Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.12.1993, Qupperneq 8

Faxi - 01.12.1993, Qupperneq 8
reyndar þegar haflð, því Egill sjálfur var hinn mesti áhugamaður um ræktun og fegrun, svo og Arni Klemens bróðir hans. Að öðrum mönnum ólöstuðum má telja að þeir bræður séu frumkvöðlar þess starfs, sem unnið hefur verið í þessa vem í Aragerði, skrúðgarði Vogamanna, svo og á Háabjalla. Egill nefnir einnig, að senn hljóti að koma að því að hitaveita komi í Vogana, og líkur skrifi sínu með hlýlegum árnaðaróskum til handa íbúa Voga. En víkjum þá að sögu verslunar í Vogum. Hábær og Vogabær Þaö reyndist nú svo, að þrátt fyrir að Þórarinn Böðvarsson teldi brýnt að koma á verslun í Vogum, þá tók það rúm fjörutíu ár að koma því í framkvæmd. Það mun hafa verið 25. jánúar 1933, sem Sveinn Pálsson í Hábæ fær verslunarleyfi útgefið af sýslumanninum í Gullbringu og Kjósarsýslu. Hann hefur svo verslunarrekstur, fyrst í litlum mæli, en síðan frá 1935 fullkomna verslun í til þess byggðu húsnæði, og nefnir verslunina eftir húsi sínu “Hábær”. Lengi vel var Sveinn einn um verslunilna, en 1962 kemur tengdasonur hans, Stefán Ingi- mundarson til sögunnar sem með- eigandi. 1966 taka svo Stefán og Guríður Sveinsdóttir alfarið við verlsuninni. Þau byggja svo nýtt húsnæði undir verslunina að Vogagerði 8, og var það sannkölluð bylting er verslunin hóf starfsemi í því húsi. Enn hclt verslunin þó nafni sínu. 1976 kaupa svo hjónin Guðmundur Sigurðsson og Sigrún Osk Ingadóttir verslunina, sem við eigendaskiptin fær nafnið verslunin “Vogabær”. En um 1983 eða 84 hefja þau hjón samhliða verslunarrekstrinum, að framleiða ídýfur. Viðtökur neytenda voru á þann veg, að brátt var ekki um annað að ræða hjá þeim, en snúa sér alfarið að þeim rekstri, og er óþarfi að fjölyrða um framgang þess máls, það er öllum kunnugt. Það varð því úr 1985, að Kaupfél. Suðurnesja tekur húsnæði verslunarinnar á leigu og rekur verslun þar um skeið, en þegar hinn nýi þjónustukjarni var byggður í Vogunum, þá fluttist verslun Kaupfél. Suðumesja þangað. A þessu ári hætti síðan Kaupfél. Suðurnesja öllum afskiptum af verslun hér, en við tóku tvenn ung hjón, sem reka nú verslunina af bjartsýni undir nafninu “Staðarval”, og óska ég þeim farsældar í því staifi. Tjarnarbúðin 02 Vogabúðin Upp úr 1950 er stofnuð önnur verslun hér í Vogum. Hana stofnaði Guðjón Hólm, og nefndist hún “Tjarnarbúðin”. I fyrstu var hún rekin sem vefnaðar og bús- áhaldaverslun, en breyttist fljótlega í almenna matvöruverslun, og seldi jafnframt mjólk og aðrar skyldar vörur. Jón Kristjánsson kennari tók við rekstrinum, og síðan fleiri aðilar. Of langt mál væri að fara að telja upp alla eigendur verslunarinnar næstu árin, því segja má að hún hafi gengið kaupum og sölum. Einhverntíma á þessum ferli breyttist nafnið, og hét hún upp frá því “Vogabúðin”. Þessi verlun var til húsa í Valfellil, eða Vogagerði 2. Hún nrun hafa lagst af upp úr 1970, trúlegast '73, og hafði þá um skeið verið meira sem “sjoppa”en verslun. Sjoppa og Söluskáli Um árabil rak Jón G. Benediktsson bensínsölu, fyrst við fbúðarhús sitt Suðurkot II, en síðan við frystihús sitt, Voga h/f. Þar rak hann jafnframt litla sjoppu, sem seldi sælgæti, öl og gosdrykki ásanrt vinnufatnaði fyrir starfsfólk frystihússins. Að sjálfsögðu seldust þarna allskonar olíur og smurvörur líka, svo segja má að þröngt hafi verið á þingi í litla skúrnum á stundum. Þessum rekstri mun hafa verið hætt um eða fyrir 1980. Árið 1982 hefur svo Guðmundur Sigurðsson í “Vogabæ” rekstur söluskála á vegum ESSO. Þetta var strax frá upphafi hið ágætasta framtak, og má til sanns vegar færa, að full þörf hafi verið orðin á slíkum rekstri í Vogunr. En árið 1983 seldi hann svo rekstur söluskálans, og voru kaupendur og núverandi rekstraraðilar þau hjónin Ægir Axelsson og Ásta Björk Marteins- dóttir. Annað form verslunar Full ástæða er til að nefna þátt mjólkurbílstjóranna í verslunarsögu hreppsins. Mátti til sanns vegar færa að þar hafi farið verslun á hjólum, svo mikilvirkir voru þessir ágætu menn í því að sinna innkaupum fyrir heimilin. Þeir versluðu aðallega í verslun Guðjóns Jónssonar á Hverfisgötu í Reykjavík, og svo að sjálfsögðu í Mjólkurfélagi Reykjavíkur. Þarna koma þeir enn við sögu þeir Jón G. Benediktsson, Sveinn Pálsson og Stefán Ingimundarson. Einnig bræðurnir Guðmundur B. og Pétur G. Jónssynir ásamt Guðmundi M. Jónssyni í Björk. Allt voru þetta lipurmenni sem tóku kvabbi sveitunga sinna öllu jöfnu vel, og leystu hvers manns vanda. Þá var um hríð starfandi í Vogum svokallað Pöntunnarfélag, og var það til húsa í Lyngholti, húsi Guðmundar B. Jónssonar. Þetta munu hafa verið nokkrir menn, sem tóku sig saman um að kaupa vörur í heilum pakkningum, og selja félögum pöntunarfélagsins á vægara verði en gafst í smásölu. Félagið mun hafa starfaðí7 - lOár. Að endingu skal svo geta þess nýjasta í verslunarmálunum, en það eru hinir óþolandi “tröppusalar”, sem nú tröllríða plássinu svo sem hvern einasta dag. Gefst þá fólki ekki fióarfriður eftir að kvölda tekur, því sífellt er legið á dyrabjöllum, og margskonar vamingur í boði, allt frá rófum og rækjum upp í undrameðul og eilíft líf. Að lokum Um sama leyti og frumvörp þau, sem um getur í upphafi voru að ramba fram og til baka um þingsali, var þar einnig til umræðu frumv. um Iöggildingu verlslunarstaðar á Skipaskaga, sem nú er belur þekktur sem Akranes. Voru umræður þar mjög á sama veg og varðandi Vogavíkina, talað um að þar kæmu fijótlega til brennivfnsbúðir, og talið að þangað myndu safnast “tómthúsmenn og aðrir vesalingar”, sem sennilegast myndu helst vinna “margan óþarfann”. Því var það að Pélur Pétursson biskup, sem þá var konungkjörinn þingmaður, setti saman eftir farandi vísu. Kaupstaður á Skipaskaga skötnum verður helst til baga, eftir sér þann dilk mun draga: Drykkjurúta og letimaga. Gaman er svo að bera saman spá- dómana, annarsvegar þeirra þingmannanna, varðandi drykkjuna og slarkið, og hinsvegar spá Egils Hallgrímssonar um framtíð byggðar í Vogum. En varðandi ummæli hæstv. þingmanns Þórarins Böð- varssonar, að í Keflavík sé nær enginn drykkjuskapur, hcldur séu þar þven á móti flestir í bindindi, vil ég segja þetta: Skyldi hann Hilmar vita af þessu? Hafsteinn Snæland Fjölbrautaskóli Suðurnesja óskar nemendum, kennurum og öðrum Suðurnesjabúum 38 gleðilegra jóla ICEMART f Islenskur markaður og farsældar á komandi ári óskar Suðurnesjamönnum þökkum samstarfið á árinu Gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. SKÓLAMEISTARI Þökkum viðskiptín á árinu. 168 FAXI

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.