Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1993, Blaðsíða 42

Faxi - 01.12.1993, Blaðsíða 42
Krístmundarvarða Sesselja Quðmundsdóttir: Rétt ofan við götuna sem lá fyrrum með sjónum milli Brunnastaðahverfis og Voga er varða sem heitir Kristmundarvarða. Áhugi minn á ömefnum og uppruna þeirra Kom mér á slóð sem ég VARÐ að rekja allt til enda og hér á eftir fá lesendur Faxa að kynnast sögunni bak við Kristmundarvörðu og öðm sérkennilegum tilviljunum sem tengjast henni. Nú í sumar, árið 1993, endurhlóð Ragnar Agústsson í Halakoti vörðuna og var það þarft verk og vel gert. Hún stendur á sléttri klöpp svo til beint upp af eyðibýlinu Vorhúsum á Bieringstanga, ca 50 m ofan við gömlu götuna (eða hitaveitu- lögnina), og lætur ekki mikið yfir sér. Fast noröaustan við vörðuna er hóll með áberandi þúfu. I smalamennsku 10. nóvember 1905 týndist ungur maður í Strandarheiðinni sem hét Kristmundur Magnússon og var frá Goðhóli í Kálfatjarnarhverfi. Mikil leit var gerð að piltinum en án árangurs. Heimildum um atburðinn ber ekki saman og vík ég nánar að því síðar. Sérkenniieg saga tengist líkfundinum og fer hún hér á eftir. U.þ.b. mánuði eftir að Kristmundur týndist, eða 18. desember, fæddist drengur í Arnarstaðarkoti í Flóa og voru foreldrar hans Guðmundur Jónsson frá Hreiðri í Holtuni og Olöf Árnadóttir frá Skammbeinsstöðum sömu sveit. Þau hjónin eignuðust saman 14 börn en Guðmundur átti einn son fyrir hjónaband og hét sá Vilhjálmur, fæddur árið 1876 í Holtum. Þegar litli drengurinn, hálfbróðir Vilhjálms fæddist, var Vilhjálmur 29 ára gamall. 13. nóvember 1905, eða þremur dögum eftir að Kristmundur frá Goðhóli týndist, var Vilhjálmur á leið úr Holtunum til Suðurnesja og var erindi hans líklega það að hitta unnustuna sem var Bergsteinunn Bergsteinsdóttir frá Keflavfk, f. 4/9 1888. Þau giftu sig 1906, bjuggu fyrst í Grænagarði í Leiru en seinna í Hafnarfirði. Aðal heimildarmaður sögunnar sagði mér að líklega hafi Vilhjálmur verið á leið í ver suður í Leiru og að ferðin hafi trúlega verið farin eftir áramótin 1905-6 en kirkjubækur Kálfatjarnarkirkju segja að Kristmundur frá Goðhóli hafl fundist örendur 13. nóv. 1905. Vilhjálmur kom við í Halakoti (hefur líklega gist þar) en hélt síðan áfram suður í Voga. Þegar hann var kominn spöl suður fyrir Halakot gekk hann fram á lík Kristmundar Magnússonar og lá það stuttan spöl ofan við götuna sem lá rétt við túngarða Bieringstangabæjanna. Vilhjálmur lét vita af líkfundinum og hélt síðan áfram suður úr.Stuttu eftir að Ólöf í Arnarsstaðarkoti fæddi drenginn, sem fyrr var nefndur, dreymdi hana að Vilhjálmur kæmi til sín og segði: “Eg er hér með ungan mann sem heitir Kristmundur og mig langar til þess að biðja þig fyrir hann.” Ólöf leit svo á að Vilhálmur væri að vita nafns og þau hjónin ákváðu að skíra nýfædda drenginn Kristmund. Veturinn leið og um vorið kom Vilhjálmur austur og þá fyrst fengu hjónin í Amarstaðarkoti skýringu á draumanafninu. Sögu þessa sagði mér Ragnhildur Magnúsdóttir, f. 1913, frá Sjónarhóli á Vatnsleysuströnd, en hún er gift Kristmundi þessum frá Amarsstaðarkoti. Frásögnina hafði hún ekki frá tengdafólki sínu né eiginmanni eins og búast mátti við heldur frá Guðríði seinni konu Guðna Einarssonar í Landakoti á Ströndinni. Guðni var frá Ha^a í Holtum en þar ólst upp Olöf Guðmundsdóttir alsystir Kristmundar en hálfsystir Vilhjálms. Næsta skref var að athuga heimildir til þess að meta sannleiksgildi sögunnar því algengt er að frásagnir breytist frá einum munni til annars í tímans rás. Ragnhildur sagði að Vilhjálmur hefði líklega verið á leið á vertíð út í FAXI 202
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.