Faxi - 01.12.1993, Síða 26
, Staiísmciiii og skrifstofa
Útoegsmannafélags Suðumesja
Þegar eftir að ÚFS var stofnað
fékk félagið aðstöðu fyrir starfsemi
sína í húsnæði Olíusamlags
Keflavíkur. Fyrstu árin var ekki
ráðinn sérstakur starfsmaður til
félagsins heldur hafði stjórn
félagsins á sinni hendi að
framkvæma það sem gera þurfti.
Það var síðan á árinu 1970, að
Huxley Olafsson var ráðinn
starfsmaður og varð hann þá einnig
að hálfu starfsmaður Vinnu-
veitendafélags Suðumesja. Reyndar
hafði Huxley næstu ár á undan
unnið dyggilega mörg störf fyrir
ÚFS. Starfaði Huxley fram í
maímánuð árið 1974, en þá var
ráðinn nýr starfsmaður og nú í fullt
starf.Hinn nýi starfsmaður var
kunnur Vestmanneyingur, Ingólfur
Arnarson, en hann hafði flust til
Reykjavíkur í kjölfar gossins 1973.
Ingólfur var síðan starfsmaður út
árið 1978 en þá um áramótin varð
Halldór Ibsen framkvæmdastjóri
ÚFS og gegnir hann því starfi enn í
dag. Halldór hafði ráðisl að
Keflavíkurradíói seinni hluta árs
1978 og þegar Ingólfur ákvað að
hætta nokkrum mánuðum seinna,
þá bauðst honum að taka jafnframt
að sér starfið fyrir félagið. Gengdi
hann báðum þessum störfum í mörg
ár í samstarfi við þá menn sem
störfuðu við radíóið. Keflavíku-
rradíó var síðan lagt niður 31. maí
1987. Frá miðju ári 1990 tók
Halldór síðan að sér að vera einnig
starfsmaður hjá Vinnuveitenda-
félagi Suðurnesja á sama hátt og
Huxley rúmum tíu árum áður.
Fjölbreytt starf
Starfið á skrifstofu ÚFS er
fjölbreytt, oft erilsamt en alltaf
gefandi ef marka má orð Halldórs
Ibsens. Starfið snýst fyrst og fremst
um það að veita félagsmönnum sem
besta þjónustu. Til skrifstofunnar
sækja þeir hvers konar upplýsingar,
ekki síst í sambandi við kaup- og
kjarasamninga. Þá hefur
starfsmaðurinn ýmis konar
milligöngu um mál er snúa að
stjórnvöldum, ekki hvað síst
samskipti við sjávarútvegs-
ráðuneytið. Þá er skrifstofan oftast
tengiliður félaganna við LÍÚ. Þá
þarf skrifstofan í miklum mæli að
aðstoða félagsmenn og leiðbeina
varðandi margs konar skýrslugerð.
Innheimta félagsgjalda
Skrifstofan sér um innheimtu
félagsgjalda en þau hafa frá upphali
verið tengd báta- eða skipaeign og
reiknast félagsgjöld manna út frá
tonnafjölda. Til gamans má geta
Halldór Ibsen
þess, að árið 1963 var
heildartonnafjöldi félagsmanna um
3.300. A tuttugu ára afmælinu voru
þau um 17.900. og þá var félagið
stærst innan LIÚ, en í dag er
tonnafjöldinn 14.428. og skiptast
þau á 82 báta og skip. Eins og fram
hefur komið á öðrum stað í
umfjöllun okkar um ÚFS, þá fer
LIÚ að mestu leiti með samn-
ingamál útvegsmanna. Þó hagar
þannig til í ýmsum tilfellum að
ýmsir sérsamningar eru unnir heima
í héraði og undirbýr þá starfsmaður
félagsins slík mál. Aður fyrr voru
t.d. beitningasamningar mjög
algengir. Halldór hefur um langt
skeið átt sæti í samninganefnd LÍÚ
og er þessvegna vel að sér varðandi
alla samninga.
Náin samvinna stjórnar,
formanns og skrifstofu
Ekkert félag getur verið virkt
nema stjórn þess sé starfsöm og
haldi reglulega fundi. Að sögn
Halldórs hafa allar stjórnir ÚFS
tekið starf sitt alvarlega og hafa
sérstaklega formennirnir verið
duglegir við að koma við á
skrifstofunni til að fylgjast með
gangi mála. Er slíkur áhugi mikill
styrkur fyrir starfsmann félagsins
og hvatnig. Þá líður reyndar varla sá
dagur að ekki sé beint símasamband
milli formanns og starfsmanns.
Þegar svo við bætast tíðar
heimsóknir hinna almennu félaga,
þá sé ekki annað hægt að segja en
að félagið sé í fullu tjöri á 30 ára
afmælinu.
HH.
Við óskum Útvegsmannafélagi Suðurnesja til
hamingju 30 ára afmælið og þökkum fyrir samskiptin
Keflavíkurbær
Grindavíkurbær
Fiskimarkaður Suðurnesja
Olíuverslun íslands hf.
Njarðvík Steinar Sigtryggsson
Vísir, félag skipstjórnarmanna á Sudurnesjum
óskar Útvegsmannafélagi Suðurnesja til hamingju með 30 ára
186 FAXI