Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2001, Blaðsíða 21

Frjáls verslun - 01.11.2001, Blaðsíða 21
hljóta menn að velta fyrir sér hvernig þeir hafi farið að því; hvort þeir hafi sett sér markmið og unnið markvisst að þeim eða látið reka með vindi. Agúst verður fyrst fyrir svörum: „í upphafi var þetta spurning um að reyna að lifa af og hafa meiri tekjur en útlagðan kostnað, eins og hjá flestum sem stofna fyrirtæki. Fyrstu árin fóru í það að reyna að koma ein- hverri reglu á reksturinn, læra á þessi við- skipti og öðlast reynslu. Fyrirtækið er stofnað með engu hlutafé þannig að fyrstu ljögur árin má segja að hafi farið í það að styrkja sig og læra á viðskiptin. Upp úr 1990 fórum við að vinna að formlegri stefnumótun og á árunum 1991-1992 gáfum við í fyrsta skipti út formlega stefnumótun þar sem við settum fram okkar stefnumið á komandi árum,“ segir hann. Þeir hafa ávallt unnið eftir skýrt settum markmiðum og unnið markvisst að þeim þó að ekki hafi markmiðin verið sett strax á blað. „Markmiðin voru skýr frá fyrsta degi þó að við höfum ekki skrifað þau nið- ur fyrr en árið 1990. Almennt séð held ég að menn komist ekk- ert áfram fyrir tilviljun, þetta er mörkuð braut sem menn ganga,“ segir Lýður. Þeirra fyrsta stefnumótun var til tíu ára eða fram til ársins 2000 og segja bræðurnir að hún hafi gengið nokkurn veginn eftir. Þeir fóru svo í nýja stefnumótun 1994- 1995 og hún var sett til ársins 2005. - Hvað er það sem hefur rekið ykkur áfram? „Metnaður og áhugi,“ svara þeir strax og hugsa sig um sekúndu- brot. Agúst heldur svo áfram: „Okkur finnst gaman í vinnunni. Það eru svo miklir möguleikar í heiminum, sem verður að nýta. Tækifærin eru úti um allar trissur. Það er ómögulegt að sitja og horfa á þau þjóta framhjá." Lýður bætir við að þetta sé spurning um að velja réttu tækifærin og hafa þau í samræmi við sett markmið. Þeir eru sammála um að markmiðin þurfi að vera háleit en ekki eru þeir tilbúnir til að greina frá mark- miðum sínum í neinum smáatrið- um. Það er greinilegt að þarna eru á ferðinni menn sem vilja láta verk- in tala. „Við ætlum að halda áfram á þessari braut sem við höfum markað og byggja upp fyrirtækið af miklum krafti. Við viljum helst ekki gefa út neinar yfirlýsingar en við ætlum allavega að halda áfram Lýður Guðmundsson, forstjóri Bakkavör Grouþ, segir m.a. um uþpskriftina að árangri: „Það skiþtir miklu að njóta ekki ávaxtanna áður en þeir verða til. Ekki borða frœin!“ Mynd: Geir Olafsson hraðri uppbyggingu og skila hluthöfum okkar arði. Það er okkar stefna og þannig hefúr það alltaf verið,“ segir Agúst. - Mörg íslensk sjávarútvegsfyrirtæki haía verið að vinna á Banda- ríkjamarkaði en þið á Evrópumarkaði. Af hverju? einhverjum ákveðnum tímapunkti komum við til með að fara víðar en það eru næg sóknarfæri fyrir okkur í Evrópu næstu árin. Við komum væntanlega til með að einblína á þau,“ svarar Agúst. Lýður Guðmundsson, forstjóri Bakkavör Grouþ, dr. Guðmundur Stefánsson verkefnastjóri, Hilmar Asgeirsson, framkvæmdastjóri Bakkavör Island, Asbjörn Asbjörnsson, fjármálastjóri Bakkavör Island, og Agúst Guðmundsson, stjórnarformaður Bakkavör Grouþ. ÁGÚST 0G LÝÐUR IVIENN ÁRSINS 2001 Eftirspurnin eftir tilbúinni, ferskri fæðu er stöðugt að aukast. Vinsældir niðursoðinnar vöru eru að líða undir lok. Neytendur vilja kaupa ferska og tilbúna vöru sem lítið þarf að hafa fyrir í stað hefðbundinnar heimilismatreiðslu. 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.