Frjáls verslun - 01.11.2001, Blaðsíða 83
Sigmar B. Hauksson mælir með þessum kampavínum:
Tattinger Brut á 2.590 krónur
Veue Cliquot Brut á 2.590 krónur
Bollinger Grand Anné á 4.250 krónur
Gordon Vert Demi Sec á 2.490 krónur
komast. í stuttu máli sagt fann
hann upp aðferð til að koma af
stað gerjun í flöskunni að
áfengisgerjun lokinni, venjulegt
hvítvín varð því að freyðandi víni,
víni sem síðar var nefnt eftir hér-
aðinu, kampavín. Auðvitað komst
munkurinn að þessari aðferð fyrir
hreina tilviljun. Þessi aðferð
nefnist í dag Méthode Champen-
oise og er enn í fullu gildi.
Hvítar og rauðar þrúgur Við fram-
leiðslu á kampavíni eru notaðar
þrjár tegundir af þrúgum. Sú vin-
sælasta er Chardonnay og svo
Pinot Noir sem er dökk eða rauð
þrúga, þá er einnig notuð, að vísu í
mjög litlum mæli, Pinot Meunier
sem er náskyld Pinot Noir, sem sagt
tvær rauðar og ein hvít. Þegar safinn
úr rauðu þrúgunni er pressaður er
hýðið sigtað frá safanum svo að það
gefi ekki frá sér lit og bragð. Hver
kampavínsframleiðandi hefur sína að-
ferð við framleiðslu og blöndun á kampavíninu. Reynt er að
hafa kampavínið eins á bragðið frá ári til árs. Eldri kampavín
eru notuð við blöndunina til að ná fram réttri samsetningu.
Þegar kampavín er framleitt er sykri og geri bætt í vínið til
þess að koma af stað gerjun í flöskunni. Vínið er svo sett í
flöskur sem er lokað með töppum eins og þeim sem settir eru
á gosdrykkjarflöskur. Flöskurnar eru svo geymdar í vín-
kjöllurum i nokkrar vikur á meðan kolsýrugerjunin á sér
stað. A meðan á gerjuninni stendur fellur dautt ger til botns í
flöskunni og myndar grugg. Flöskunni er stungið í göt á
brettum sem eru eins og öfugt V, þ.e.a.s. flöskuhálsinum er
stungið í götin. Þessi aðferð nefnist Rémunge. Flöskunum er
svo snúið reglulega og eftir nokkrar vikur standa flöskurnar
lóðréttar niður á brettunum. Botnfallið safnast saman í flösku-
hálsinum. Flöskuhálsinn er svo snöggfrystur og tappinn
tekinn af, við það skýst botnfallið úr flöskunni. Því næst er
fýllt á flöskuna með víni og sykri sem ræður því hversu sætt
vínið á að vera.
•5 rrnt n brettum sem eru eins og
aðferð nefnist Rémunge.
VÍNUIVIFJáLLUN SIGMARS B.
kampavín er eins og að hafa sinfóníu-
hljómsveit í munninum þar sem fiðl-
urnar og blásturshljóðfærin eru í aðal-
hlutverki," sagði frægur breskur rit-
höfundur á góðri stundu.
Kampavín og matur Ljómandi gott
er að drekka kampavín með mat. Að
mínu mati er best að hafa rósakampa-
vín með mat en einnig þurrt kampa-
vín. Hálfsætt kampavín passar mjög
vel með reyktum laxi og mjög
krydduðum réttum en einnig viss-
um eftirréttum. Sæt kampavín eru
fágæt en þau er eingöngu hægt að
drekka með eftirréttum. Þurr
kampavín eru ljómandi með villi-
bráð þar sem sósan er bragðmikil
og með rjóma í. Þá er kampavín
gott með pinnamat. Hálfsætt
kampavín er frábært með kökum
af öllum gerðum, það má bjóða í
staðinn fyrir kaffi.
Augnablikið En kampavínið er fyrst og fremst vín augna-
bliksins. Kertaljós, falleg blóm, eldur í arni, góðir vinir eða
stund sem maður á með þeim sem manni finnst vænt um, í
þessu umhverfi á kampavínið heima. Kampavín er frekar
ódýrt hér á landi þótt ótrúlegt sé. Kampavín er rétta vínið til
að kaupa í fríhöfnum. Frekar lítið úrval af kampavínum er í
verslunum ÁTVR, sérstaklega sárvantar góð rósakampavín.
Nú um áramótin er kjörið að skála í kampavíni þegar klukkan
slær 12 á miðnætti og skála fyrir nýju ári - með von um að
efnahagslægðin sé að baki, að verð á sjávarafurðum hækki,
að vextir lækki og krónan styrkist. 33
Þurr og þrælgóð í Kampavínshéraðinu eru um 5.000 vín-
þrúguframleiðendur. 270 fyrirtæki og 45 samvinnufyrirtæki
framleiða kampavin. Segja má þó að 5-6 stórfyrirtæki ráði
markaðnum. Kampavíninu er skipt í þrjár flöskur eftir sykur-
innihaldi vínsins. Brut er þurrt kampavín og er það vin-
sælasta, eða með um 80% framleiðslunnar. Demi sec eru hálf-
þurr, en sec eru sæt kampavín. Rósakampavín eru einnig
nokkuð vinsæl, ekki síst í Bandaríkjunum og í Japan. Þau eru
ekki framleidd eins og rósavín, það er að segja með því að fá
lit úr hýði þrúganna. Við gerð rósakampavína er rauðvíns-
þrúgunni Pinot Noir bætt út í kampavínið. Rósakampavínið er
matarmeira en venjuleg kampavín og geta verið einstaklega
Ijúffeng. Þurrt kampavín eru besti fordrykkurinn sem hugs-
ast getur. Ef þau eru góð eða frá vönduðum framleiðanda, en
þessir framleiðendur eru í hópi sem nefnast Grande Marque,
geta bragðáhrifm verið ólýsanleg. „Að drekka gott þurrt
83