Frjáls verslun - 01.11.2001, Blaðsíða 49
ATVINNUHORFUR í BYGGINGARIÐNAÐI
kannski helst hjá einyrkjum því fastir starfsmenn fyrirtækja
eru auðvitað með laun sem bundin eru samningum og þeim
verður ekki breytt. Það hefur þó gripið um sig ákveðin
hræðsla en ég held að hún sé ástæðulaus því nóg er fyrir
hendi af verkefnum um allt land. Mikið hefur verið talað um
virkjanir og álver og sennilegt að það styttist í að farið verði í
þær framkvæmdir." 33
„Við höfum verið að feta okkur út fyrir Kefla
víkurflugvöll en höfum alla tíð lagt meiri
áherslu á viðhald og þjónustu en beinlínis
nýframkvæmdir,“ segir Kári Arngrímsson,
yfirverkfræðingur hjá Keflavíkurverktökum.
BYGG:
Talsverður kippur
Það er líf að lokinni Smáralind,“ segir Konráð
Sigurðsson, tæknifræðingur hjá Byggingafé-
lagi Gylfa & Gunnars, kankvíslega þegar hann
er spurður þess hvernig ástandið sé á bygginga-
markaði. ,Að vísu er yfirvofandi samdráttur á
útboðsmarkaði og sala á íbúðum hefur verið lakari
á þessu ári miðað við árið í fyrra, en undanfarna tvo
mánuði hefur komið talsverður kippur í hana.“
Bjart framundan Gylfi & Gunnar eru að byggja
íbúðir í Arsölum í Kópavogi og við Naustabryggju í
Bryggjuhverfinu. „Við bíðum eftir því að sjá
nokkurn bata á íbúðamarkaðinum áður en við
hefjum byggingu íbúða við Kristnibraut í Grafar-
holtinu,“ segir Konráð. „Þar erum við í startholun-
um sem og annars staðar en við höfum haldið að
okkur höndum vegna minni sölu á fasteignamark-
aðinum almennt. Um leið og stjórnvöld lækka vexti
og gengið styrkist þá eru bjartir tímar framundan
hjá okkur öllum. Um áramótin eigum við að skila af
okkur stóru skrifstofuhúsnæði í Skógarhlíð 12 þar
sem PriceWaterhouseCoopers verður til húsa og
svo erum við að byggja eitt verslunarhúsið enn í
Kópavogi en það er fyrir Byko við Skernmuveg."
Haldlð I undirverktaka Hjá Gylfa & Gunnari starfa
nú um 110 manns og segir Konráð að lítið hafi verið
um uppsagnir. „Þó aðeins, en við höfum reynt að
halda þeim í lágmarki og það er stærsta ósk okkar Konráð Sigurðsson, tœknifræðingur hjá Byggingafélagi Gylfa & Gunnars.
að þær þurfi ekki að koma til framkvæmda. Áætlanir
okkar gera ráð fyrir 100-110 manns um áramótin.
Við höfum haldið í okkar undirverktaka eins og kostur er, en
þeir sem aðrir hafa fundið fyrir einhveijum samdrætti. Eg hef
ekki heyrt mikið frá jarðvinnumönnum en það hlýtur að segja
sér sjálft að ef ríki og borg draga úr framkvæmdum þá kemur
það fyrst niður á þeim. í heildina verður að segja að við séum
bara nokkuð hressir með útlitið," segir hann að lokum. B3
„Sala á íbúðum hefur verið lakari á þessu
ári miðað við árið í fyrra, en undanfarna tvo
mánuði hefur komið talsverður kippur í
hana,“ segir Konráð Sigurðsson.
Eykt'
Næg verkefni
Við erum rétt að ljúka byggingu húss íslenskrar erfða-
greiningar í Vatnsmýrinni," segir Theodór Sólonsson,
annar eigenda Eyktar hf. „Við afhentum húsið á
umsömdum tíma í desember og Islensk erfðagreining
flytur þar inn í fullklárað húsnæði." Eykt hefur verið að
byggja í Borgartúni og er nú að ljúka byggingu tveggja
húsa þar, Borgartúns 19 og Borgartúns 21a.
„Þeir eru margir sem áhuga hafa á því að komast inn í
Borgartún 19, eins og gefur að skilja, enda húsið glæsilegt og
vel staðsett. Við erum að ljúka við utanhússfrágang þar fyrir
veturinn. Einnig erum við að byggja stórt hús á Lynghálsi 4,
49