Frjáls verslun - 01.11.2001, Blaðsíða 43
ENDURSKOÐENDUR í STJÓRNUNflRSTÖRFUIVI
fylgja einhveijum viðskiptavini eftir. Hröð og bein
ákvarðanataka er nokkuð sem ekki er að finna í endur-
skoðunarstarfinu á sama hátt og hjá stjórnendum í
atvinnulffinu og getur endurskoðendur langað til að
kynnast slíku. Ekki er vist að þeir séu sjálíkrafa góðir
stjórnendur. Stjórnendur þurfa ýmsa eiginleika til við-
bótar við talnaskilning, t.d. lagni í mannlegum samskipt-
um, og þvi fer auðvitað alfarið eftir hvetjum einstakfingi
hvernig hann reynist við stjórnun,“ segir Hjörleifur.
SÓSt eftir endurskoðendum Margir hljóta að velta fyrir
sér hvort þekking endurskoðanda á tilteknu fyrirtæki
verði frekar til þess að hann sé ráðinn tíl fyrirtækisins.
Árni telur að það sé ekkert úrslitaatriði. „Eg held að
meira máli skiptí að stjórn og stjórnendur þessara fyrir-
tækja hafi kynnst þessum einstaklingum, leitað til
þeirra og þegið af þeim ráð í vandasömum úrlausnar-
efnum. Þeir hafa kannski verið ánægðir með þau ráð
sem þeir hafa fengið og meta einstaklingana út frá því.
Það auðvitað hjálpar og er alltaf þægilegra að koma inn
í fyrirtæki sem maður þekkir en skiptir ekki höfuðmáli
því að það er eðli endurskoðenda að setja sig með
skipulögðum hætti inn í rekstur nýrra fyrirtækja. Þeir
eru sífellt að takast á við ný verkefni," svarar Arni.
- Heldurðu að þessi þróim haldi áfram og þeim endur-
skoðendiun fari fiölgandi sem ráði sig til fyrirtækja?
„Ég gæti trúað því að það yrði sóst eftír endurskoð-
endum, sérstaklega í Jjármálastjórn hjá stórum fyrir-
tækjum, og jafnvel líka tíl stjórnunarstarfa. Þó held ég
að þetta síðarnefnda verði ekki eins algengt. Ég verð
mikið var við að stór fyrirtæki spytja eftir góðum mönn-
um og sem betur fer er mikið af hæfum mönnum í end-
urskoðendastétt þannig að það kæmi mér ekki á óvart
að endurskoðendur réðu sig í auknum mæli tíl fyrir-
tækja. Starf innan endurskoðunarfyrirtækjanna er hins
vegar mjög tjölbreytt og skemmtilegt, en um leið kretj-
andi, þannig að um mjög spennandi störf þarf að vera að
ræða tíl þess að þau séu áhugaverð fyrir starfandi
endurskoðendur," segir Árni Tómasson. 31]
wmt k.'
Arni Tómasson hafði starfað sem endurskoðandi í fjölda ára, síðustu árin sem
meðeigandi og stjórnarformaður hjá Deloitte & Touche, en í mars 2001 varð
hann bankastjóri við Búnaðarbanka Islands.
Mynd: Geir Olafsson
f stjórnunarstörf
Tryggvi Jónsson var einn þekktastí og hæst launaði endur-
skoðandi landsins þegar hann hættí sem endurskoðandi hjá
KPMG og gerðist aðstoðaríorstjóri Baugs sumarið 1998, eins og
kom fram í grein í Fijálsri verslun á þeim tíma. Hagkaupsflöl-
skyldan hafði þá dregið sig út úr verslunarrekstri á matvöru-
markaði og selt reksturinn Bónusfeðgum og nokkrum flárfest-
um. Tryggvi hafði starfað í 14 ár hjá KPMG Endurskoðun hf. og
var þar hluthafi þegar hann skiptí um vettvang. Hann hafði sinnt
endurskoðun fyrir bæði Bónus og Hagkaup.
Guðmundur Frímannsson tók við starfi tjármálastjóra hjá
Verðbréfastofunni 1. júní sl. Hann starfaði áður hjá
Deloitte&Touche. Guðjón Eyjólfsson gerðist ráðgjafi hjá Kaup-
þingi. Af öðrum endurskoðendum má nefna Friðrik Jóhanns-
son, forstjóra Burðaráss, Bjarna Lúðvíksson, sem nú er for-
stjóri Kassagerðar Reykjavíkur en var áður hjá SH, Gunnar
Örn Kristjánsson, forstjóra SÍE Hann var m.a. endurskoðandi
fyrir SÍF áður en hann tók við fyrirtækinu. Aðrir sem hafa farið
úr endurskoðendastétt í fyrirtækjarekstur og nefndir eru í grein
Fijálsrar verslunar frá árinu 1998 eru Sveinn Jónsson, fv. að-
stoðarbankastjóri Búnaðarbankans, og Kristinn Sigtryggsson,
sem á sínum tíma var einn fyrsti endurskoðandinn sem réð sig
tíl fyrirtækis þegar hann gerðist forstjóri Arnarflugs. Athugið að
þessi úttekt er ekki tæmandi. Sj
43