Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2001, Síða 24

Frjáls verslun - 01.11.2001, Síða 24
flGÚST OG LÝÐUR IVIENN flRSINS 2001 vörur, niðursoðnar vörur og ótil- reiddur matur fer halloka á borði neytenda á næstu 10-20 árum. Þessi hluti matvælageirans kemur til með að hverfa um allan heim. Matar- og neyslu- mynstur fólks kemur til með að umturnast gjörsam- lega og færast yfir í tilbúna, ferska rétti,“ segir Agúst. Galdurinn er veltuhraði Fyrirtækin innan Bakkavör Group velta birgðunum 300 sinnum á ári sem þýðir að vörurnar stoppa minna en einn dag í hillunum. „Það er galdurinn," segir Lýður. Pantanir koma inn fyrir kl. 9 morgnana, verksmiðjurnar framleiða upp í þær yfir daginn og svo er vörunum dreift í stórmark- aði um kvöldið og nóttina. Neytandinn tekur vörurnar úr hillum stórmarkaðanna daginn eftir. Geymsluþol er þrír til níu dagar og engin rotvarnarefni eða aukaefni eru í vörunum. „Þetta er algjörlega fersk vara. Það er það sem heimurinn stefnir í,“ segja þeir. - Gerðuð þið ykkur grein fyrir þessu þegar þið hófuð starfsemi? „Nei. Þetta ljós fór að renna upp iýrir þremur árum. Þá gerði maður sér betur og betur grein iýrir því hver framtíðin væri í matvælaframleiðslu," svarar Ágúst. - Er ekki gríðarlega hörð samkeppni á þessum markaði, t.d. í Bretlandi? Vilja ekki allir vera með? „Nei, í rauninni er samkeppnin ekki gríðarlega hörð. Ef við horf- um á Bretland, sem er langlengst komið á þessari braut þá er vöxtur markaðarins svo mikill að framleiðendur hafa varla undan að auka við framleiðslugetuna tíl að halda í við aukna eftírspurn. Stór matvælaíýrirtæki eins og Nestlé, Unilever og fleiri alþjóðleg- ir risar hafa ekki viljað taka þátt í þessu. Þau hafa öll byggt upp starfsemi sína á alþjóðlegum mörkuðum með vörum sem hafa mjög langt geymsluþol. Þau vilja framleiða á einum stað og selja vöruna svo óbreytta út um allan heim. Það eru fá eða engin al- þjóðleg fyrirtæki á þessum markaði og við sjáum ekki fram á að þeim fiölgi mikið á næstunni. Þarna liggja mörg sóknarfæri fyrir okkur, við ætlum að verða alþjóðlegt fyrirtæki í þessum geira. Það er erfitt að flytja vöruna milli landa og þess vegna þurfum við að byggja upp starfsemi og verksmiðjur í mismunandi löndum til að geta tekið þátt í þessari þróun,“ svarar hann. Ný Sljórn mótar Stefnuna Bakkavör Group er í dag með starf- semi í níu löndum. Verksmiðjurnar eru í fimm löndum; tvær á Islandi, í Bretlandi, Svíþjóð, Frakklandi og Chile, þar sem fyrir- tækið á 42 prósenta hlut í fyrirtækinu Pesquera Isla Del Rey og er þar stærsti hluthafinn. Bakkavör er svo með sölu- og dreif- Bakkavör, íslandi KFF og Fillo Pastry, London Bakkavör, Birmingham Bakkavör, Frakklandi Bakkavör, Svíþjóð Bakkavör, Þýskalandi Bakkavör, Póllandi PIDR, Chile Bakkavör, Danmörku Bakkavör, Finnlandi ingarfýrirtæki í Finnlandi, Þýskalandi og Póllandi. Fyrirsjá- anlegt er að verksmiðjum fyrir- tækisins flölgi á næstu árum, td. stendur yfir bygging verksmiðju í London, sem verður tekin í notkun í vor. Með kaupunum á breska matvælafyrirtækinu KFF er fyrirtækið orðið geysistórt og öflugt og hefur hluthafahópurinn breyst því að fyrrverandi eigendur KFF eru nú næststærstu hluthafar í Bakkavör með 18 prósenta hlut, næst á eftir þeim bræðrum, sem eiga 29 prósent eins og áður sagði. Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins á 5 prósent og af- gangurinn hefur svo dreifst meðal 6.000 hluthafa. „Við eigum eftír að setjast niður og móta stefnuna út frá breytt- um forsendum. Við þurfum að byggja upp markmið okkar tíl næstu 2-3 ára og það bíður nýs árs. Auðvitað leikur enginn vafi á því að við komum til með að vaxa hratt áfram. Við komum tíl með að halda áfram uppbyggingu félagsins erlendis með kaupum á fyrirtækjum eða byggingu nýrra verksmiðja þó að ekkert annað en verksmiðjan í London sé á teikniborðinu í dag. Við höfum eytt árinu í þessi fyrirtækiskaup í Bretíandi og eigum eftír að kort- leggja hvernig við stöndum að frekari uppbyggingu í Evrópu. Það verður fyrsta verk nýrrar stjórnar eftir áramót,“ segja þeir. Bræðurnir í Bakkavör komust í kynni við grísku fjölskyld- una, sem átti KFF, fyrir nokkrum árum og höfðu reynt að koma á viðskiptum við hana en KFF hafði verið með svo góða birgða að ástæðulaust þótti að skipta. Eftir að Bakkavör Group keypti Wine&Dine í Birmingham í fyrra, fyrirtæki sem nú heitir Bakkavör Birmingham, styrktist kunningsskapurinn við Katsouris-Jjölskylduna enn frekar. Komið var að kynslóðaskipt- um hjá KFF. Katsouris-tjölskyldan þekkir vel grísku fjölskyld- una sem seldi Wine&Dine og fylgdist því með kaupunum af miklum áhuga. Þegar hún sá hve vel var að þeim staðið og þau tókust vel var ákveðið að bjóða bræðrunum til fundar. Tveir vendipunktar Vendipunktur hefur tvisvar orðið í sögu Bakkavarar. Fyrst árið 1995 þegar Grandi hf. kom inn með hluta- tjáraukningu og eignaðist 40% í fýrirtækinu. Brynjólfur Bjarna- son, forstjóri Granda, settíst þá í stjórn. I seinna skiptið þegar Kaupþing kom inn með hlutafjáraukningu 1998 og endurtjár- magnaði skuldir fyrirtækisins. Ágúst segir að þessir tveir menn, Brynjólfur og Sigurður Einarsson, forstjóri Kaupþings, hafi haft Auðvitað leikur enginn vafi á því að fyrirtækið kemur til með að vaxa hratt áfram. Uppbygg- ingu félagsins erlendis verður haldið áfram með kaupum á fyrirtækjum eða byggingu nýrra verksmiðja þó að ekkert annað en verksmiðjan í London sé á teikniborðinu í dag. 24
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.