Faxi - 01.12.1990, Qupperneq 24
IjEMBSFímsmi
KJRMRRESPRÓFfíSTSÐ/EíínS
1990
Hinn árlegi héraðsfundur Kjalar-
nesprófastsdæmis var haldinn sein-
ustu helgi septembermánaðar í
Vestmannaeyjum. Fundarsetning
fór fram í Landakirkju síðdegis á
föstudegi. Hún hófst með bænar-
gjörð og ávarpi formanns sóknar-
nefndar Jóhanns Friðfinnssonar.
Síðan lagði Helgi K. Hjálmsson,
gjaldkeri héraðssjóðs, fram reikn-
inga kirkna, kirkjugarða og héraðs-
sjóðs. Hrefna Hilmisdóttir, Vest-
mannaeyjum, flutti skýrslu um
Hjálparstofnun kirkjunnar og sagði
frá 4. leikmannastefnu þjóðkirkj-
unnar, sem haldin var í maí að
Löngumýri í Skagafirði.
Ur yfirlitsrædu prófasts
Því næst lagði prófastur, séra
Bragi Friðriksson, fram yfirlits-
skýrslu sína og fylgdi úr hlaði með
yfirskriftinni — ég varð glaður, er
menn sögðu við mig — „Göngum í
hús Drottins". Litlu síðar vék pró-
fastur svo að helgihaldi safnaða og
sagði: „Helgihald safnaðarins verð-
ur hér meginmál. Færustu menn
hafa verið fengnir til fræðslu og for-
ystu um meðferð þessa mikilvæga
efnis. Eg býð þá gesti alla velkomna.
Við stöndum frammi fyrir vissum
staðreyndum. Könnun sýnir mikla
trúhneigö Islendinga en litla trú-
eða kirkjurækni. Þriðjungur kvenna
og helmingur karla virðist sjaldan
eða aldrei sækja kirkju, nema í sam-
bandi við hefðbundnar athafnir.
Hér blasir við hin mesta þverstæða.
Hvað veldur?
Finna menn enga gleði í húsi
Guðs?
Það er beinlínis skylda okkar að
leita svara við þessum spurningum
og finna leiðir til úrbóta. Guðsþjón-
ustan, samfélagið við Guð, er kjarni
alls trúarlífs. Markmið alls í kirkju-
legu starfi er að greiða mönnum veg
til fundar við Drottinn Jesú Krist í
bæn, lofsöng og þakkargjörð."
Breytingar í röðum presta
í prófastsdæminu
Séra Birgir Ásgeirsson lét af störf-
um sóknarprests í Mosfellspresta-
kalli þann 1. maí sl. og var ráðinn
sjúkrahúsprestur við Borgarspítal-
ann í Reykjavík frá sama tíma.
Kristján A. Jónsson.
Séra Jón Þorsteinsson, fyrrver-
andi sóknarprestur í Setbergs-
prestakalli, var kjörinn sóknarprest-
ur í stað séra Birgis.
Séra Örn Bárður Jónsson lét af
starfi sóknarprests í Grindavíkur-
prestakalli þann 31. júlí og var frá 1.
ágúst ráöinn í nýtt starf innan kirkj-
unnar til að annast undirbúning,
skipulag og framkvæmdir varðandi
safnaðaruppbyggingu, en kirkju-
þing 1989 samþykkti að það skuli
vera meginverkefni íslensku Þjóð-
kirkjunnar næsta áratug.
Séra Jóna Kristín Þorvaldsdóttir
hefur verið kosin sóknarprestur í
Grindavík. Hún var áður farprestur
Þjóðkirkjunnar og starfaði í Norð-
fjarðarprestakalli.
Héradsnefnd
Nefndin heldur mánaðarlega
fundi og voru 90 mál tekin fyrir á
starfsárinu. Meðal helstu verkefna
voru: Námsferðir fermingarbarna í
Skálholt. Þangað komu um 800
börn úr öllum sóknum prófasts-
dæmisins.
Fræöslumót í Skálholti fyrir fóstr-
ur og starfslið á dagvistarstofnunum
fór fram í samræmi við samþykkt
síðasta héraösfundar. Vordagar með
börnum í Bessastaða-, Kálfatjarnar-,
Útskála- og Hvalsnessóknum fóru
fram um mánaðamótin maí til júní.
Skýrsla og lokafundur leiðbein-
enda um þessa viðleitni vitnar um
það, að tilraunin hafi tekist vonum
framar.
Yit þegar barnið ykkar er hœtt
að nota snuðlll
Hefur nokkuð gleymst að láta fagmann taka
myndir afbarninu á þessu skemmtilega
tímabili sem aldrei kemur til baka.
Munið þið ekki eftir gömlu myndunum af
ykkur sjálfum, þegar þið voruð á
þessum aldri. Kannski voru þœr
teknar af Heimi Ijósmyndara
— ég er enn ífullu jjöri og tilbúinn
að mynda börnin ykkar í dag.
Myndatökur í lit og svart/hvítu
að ykkar óskum.
Pantið tíma í síma 14930 eða 11890.
UOSmmASTOFA
SIDIRNESJA
HAFNARGÖTU 79
KEFLAVÍK
216 FAXI