Faxi - 01.12.1993, Page 22
hinum ýmsu hliðum þessa starfs. Þá
verður einnig rakin í nokkru máli
saga Keflavíkurradíós, en UFS tók
við rekstri þess af Utvegsbænda-
félagi Keflavíkur árið 1967 og sá um
rekstur þess í tuttugu ár. Átti rekstur
talstöðvarinnar mikinn þátt í að
tryggja hinum fjölmörgu sjó-
mönnum sem hér störfuðu aukið
öryggi. Eitt þeirra mála sem UFS
hefur ávallt látið mikið til sín taka er
friðun á ýmsum fiskislóðum og
einnig almennt eftirlit með veiðum á
hinum ýmsu tegundum sjávarfangs.
Eins og flestum er kunnugt, þá eru
hér við Reykjanes mestu hrigningar-
svæði mikilvægustu fiskitegunda,
svo sem þorsks og ýsu. Á þessu
svæði veiddist þorskur mest á
vetrarvertíð og komu þá bátar til
Suðurnesja hvaðanæva af landinu.
ÚFS hefur ósjaldan hvatt til þess og
flutt um það tillögur að hrygningar-
svæðin við Suðvesturland væru
friðuð meðan aðalhrygingartíminn
stæði yfir. Með vaxandi skuttogara-
eign þjóðarinnar jókst sókn í
þorskinn á öðrum stöðum á landinu
og m.a. á uppvaxtarstöðum fyrir
vestan og norðan. Leiddi þetta til
þess, að ókynþroska fiskur var
veiddur í stórum stíl. Voru
útgerðarmenn af Suðurnesjum
óhræddir við að gagnrýna þessar
veiðar og fengu þá mjög
óverðskuldað á sig viðurnefnið
“Grátkór Suðurnesja”. Síðar hafa
menn líklega verið að súpa seiðið af
þessum veiðum. Skyldi þetta ekki
vera hluti af skýringunni á því, að
árið 1954 veiddust við ísland 548
þúsund tonn af þorski (afli allra
þjóða á íslandsmiðum, fsl.
alfræðibókin) , en á fiskveiðiárinu
1993-1994 verður ekki heimilt að
veiðanemaum 155 þúsundtonn.
Vegaskatti mótmælt
Á árunum 1965-1966 var Reykja-
nesbrautin lögð varanlegu slitlagi og
þótti það mikil framkvæmd, enda
fyrsti þjóðvegur landsins sem
steyptur var í svo ríkum mæli og þar
að auki breiðari en áður þekktist.
Framkvæmd þessi kostaði mikið fé
og fljótlega kom upp sú hugmynd að
innheimta vegatoll eftir að vegurinn
yrði tekinn í notkun. Þessi
vegaskattur var nokkrum sinnum
ræddur á fundum ÚFS og voru þar
samþykkt mótmæli gegn skattinum.
Einnig var skipuð nefnd í september
1965 sem fór á fund samgöngu-
málaráðherra til að ræða þetta mál.
Þrátt fyrir þessi mótmæli og reyndar
mótmæli fjölda annarra, þá var samt
tekinn upp vegatollur og var hann
innheimtur við hlið skammt frá
Straumsvík. Vakti það svo mikla
óánægju, að tollurinn var aðeins
innheimtur um skamma hríð.
Almennur hagur
útgerðar
var til umræðu á nánast öllum
fundum í félaginu. Sjávarútvegurinn
hefur um langt skeið verið höfuð-
atvinnuvegur þjóðarinnar og efna-
hagsástand í landinu fer að jafnaði
eftir því, hvernig afkoman er í
greininni. Það eru einkenni á þessari
atvinnugrein, að afkoman er ákaflega
sveiflukennd, aldrei er hægt að sjá
fyrir, hvað næsta vertíð muni bera í
skauti sér. Eitt árið er allt vaðandi í
síld, en næsta ár er hún horfin. Eitt
haustið er einmuna tíð og bátar geta
róið flesta daga, næsta haust eru
stanslausar brælur svo vikum skiptir.
Einn daginn selur togari afla sinn
fyrir metverð, næsta dag kemur
annar togari og þá hefur verðið fallið
um helming. Þessu til viðbótar
kemur síðan, að efnahagsaðgerðir
stjórnvalda á hverjum tíma snerta
oftast sjávarútveginn á einn eða
annan hátt sem er í sjálfu sér
skiljanlegt, með hliðsjón af mikil-
vægi greinarinnar. Bæði hafa
stjómvöld oft leitað eftir samráði við
útgerðarmenn um ýmsar ráðstafanir,
en oftar en ekki hefur þeim fundist
að skilningur stjórnvalda á vanda-
málum greinarinnar vera af skomum
skammti og hafa þeir þá oft þurft að
mótmæla kröfuglega hinum ýmsu
ráðstöfunum. Hér má síðan bæta því
við, að umsagnar hefur verið leitað
hjá félaginu í ótal skipti, bæði frá
Alþingi og öðrum aðilum, þegar um
hefur verið að ræða mál sem varðað
hafa útgerðina á einn eða annan
hátt. Á síðari árum hefur stjórnun
fiskveiða tekið miklum stakka-
skiptum. Lengi hafa menn reynt að
stjórna á einn eða annan hátt
sókninni í hina ýmsu fiskistofna. Á
árunum 1983 og 1984 voru miklar
umræður í gangi um nýja fisk-
veiðistefnu, þar sem tekinn skyldi
Verkalýðs- 03
sjómannafélas
Kefdlavíkur
03 násrennis
Óskum félagsmönnum
03 öörum Suðurnesjamönnum
gleöilesra jóla
og farsæls komandi árs.
Skrifstofur félagsins
eru aö Hafnargötu 80.
Síminn er 15777.
Opiö mánudaga til
fimmtudaga kl. 9-17.
Föstudaga kl. 9-15.
upp kvótaskipting á afla. í Útvegs-
mannafélagi Suðurnesja voru þessi
mál rædd fram og aftur og sýndist
sitt hverjum um þetta fyrirkomulag. í
ágúst 1983 mætti Halldór Ásgríms-
son sjávarútvegsráðherra á fund í
félaginu sem haldinn var í Festi í
Grindavík. Þar mættu yfir hundrað
manns og eftir framsöguerindi
ráðherrra voru fluttar alls 25 ræður
og fyrirspurnir. Umræður um
kvótamálið voru í gangi fram á árið
1984. Fiskifélag íslands mælti með
því, að kvóti yrði settur á öll skip. Á
fundi um kvótamálið í ÚFS í febrúar
1984 mættu alls 91 útgerðarmaður.
Afstaða Suðurnesjamanna var í þá
áttina, að miðað við ástand fiski-
stofna, þá væri líklegast affærasælast
að samþykkja kvótaskiptingu á skip.
Bent var á, að óheppilegt væri að
miða kvótann við síðustu þrjú ár sem
hefðu verið mjög léleg á Suður-
nesjum. Kristján Ragnarsson lagði á
það áherslu, að hér væru menn að
gera tilraunir í fiskveiðistjómun og
að hún ætti að standa í eitt ár.
Kvótakerfið er enn við lýði í dag og
sem fyrr eru uppi skiptar skoðanir
um það. En á meðan menn koma sér
ekki niður á aðrar aðferðir, þá virðist
þetta kerfi vera að festa sig í sessi.'
Fræðslumál
hafa oft verið Ofarlega á baugi
innan raða ÚFS. Hafa þau ýmist
verið í því formi, að ýmsir aðilar hafa
mætt á fundum í félaginu og haldið
þar fræðsluerindi. Hafa t.d. ýmsir
fiskifræðingar haldið slík erindi. Þá
hafa félagsmenn sótt ýmis konar
námskeið og farið í skoðunarferðir,
bæði hér heinta og erlendis. Þá hefur
stjóm og starfsmenn miðlað ýmsum
upplýsingum til félagsmanna, m.a.
um sameiginlega bókhaldsþjónustu,
nýjungar í veiðarfærum o.m.fl.
Þjónusta við
félagsmenn
Að lokum má nefna þann þátt í
starfi félagsins sem ávallt hefur verið
mjög þýðingarmikill, en það er hin
almenna þjónusta við einstaka
félagsmenn. Sérstaklega eftir að
félagið réð til sín fastan starfsmann
hefur verið hægt að sinna þeirri hlið
mála. Á skrifstofu félagsins geta
menn komið og fengið aðstoð við
hvað eina sem upp á kemur er varðar
samskipti við stjómvöld, stéttarfélög,
deilumál áhafna og útgerðar,
leiðbeiningar við skýrslugerð svo
eitthvað sé nefnt. Hefur þessi þáttur
starfseminnar stöðugt farið vaxandi.
Að sjálfsögðu stendur svo
félagsmönnum einnig til boða aðstoð
starfsmanna LIÚ.
182 FAXI