Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1990, Síða 23

Faxi - 01.12.1990, Síða 23
Reykjavíkur vegna fundarhalda og þá eftir öðrum og betri vegi en forð- um daga. Svo þegar Albert Guðmundsson varð formaður KSÍ, þá var ég gerður að einvaldi i knattspyrnunni og ég var það í 5 ár, frá 1969—1973. Kefl- víkingarnir voru nú sterkir í fótbolt- anum á þessum árum og áttu marga frábæra knattspyrnumenn. Pví til vitnis var það eitt sinn að af 16 manna landsliðshópi sem ég valdi voru 9 keflvískir liðsmenn. A þess- um tíma orkaði þetta ekki meira tví- mælis en það, að ekki einn einasti fjölmiðill hafði nokkurn lilut við þetta að athuga, svo sterkir hafa nú Keflvíkingarnir verið á þessum tíma. Þetta er nú dálítið athyglis- vert, sérstaklega þegar miðað er við hvernig ástandið er núna, þegar við eigum ekki einn einasta mann í landsliðinu í knattspyrnu. 43 ára kennsluferill Aðstaða til íþróttaiðkana hefur stöðugt verið að batna hér bæði úti og inni aðstaða. Vegna þess að ég hef nú verið UMFK félagi frá því ég flutti til Keflavíkur og var reyndar formaður félagsins 1978—1981, þá er kannski ekki úr vegi í þessari frá- sögn að geta þess, að um miðjan átt- unda áratuginn var Ungó breytt í íþróttahús og var það sem slíkt, þar til húsið var selt um áratug síðar. Þá var líka hið glæsilega Iþróttahús Keflavíkur fyrir nokkru komið í gagnið en það var vígt í nóvember 1980. Varðandi starfsferil minn má svo í lokin geta þess, að ég var óslitið sundhallarstjóri og kennari við Sundhöll Keflavíkur þar til í vor er við fluttum hingað í Sundmiðstöð- ina. Ég hef því verið samfellt við íþróttakennslu hér á Suðurnesjum í 43 ár, 7 ár við leikfimikennslu og 36 ár við sundkennslu í Sundhöllinni. Nýja Sundmiðstöðin og framtíðarhorfurnar Við opnuðum hér 3. mars s.l. og það má segja að reksturinn hérna hafi gengið ágætlega. Fyrstu 6 mánuðina komu hér rúmlega 60 þúsund baðgestir fyrir utan skólasund og sundæfingar. Það má svo til samanburðar geta þess, að á sama tíma í fyrra í gömlu laug- inni, þá komu þar um 19 þúsund baðgestir. Þannig að á þessum fyrstu sex mánuðum hefur fjöldinn rúmlega þrefaldast. Síðan eru hérna í skólasundi nemendur bæði Holta- skóla og Fjölbrautaskóla Suðurnesja og mikið um sundæfingar hjá sund- félaginu, sem æfir hér á hverjum degi og reyndar líka í gömlu laug- inni. Þar niður frá fer einnig fram skólasund Myllubakkaskóla og Gerðaskóla. Árið 1973 átti ÍBK mikilli velgengni aö fagna. Auk íslandsmeistaratitilsins unnu Keflvíkingar þá nær alla bikara, sem hægt var að vinna i knattspyrnu. Hafsteini á hægri hönd sitja Tómas Tómasson forseti bæjarstjórnar og Jóhann Ein- varðsson bæjarstjóri og hins vegar Guðni Kjartansson „íþróttamaður ársins" og Árni Þorgrímsson form. Knattspyrnu- ráðs ÍBK. Myndin er tekin í lokahófi, sem haldið var um haustið. Hér í Sundmiðstöðinni er sá mun- ur á, sem ekki var til að dreifa í gömlu lauginni, að opið er allan daginn, því skólasund og sundfé- lagsæfingar fara aldrei fram nema í hluta laugarinnar. Það hefur sannar- lega verið mikil ánægja með hinn langa og stöðuga opnunartíma sem hér er. Síðan stendur náttúrlega til að byggja við og koma innilauginni í gagnið. Það verður nú að vísu ein- hver dráttur á því, en eftir 3—4 ár væri hægt að ímynda sér að inni- laugin hér gæti verið komin í fullan rekstur og þá verður væntanlega laugin niður frá lögð niður. Menn hafa hins vegar svona verið að gæla við þá hugmynd, að þar væri hægt að gera ágætan íþróttasal með því að fylla upp í laugarstæðið. Þarna er allt fyrir hendi, búningsklefar, böð og heitir pottar. Við breytinguna kæmi þarna ágætis salur, sem hent- aði fyrir minni greinar. Þar væri hægt að vera með leikfimi, badmin- ton, júdó og fleira, sem ekki þarf stóran sal. Með þetta að leiðarljósi má reikna með því, að innan fárra ára verði öll sundaðstaða komin hingað. Að því þarf auðvitað að stefna því að það er hagkvæmast í rekstri að hafa alla sundaðstöðuna á einum stað. FASTEIGNASALAN HAFNARGÖTU 27, KEFLAVÍK SÍMAR 11420 - 14288 Óska Faxa til hamingju meö 50 ára afmælið. Blaðið Faxi hefur verið Keflavík til sóma alla tíð, vegna fróðlegs efnis og vandaðs frágangs. Megí gæfa og gengi fylgja Faxa í framtíðinni Hilmar Pétursson FAXI 215
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.