Frjáls verslun - 01.11.2001, Blaðsíða 77
NÁMSKEIÐ í BOÐl
Hvað er
í boði á
vorönn?
„Við skrifborðið mitt hefégkomist að einum mikilvægum
sannleika. Svarið við öllum vandamálum þjóðar okkar -
svarið við öllum vandamálum heimsins - kemstfyrir í einu
orði. Það orð er: Menntun. “ Lyndon B. Johnson
Eftír Vigdísi Stefánsdóttur Mynd Geir Olafsson
Aldrei hefar verið jafh mikið framboð á ýmis konar námi og nú. Lengra
nám, stutt og löng námskeið, fræðslufundir og ijarkennsla býðst hveijum
þeim sem hafa vill og hefur til þess forsendur. Þá gildir einu hvort um er
að ræða nám að loknu stúdentsprófi eða sambærilegu prófi eða nám sem bæt-
ir við þekkingu þess sem þegar hefur unnið í einhvern tíma við fagið. Margur
vill feta nýjar slóðir og sér til þess tækifæri nú þegar svo auðvelt er að læra.
Endurmenntun Háskóla Islands Hér verður stiklað á stóru hvað varð-
ar nám og námskeið sem í boði eru á nýju ári. Skólarnir eru margir þó að nokkr-
ir séu meira áberandi en aðrir og má þar nefna t.d. Endurmenntun Háskóla Islands
sem býður ijölbreytta flóru námskeiða, allt frá íslandssögu til MBA náms.
Fyrir fólk í atvinnulífinu er líklegast að freisti námskeið á borð við starfsmanna-
stjórnun, áhrifameiri málflutning, árangursrík samskipti, samskipti við ijölmiðla, að
halda erindi á ensku og árangursríkir fundir. Þar iyrir utan eru námskeið sem heita
Persónustyrkur ogTilfinningagreind, Verkkvíði og frestunarárátta og Öflugt sjálfstraust.
Öll þessi námskeið eru í flokknum Fólk og færni. í flokknum Stjórnun og starfsþróun er
að finna námskeið sem heita Fjármál iyrir almenna stjórnendur, Að skrifa fréttatilkynn-
ingar og fréttabréf, Verkefnastjórnun, Samskipti á kvennavinnustað og Fjölþjóðlegur
vinnustaður, en þetta eru verkefni nýrrar aldar, snúa að raunveruleika dagsins í dag, þar
sem vinnustaðir eru ijölþjóðlegir, stjórnendur hafa dagleg samskipti við ijölmiðla og til-
kynningar af ýmsu tagi eru mikilvægur þáttur í starfinu.
Undir markaðs- og þjónustumál fellur ýmiskonar markaðstengt nám, s.s. stjórnun við-
skiptasambanda, árangursstjórnun í rekstri iýrirtækja og notkun Excel svo að nokkuð sé
nefnt. Þegar að fjárhag iyrirtækja kemur, eru í boði margvísleg og spennandi námskeið. Ym-
islegt um skattamál, virðisaukaskatt, ársreikninga, samninga af ýmsu tagi og verðbréf. Ekki
má gleyma tölvutækni en undir hana falla námskeið þar sem beint er kennt á ýmsan hugbún-
að og vefsmiðar sem stöðugt verður mikilvægara að kunna. Fleiri flokkar eru í boði og má
nefna lögfræði, verkfræði, tæknifræði, arkitektúr, heilbrigðisfræði, tungumálanám og fleira.
Þjálfun og fræðsla hjá IMG IMG er rannsóknar- og ráðgjafafyrirtæki sem aðstoðar
viðskiptavini sína við ákvarðanatöku og þekkingarsköpun. Innan IMG er öflugt svið fræðslu
og þjálfunar. Boðið er upp á fyrirlestra og styttri sem lengri námskeið í eftirtöldum efnisflokk-
um: Færni og árangur; stjórnun; stjórnandinn og samskipti; starfsmannamál; þjónusta, mark-
aðsmál og þjóðfélagsmál; ævintýraferðir og lengra nám á nokkrum sviðum. Sérfræðingar IMG
hafa fjölbreyttan bakgrunn og mikla reynslu í að miðla þekkingu og upplýsingum.
77