Frjáls verslun - 01.11.2001, Blaðsíða 19
ÁGÚST OG LYDUR MENN ÁRSINS 200
Fijáls verslun hefur útnefnt bræðurna Agúst og Lýð Guðmundssyni menn ársins.
Þeir hljóta þann heiður fyrir framúrskarandi athafnasemi sem ekki aðeins hefur
fært fyrirtæki þeirra, Bakkavör Group, í fremstu röð fyrirtækja á íslandi heldur
er fyrirtækið orðið þekkt og vel metið í sinni grein erlendis. Arangur bræðranna í
uppbyggingu starfseminnar er einstakur. Bakkavör Group rekur nú starfsemi í níu
löndum, þar af verksmiðjur í fimm. Framleiðsla fyrirtækisins er seld til stórmark-
aða erlendis auk þess sem Bakkavör er stærsti hluthafinn í sjávarútvegsfyrirtækinu
PIDR, Pesquera Isla Del Rey, sem framleiðir rétti úr
kóngakrabba í Chile.
Bakkavör Group náði nýlega góðum árangri
í útboði þar sem fagljárfestar og almennir Jjár-
festar óskuðu eftír kaupum á hlutabréfum fyrir
tæpa 5 milljarða króna, þar af óskuðu fjárfestar
í Danmörku og Svíþjóð eftír kaupum fyrir einn
milljarð. Þeir eru mjög ánægðir með niðurstöð-
una. „Eg held að þetta hafi farið eins vel og
nokkur hafi þorað að vona. Það held ég
að sé fyrst og fremst vegna þess að
það var svo vel að þessu staðið
hér heima hjá þeim aðilum sem
skipulögðu þetta og sáu um
það þannig að þetta var allt
mjög vandað. Arangurinn var
eftír því. Við vorum lika mjög
ánægðir með þátttökuna útí.
Við vorum að selja til erlendra
aðila fyrir u.þ.b. milljarð og
erum mjög kátir með það.
Það er mjög gott,“ segir
Ágúst Guðmundsson, stjórn-
arformaður Bakkavör
Group.
Útboðið var liður í
stærstu fyrirtækjakaupum
íslensks fyrirtækis á erlendri
grundu, kaupum Bakkavör
Group á bresku matvælakeðj-
unni KFF, Katsouris Fresh
Foods. Bakkavör keypti KFF
á um 15,6 milljarða króna og
var hluti kaupverðsins greiddur
með hlutabréfum í Bakkavör
Group. Gríska tjölskyldan
Katsouris á því 18 prósenta hlut
Bakkavör Group og bræðurnir
- menn ársins