Faxi - 01.12.1990, Side 86
Guðni Magnússon
heiðraður
Nýlega hefur Guðni Magnús-
son, fyrrverandi Faxafélagi, verið
gerður að heiðursfélaga Málara-
meistarafélags Reykjavíkur fyrir
aðstoð við félagið þegar Málara-
tal á íslandi var gefið út, en
Guðni annaðist söfnun upp-
lýsinga um málara á Suður-
nesjum en hann hafði áður
unnið að söfnun og útgáfu
Iðnaðarmannatals Suðurnesja á
vegum Iðnaðarmannafélags
Suðurnesja.
Á myndinni afhendir
Sæmundur Sigurðsson málara-
meistari Guðna heiðursskjal. Við
hlið hans stendur Ingvar A.
Guðmundsson, núverandi for-
maður Málarameistarafélags
Reykjavíkur.
Góð gjöf
Þegar Sundmiöstöð Keflavíkur
var byggð var sérstaklega haft í
huga að þeir sem hreyfihamlaðir
eru ættu sem best með að nýta
sér aðstöðuna þar. Þar á meðal
má nefna sérstaka skábraut út í
laugarnar.
Nú fyrir skömmu barst
Sundmiðstöðinni góð gjöf, þegar
Þingeyingafélag Keflavíkur gaf
hjólastóla sem sérstaklega eru
hannaðir til þess að nota við
fyrrgreindar aðstæður. Voru
stólarnir afhentir við athöfn í
Sundmiðstöðinni.
Sigurjónsbakarí
gefur tertu
í sumar fóru fram fjölmörg
golfmót á Hólmsvelli í Leiru og
er það í sjálfu sér ekki í frásögur
færandi. Keppendur unnu þar
margir til hinna ýmsu verðlauna,
sumir fengu bikara og aðrir
verðlaunapeninga. Þá voru
gefnar utanlandsferðir, bækur og
ýmislegt fleira. Á einu mótinu
kom Sigurjón í Sigurjónsbakarí
færandi hendi. Hafði hann þá
útbúið rjómatertu og skreytt
hana með ýmsum hlutum sem
tilheyra golfinu. Þarna mátti sjá
sandgryfju, flöt með stöng í
holu, golfkylfur o.fl. Keppendur
og aðrir viðstaddir kunnu svo
sannarlega að meta þetta
framlag Sigurjóns og hvarf
tertan sem dögg fyrir sólu. Á
meðfylgjandi mynd má sjá
þegar Oskar Halldórsson og
Annel Þorkelsson hjálpast að við
að skera fyrstu sneiðina, en
Einar Aðalgeirsson og Sigurður
Albertsson fylgjast með af
áhuga.
Nýr prestur í
Grindavíkurprestakalli
Séra Jóna Kristín
Þorvaldsdóttir var kosin
sóknarprestur í
Grindavíkurprestakalli 8. júní s.l.
og sett inn í embætti 12. ágúst
en skipuð í starf sitt frá 1. ágúst.
ágúst.
Séra Jóna Kristín er fædd 26.
sept. 1959 og eru foreldrar
hennar Þorvaldur Jónsson lengst
af afgreiðslumaður fyrir Ríkisskip
og Eimskip á Fáskrúðsfirði og
Oddný A. Jónsdóttir húsmóðir.
Séra Jóna Kristín er uppalin í
foreldrahúsum á Fáskrúðsfirði,
næstyngst fjögurra systkina.
Hún lauk embættisprófi í
guðfræði árið 1988, vígðist sem
farprestur þjóðkirkjunnar til
Neskaupstaðar árið 1989 og
þjónaði þar uns hún hlaut
Grindavíkurprestakall í haust.
Eiginmaður séra Jónu
Kristínar er Ómar Ásgeirsson
útgerðartæknir. Hann rekur
Rækjuvinnsluþjónustu ÓÁ,
Grindavík. Þau hjónin eiga tvær
dætur, Sigríði, 9 ára og Bertu
Dröfn, 6 ára.
Athyglisverð bók
Um þessar mundir er að koma
út ný bók sem mun væntanlega
vekja nokkra athygli hér um
slóðir. Um er að ræða bókina
Herstöðin, félagslegt umhverfi
og íslenskt þjóðlíf. Bók þessa
hefur skrifað ungur maður er
heitir Friðrik Haukur Hallsson.
Það er Forlag höfundanna á
Akureyri sem gefur bókina út og
mun hún kosta kr. 2.950.
Höfundur bókarinnar er félags-
fræðingur að mennt og hefur
síðastliðinn áratug lagt stund á
rannsóknir við háskólann í Biele-
feld í Þýskalandi.
Viðfangsefni bókarinnar eru
niðurstöður umfangsmikilla
rannsókna á mannlífi í nágrenni
herstöðvarinnar á Miðnesheiði.
Fjallað er um málið út frá
ýmsum sjónarhornum og er rætt
við margt fólk er þar hefur
komið við sögu. Hér fer á eftir
stuttur úrdráttur úr formála að
bókinni:
„Þessi bók fjallar um eitt
vandmeðfarnasta og víðtækasta
mál lýðveldisins, „herstöðva-
málið"; það snertir alla þætti
daglegs lífs á Suðurnesjum og
þróun íslensks samfélags og
ríkisvalds frá stríðsbyrjun. Það er
einnig alþjóðlegra en önnur
deilumál, þar sem það er bein-
línis tengt „ástandi heimsmála".
En eðli sínu samkvæmt snertir
herstöðvamálið einkum
römmustu taug þjóðarinnar:
Spurninguna um tilveru og til-
gang hennar, sjálfsskilning og
afkomu, og er í þeim skilningi
djúptækasta mál lýðveldisins.
Það er loks lykillinn að sér-
stökum viðbrögðum Islendinga
við öðrum menningarheimi (og
„nýjum tímum") og þar með að
sérkennum íslensks þjóðfélags.
278 FAXI