar fyrir hverja komu. Elli- og örorkulífeyrisþegar skulu aldrei greiða samanlagt hærri fjárhæð en kr. 3000 á einu almanaksári fyrir sérfræðilækn- ishjálp, komu á göngudeild, slysadeild, bráðamóttöku sjúkrahúss, rannsóknir og röntgengreiningu. Allir eiga að fá kvittanir fyrir þessum greiðslum. Ofangreindar greiðslur eru hámarksfjárhæðir. Innifal- inn í greiðslu er kostnaður vegna hvers kyns einnota áhalda, umbúða og þess háttar. Lyfjakostnaður Greiðslur fyrir lyf. 550 kr. Fyrir lyf af bestukaupalista. 170 kr. Elli- og örorkulífeyrisþegar fyrir hverja lyfja- afgreiðslu af bestukaupalista. 750 kr. Fyrir önnur lyf sem greidd eru af sjúkratrygg- ingum. 230 kr. Elli- og örorkulífeyrisþegar fyrir önnur lyf sem greidd eru af sjúkratryggingum. Eitt gjald greiðist fyrir hvern 100 daga lyfjaskammt, eða brot úr honum. Gegn framvísun sérstaks lyfjaskírteinis í lyfjabúð fást ókeypis ákveðin lyf, við tilteknum langvarandi sjúkdóm- um. Læknar gefa vottorð til Tryggingastofnunar ríkins í þeim tilvikum, sem réttur á skírteini kann að vera fyrir hendi. UMBOÐ SJUKRATRYGGINGA Vatnsnesvegi 33, Keflavík, simi 14411 Útskálakirkja var byggð 1861 og þá eitt eftirsóttasta prestssetur. I’ar sátu margir kunnir prestar. Fjölmenni var þá í Garði og einkum Leiru, sem var þá ein stærsta verstöð á Suðurnesjum. Útgerðarmenn víða að frá Faxaflóa sendu þangað báta sína á vertíðir. Fisksæld var mikil og stutt á gjöful fiskimið. þroskastigi á landinu — þar er loð- dýrabú og tvær fiskeldisstöðvar, mikil fyrirtæki, á völtum fótum. Kálfatjarnarkirkja er skammt frá veginum — talin ein stærsta og feg- ursta sveitakirkja á landinu — afar fögur að innan — enda þjóðareign í vörslu þjóðminjavarðar. Ekið var niður að höfninni í Vogum, síðan haldið upp á Reykjanesbraut og vestur yfir Stapann, sem á myrkum öldum var frægur fyrir reimleika. Af Stapa sér vel til Reykjanesfjallgarðs og ef nánar er að gáð má sjá Snorra- staðatjarnir, en milli þeirra og Háa- bjalla eru miklir trjálundir, sem ekki sjást frá veginum. Af Stapanum var ekið niður í Innri-Njarðvík. Höfuðprýði hennar er hin rúmlega 100 ára steinkirkja. Að baki hennar stendur minnis- varði Jóns Thorchillíusar, skóla- meistara í Skálholti. Þaðan var ekið um Ytri-Njarðvík, bent á Bolafót, en þar bjuggu þau Hallgrímur Péturs- son og Guðríður (Tyrkja-Gudda) er þau komu til landsins 1637—1644 er séra Hallgrími var veitt Hvalsnes- prestakall. ,,Nú er hún Snorrabúð stekkur," mátti kunnugum detta í hug er farið var framhjá Keflavíkurhöfn, sem fyrir fáum árum, var full af skipum, stórum og smáum, en nú vögguðu þar fáar litlar trillur. Þrátt fyrir það er Hafnargatan iðandi verslunar- og viðskiptagata. Af Vesturbrautinni var bent á bæjarhólinn þar sem fyrsti bær Keflavíkur stóð í túni því er síðar hlaut nafnið Duustún, kostarýrt smábýli (jafnvel fyrst sel frá stórbúi í Leiru?) Eftir Básenda- flóðið 1799 varð Keflavík verslunar- miðstöð Reykjanesskagans og er það enn. Næst var ekið um Hólmsberg. Þar sér til umdeildrar olíuhafnar í Helguvík, skammt austan við Hólmsbergsvita. Þá var komið í Leiruna. Fram um síðustu aldamót var þar mikil smábátaútgerð og sjást þess enn nokkur merki. En úr rútunni okkar sjáum við aðeins glæsilegan golfskála og golfvöll, sem talinn er mjög góður. Stór-Hólmur í Leiru er talin land- námsjörð Steinunnar gömlu, er ,,keypti“ allt Rosmhvalsnes og Vatnsleysuströnd af frænda sínum Ingólfi Arnarsyni, fyrir eina hyrnu. I Garðinum blasa Útskálar við okkur ferðafólkinu. Þar er forn og frægur kirkjustaður og hafa setið þar margir kunnir prestar. Þar skammt frá stendur dvalarheimili aldraðra, Garðvangur, lágreist en gott heimili. Þá er Garðskagaviti og umhverfi hans vel þekkt og mikið sótt útivistarsvæði sökum auðugs fuglalífs og skemmtilegrar tjarnar. Úr Garði var haldið suður Miðnes- hrepp og komið við í Vitanum, veit- ingastað við Strandgerðishöfn. Sandgerði liggur vel við sjósókn og komu þangað áður útgerðar- menn víða að af landinu með báta sína á vertíðir. Þegar ekið er austur úr bænum er komið að minnismerki sjómanna eftir Steinunni Þórarinsdóttur, rétt við veginn. Nokkru sunnar er Hvals- neskirkja sem Hallgrímur Pétursson vígðist til, eftir nokkurra ára erfiðis- vinnu í Keflavík. Og enn sunnar er Stafnes og Básendar, hinn forni verslunarstaður, en þangað gafst því miður ekki tími til að fara. Suður Miðnesheiði var haldið í ná- munda við Flugstöð Leifs Eiríksson- ar og síðan sveigt í Hafnirnar og þá fyrst komið í Ósabotna, framhjá Hunangshellu að hafnarmannvirkj- um, sem iðulega verða að láta und- an hafróti Atlantshafsins. Séra Jón Thorarensen, sem ólst upp Höfnum, skrifaði mikið um 208 FAXI

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.