Faxi - 01.12.1993, Blaðsíða 44
Kartakór
Keftaóíkur
fyOára
Karlakór Keflavíkur var stofnaður 1.
desember 1953. Aðalhvatamaður að
stofnun hans var, klarinettuleikarinn
Guðmundur Norðdahl. Stofnfundur var haldinn í
Sjálfstæðishúsinu í Keflavík, 20 ungir og
áhugasamir söngmenn sátu fundinn.
Fyrsti formaður var kosinn Jón
Tómasson. Æft var frá stofnun
kórsins og allan næsta vetur, en fyrsti
konsertinn var svo haldinn vorið
1955. Söngmenn voru þá 24, af
þeim sem sungu nú á 40 ára
afmælinu eru 4 söngmenn, þeir
Magnús Jónsson, Haukur
Þórðarsson, Gunnar Jóhannsson og
Bjami J. Gíslason, geta má þess að á
40 ára ferli kórsins hefur hann sungið
12 lög eftir Bjama. Magnús Jónsson
hefur sungið með kómum óslitið frá
upphafi.
Tilgangur félagsins var að æfa og
viðhalda karlakórssöng og efla
tónmennt í Keflavík, svo annars
staðar og almennt meðal þjóðarinnar.
Á 40 ára afmæli karlakórsins er
margs að minnast, kórinn hefur lifað
af ýmis erfið tímaskeið, margir
karlakórar hættu starfsemi sinni með
tilkomu sjónvarpsins árið 1966, en
einmitt það ár var mikið líf í kómum.
Árið 1965 auglýsti kórinn eftir
kvenröddum, en áður hafði hann
notið aðstoðar Drengja- og
Telpnakórs Gagnfræðaskóla Kella-
Þórður Guðmundsson formaður stjórnar karlakórsins á tali við
Guðmund Norðdahl söngkennara sem var hvatamaður að stofnun
karlakórsins fyrir fjörtíu árum. Hefur það örugglega glatt hann
að sjá, hversu vel afkvæminu hefur vegnað. Ljósm. Páll
víkur og einnig hafði hann sungið
með Kvennakór S.V.F.I. í Reykjavík.
Vorið 1966 fór þessi kór með
kvennaröddunum alls 62 söngvarar í
ógleymanlega söngferð til
Vestfjarða. Við tókum Esjuna á
leigu, með lúxus fæði og öllu því
sem hægt var að bjóða upp á. Við
fengum frábærar undirtektir, urðum
t.d. að endurtaka konsertinn á
Isafirði. Til gamans má geta þess að
við greiddum fyrir þessa ferð kr.
62.300, sem deildist niður á 140
manns, eða 445 kr. á mann fyrir 4
sólahringa. Þessi sami stóri kór fór
svo árið 1967 til írlands og tók þar
þátt í alþjóðlegri söngkeppni
áhugamannakóra. Þar fékk kórinn 3.
veðlaun sem var 1600 pund. I
báðum þessum ferðum stjórnaði hinn
kornungi Keflavíkingur Þórir
Baldursson kórnum. Hefðbundin
starfsemi Karlakórs Keflavíkur hefur
verið á þann veg að æfa tvisvar
sinnum í viku, yfir veturinn, stundum
oftar, halda síðan konserta fyrir
styrktarmeðlimi sína og aðra
áhugamenn um tónlist. Lyfta sér svo
Laugardaginn 4. desember hélt Karlakór Kellavíkur hátíðlegt fjörutíu ára afmæli sitt í félagsheimilinu að Vesturbraut 17. Þar var að
vonuni glatt á hjalla og komu margir gestir. IMeðal þeirra var Sigurður Demet/. söngkennari, en hann var söngstjóri kórsins í eina tíð.
I hófinu rifjuðu menn upp gömul kynni og á þessari mynd má sjá kórinn taka lagið undir stjórn Demetz. Ljósm. Páll Hilmarsson.
204 FAXI