Faxi - 01.12.1990, Page 25
Leiðarþing 1990
„Þingið fór fram í Kirkjuhvoli 28.
jan. Þar bar hæst afgreiðsla á starfs-
og fjárhagsáætlun héraðssjóðs og
prófastsdæma og um starfsmenn
Þjóðkirkju íslands."
Kirkjuþingsmenn skýrðu frá af-
greiðslu málsins á Kirkjuþingi, en
leiðarþingið ræddi ýmsa þætti þess,
en síðasti héraðsfundur hafði sent
frá sér mjög velunna ályktun og at-
hugasemdir um málið.
Frumvarp þetta var lagt fyrir Al-
þingi sl. vor og samþykkt sem lög 5.
maí 1990, en tóku gildi 1. júlí sl. Þau
geyma ýmis nýmæli. Eg vek athygli
á eftirfarandi.
a) Engar breytingar voru gjörðar
á skipan Kjalarnesprófastsdæmis
(sbr. XIV. lið, 1. kafla).
b) í þessu prófastsdæmi er nú
stofnað svonefnt safnaðarráð (2.
gr.), sem skipað er formönnum
sóknarnefnda, safnaðarfulltrúum
og prestum. Hlutverk þess er m.a.
að gera tillögur um skiptingu pró-
fastsdæmisins í sóknir og prestaköll
og um breytingar á þeim. Aðalfund-
ur safnaðarráðs er héraðsfundur.
Raunverulega felur þetta í sér, að
formenn sóknarnefnda fá nú fullan
atkvæðisrétt á héraðsfundum og
ákvörðunar um allar breytingar er
leitað heima í héraði. Tel ég jjað til
miklla bóta.
c) Samkvæmt þessum lögum er
nú heimilt að ráða presta til aðstoð-
ar í prestaköllum yfir fjögur þúsund
manns og einnig farpresta í fjöl-
mennum prófastsdæmum.
d) Nýmæli er það, að nú skal (sbr.
V. kafla, 27. gr.). kjósa þrjá fulltrúa
úr hópi leikmanna sem ásamt prest-
um velja prófast.
e) í lögunum eru ýmis ný ákvæði
varðandi vígslubiskupa og embætti
þeirra.
Ég mun þegar á næsta ári kanna
í samráði við sóknarnefndir og
sóknarpresta hvort eðlilegt megi
teljast að gera tillögur um einhverj-
ar breytingar innan okkar prófasts-
dæmis á skipan sókna eða presta-
kalla og komi það í ljós mun héraðs-
fundur (safnaðarráð) að sjálfsögðu
fá þau mál til meðferðar."
Kirkjuþings fulltrúar
Á þessu ári var kjörið til kirkju-
þings. Fulltrúar Kjalarnesprófasts-
dæmis eru nú: Gunnar Kristjánsson
á Reynivöllum og Helgi K. Hjálms-
son, sem tekur sæti Kristjáns Þor-
geirssonar, en hann gaf ekki kost á
sér til endurkjörs.
Niðurlag prófastsskýrslu
„Við lítum um öxl á héraðsfundi.
Skýrslur, reikningar og frásagnir úr
einstökum sóknum er nauðsynleg-
ur þáttur þess að vita, hversu miðar
og hvar við stöndum.
Við höfum leitast við að marka þá
stefnu, að hvert verkefni fái eðlilega
fylgd eða framhald í söfnuðinum.
Það er nauðsynlegt, svo að fundir
og ráðstefnur verði ekki einangruð
fyrirbrigði.
Á þessum fundi tökum við fyrir
helgihaldið frá ýmsum sjónarmið-
um. Ég vænti þess, að þessi fundur
megi verða bæði fræðandi og vekj-
andi. Héraðsnefnd mun leggja fram
tillögu þess efnis að efnt verði til
funda á næsta starfsári um þessi mál
með hópum innan prófastsdæmis-
ins. Það tryggir þá fylgd málsins,
sem ég minntist á.
Verið svo öll velkomin. Guð blessi
þessar samverustundir allar. Hér-
aðsfundur 1990 er settur."
Almenn fundarstörf
Almennu fundarstörfin fóru fram í
hinu glæsilega nýja safnaðarheimili
Ofanleitissóknar, sem samtengt er
hinni 210 ára gömlu Landakirkju.
Þar sögðu safnaðarfulltrúar eða
formenn sóknarnefnda fréttir af
kirkjulegu starfi í heimasóknum. Að
vanda kom þar margt fróðlegt og at-
hyglisvert fram, sem á döfinni er í
hinum 17 sóknum prófastsdæmis-
ins.
Því næst greindi séra Þorvaldur
Karl Helgason frá undirbúningi að
stofnun fjölskylduráðgjafarþjónustu
á vegum kirkjulegra aðila, en séra
Þorvaldur Karl er fulltrúi prófasts-
dæmisins í könnunarnefnd um mál-
efnið.
Töluverðar umræður urðu um
máiið, sem lyktaði með því, að
fresta bindandi ákvörðunartöku til
Leiðarþings prófastsdæmisins 1991.
Samþykkt var tillaga þess efnis,
að fela héraðsnefnd að efna til
fræðslu og umræðufunda um inntak
og framkvæmd helgihalds í söfnuð-
um prófastsdæmisins og tillaga um
að framlag í héraðssjóð verði 5% af
sóknargjöldum á yfirstandandi ári.
Ný héraðsnefnd
Kosningu í héraðsnefnd til fjög-
urra ára hlutu: Aðalmenn, auk pró-
fasta, séra Gunnþór lngason, Hafn-
arfirði og Ágúst Karlsson, Vest-
mannaeyjum. Varamenn: Séra Þor-
valdur Karl Helgason, séra Hjörtur
Magni Jóhannsson, Þóra Stefensen
og Matthías Gíslason.
Ur nefndinni véku að eigin ósk
Helgi K. Hjálmsson, Helga Óskars-
dóttir og séra Örn Bárður Jónsson.
Erindi og umræður
Aðalframsöguerindi héraðsfund-
arins fjallaði um guðsþjónustuna í
lífi safnaðarins.
Erindið flutti séra Kristján Valur
Ingólfsson prestur á Grenjaðarstað.
Kom hann víða við í yfirgripsmiklu
og marksæknu erindi sínu og reynd-
ist það gott veganesti fyrir hópum-
ræður sem fylgdu á eftir.
Einnig fluttu organistarnir og
söngstjórarnir Guðmundur H. Guð-
'jónsson, Vestmannaeyjum og Jón
Stefánsson, Reykjavík, erindi um
messusönginn og Vestmannaeying-
urinn Þorvaldur Halldórsson flutti
erindi um sálmasönginn.
Þegið og þakkað
Um 100 manns sóttu Vestmanna-
eyjar heim í tilefni héraðsfundarins.
Meðal annars var gestum boðið til
matarveislu af sóknarnefnd Landa-
kirkju. Bæjarstjórn bauð til kaffi-
samsætis og gestum voru sýnd söfn
og farið með þá í skoðunarferðir um
eyjarnar.
Héraðsfundi lauk með messu í
Landakirkju að morgni sunnudags.
Þar prédikaði séra Jóna Kristín Þor-
valdsdóttir og prestur eyjaskeggja,
séra Kjartan Örn Sigurjónsson,
þjónaði fyrir altari.
I messulok þakkaði prófastur
heimamönnum undirbúning allan
og hinar höfðinglegu móttökur.
Einnig þakkaði hann fundar-
mönnum öllum, sem lagst hefðu á
eitt um að gera fundinn í hvívetna
blessunarríkan.
K.A.J.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Fremst er safnaðarheimilið, sem vígt
var 17. júní s.l. Landakirkja er þriðja elsta steinkirkja landsins, 210 ára
gömul, vígð árið 1780. Eldri eru Hóladómkirkja í Hjaltadal, sem fullgerð
var 1763 og Viðeyjarkirkja frá 1774.
Séra Bragi Friðriksson prófastur slítur héraðsfundi við messulok í
Landakirkju. Fyrir altari er sóknarpresturinn séra Kjartan Örn Sigur-
björnsson.
FAXI 217